Breyting á lögum um tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar á Íslandi
Fyrirhugað er að framlengja lög um tímabundnar endurgreiðslur til kvikmyndagerðar en lögin renna út um áramót.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-188/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 14. október 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 263)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (17. ágúst 2026)
Áform um lagasetninguna auk mats á áhrifum voru birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda 12.–22. september 2025 (mál nr. S-165/2025) og bárust fimm umsagnir. Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999 (framlenging gildistíma o.fl.) voru til samráðs 30. september til 14. október 2025. Í greinargerð frumvarps er fjallað um athugasemdir sem bárust í samráði og viðbrögð við þeim. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 18. nóvember 2025 og samþykkt 17. desember 2025.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)
- #1Sýn hf.
Meðfylgjandi umsögn var send í samráðsgátt vegna áforma um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999. Nú er frumvarpið komið fram. Það vekur athygli að í kafla frumvarpsins um samráð er í engu getið umsagnar Sýnar og þaðan af síður er tillaga Sýnar tekin til greina i frumvarpstextanum. Af þeim sökum endursendist umsögn Sýnar dags. 22. september 2025 og þess farið á leit að tillgaga Sýnar til breytinga á lögunum verði tekin til greina. Tillagan er svofelld: Að orðin „svo og framleiðsla efnis sem fyrst og fremst er ætlað til… Lesa alla
Meðfylgjandi umsögn var send í samráðsgátt vegna áforma um frumvarp til laga um breytingu á lögum um tímabundnar endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar á Íslandi, nr. 43/1999. Nú er frumvarpið komið fram. Það vekur athygli að í kafla frumvarpsins um samráð er í engu getið umsagnar Sýnar og þaðan af síður er tillaga Sýnar tekin til greina i frumvarpstextanum. Af þeim sökum endursendist umsögn Sýnar dags. 22. september 2025 og þess farið á leit að tillgaga Sýnar til breytinga á lögunum verði tekin til greina. Tillagan er svofelld: Að orðin „svo og framleiðsla efnis sem fyrst og fremst er ætlað til sýninga í eigin dreifikerfi“ verði felld brott úr 4. mgr. 4. gr. laganna. Samsvarandi breytingu þyrfti í kjölfarið að gera á reglugerð nr. 450/2017. Um nánari rökstuðning vísast til meðfylgjandi umsagnar.
- #2Kristinn Már Reynisson
Meðfylgjandi er umsögn SVÞ - Samtaka verslunar og þjónustu.
- #3Anton Máni Svansson
Meðfylgjandi er umsögn eftirfarandi fagfélaga í kvikmyndagerð: Samband íslenskra kvikmyndaframleiðenda, SÍK Samtök kvikmyndaleikstjóra, SKL Félag leikskálda og handritshöfunda, FLH Félag kvikmyndagerðarmanna, FK
- #4RVX Productions ehf.
Meðfylgjandi er umsögn RVX Productions ehf.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.