Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-187/2025 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar

Heilbrigðisráðherra kynnir ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember).

Í frumvarpinu eru lagðar til ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar. Breytingarnar felast m.a. í að skýra betur skyldu Sjúkratrygginga Íslands til að byggja ákvarðanatöku á gagnreyndri meðferð og faglegu og hagrænu mati. Lagt er til að biðtími eftir sjúkratryggingu við flutning til landsins verði styttur úr sex mánuðum í þrjá. Þá er lagt til að veita Sjúkratryggingum heimild til að meta hvort einstaklingur sé raunverulega búsettur hér á landi og fella niður sjúkratryggingu ef svo er ekki. Einnig er lagt til að greiðsluþátttaka vegna veikinda/slysa utan EES-svæðisins verði bundin við afmarkaða hópa, svo sem námsmenn, í stað þess að gilda almennt, í samræmi við það sem gildir á Norðurlöndunum. Ýmsar breytingar eru lagðar til á heimildum til gjaldtöku og að m.a. verði heimilt að taka gjald vegna fjarheilbrigðisþjónustu heilsugæslunnar og útkalls sjúkrabifreiðar þegar þjónusta er veitt án þess að flutningur eigi sér stað. Þá verði ófrjósemisaðgerðir felldar undir almennar reglur um greiðsluþátttöku. Lagt er til að ákvæði um afsláttarstofn verði breytt og að samræmi verði á komugjöldum vegna þjónustu sálfræðinga og sjúkraþjálfara sem falla utan afsláttarstofns. Er einnig lagt til að heimilt verði að innheimta gjald ef sjúklingur mætir ekki í bókaðan tíma á heilsugæslu, enda fellur þá til kostnaður sem ekki fæst greiddur. Lagðar eru til breytingar á 38. gr. laganna sem fjallar um þátttöku í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu þegar samningar eru ekki fyrir hendi. Meðal annars verði óheimilt að krefja sjúkling um aukagjöld þegar þjónustuveitandi fær greitt skv. gjaldskrá Sjúkratrygginga. Mælt er fyrir um heimild til greiðslna á grundvelli fjármögnunarlíkana auk ítarlegri skilgreininga á gagnaúrvinnslu og vinnsluheimildum Sjúkratrygginga. Ákvæði um miðlæga grunna heilbrigðisþjónustu og lyfja eru skýrð nánar og loks lagt til að stjórn Sjúkratrygginga Íslands verði lögð niður.

S-187/2025· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. sep. 2025 – 20. okt. 2025· 23 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar

Heilbrigðisráðherra kynnir ýmsar breytingar á lögum um sjúkratryggingar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-187/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 20. október 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 23 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 328)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (15. júlí 2026)

Frumvarpið hefur verið lagt fram á Alþingi og var samþykkt

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (23)
  • #1Hrund Hjaltested

    Til viðbótar við skrópgjald á heilsugæslu, mætti einnig láta fólk sem þarf túlka og mætir ekki í bókaðan tíma, greiða fyrir túlkaþjónustuna. Það er ekki gert í dag og mikill kostnaður sem fellur á heilsugæsluna vegna þessa.

  • #2Jóhann Jónsson

    Hér er virðist vera um almenna bót á lögum um sjúkratryggingar að ræða. Hefði þó vilja halda óbreyttu ákvæðinu um greiðsluþátttöku vegna slysa / veikinda utan EES . Íslendingar ferðast mikið og stór hluti þessara ferða er utan EES svæðisins og veikindi eða slys spyrja ekki hvar þú ert staddur/stödd.

  • #3Hafdís Inga Helgudóttir Hinriksdóttir
    Umsögn SKÝ – félags fólks með post covid um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar SKÝ – félag fólks með post covid – hefur kynnt sér frumvarp heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um sjúkratryggingar, þar sem m.a. er lagt til að skýra betur skyldu Sjúkratrygginga Íslands til að byggja ákvarðanatöku á gagnreyndri meðferð og faglegu og hagrænu mati. Félagið tekur undir mikilvægi þess að ákvarðanir um greiðsluþátttöku í heilbrigðiskerfinu séu byggðar á faglegum grunni og að opinber fjármagn sé nýtt á ábyrgan hátt. Hins vegar telur SKÝ að þær breytingar sem frumvarpið f… Lesa alla

    Umsögn SKÝ – félags fólks með post covid um frumvarp til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar SKÝ – félag fólks með post covid – hefur kynnt sér frumvarp heilbrigðisráðherra til breytinga á lögum um sjúkratryggingar, þar sem m.a. er lagt til að skýra betur skyldu Sjúkratrygginga Íslands til að byggja ákvarðanatöku á gagnreyndri meðferð og faglegu og hagrænu mati. Félagið tekur undir mikilvægi þess að ákvarðanir um greiðsluþátttöku í heilbrigðiskerfinu séu byggðar á faglegum grunni og að opinber fjármagn sé nýtt á ábyrgan hátt. Hins vegar telur SKÝ að þær breytingar sem frumvarpið felur í sér, í núverandi mynd, geti haft í för með sér verulegar neikvæðar afleiðingar fyrir tiltekna hópa sjúklinga, einkum þá sem glíma við sjúkdóma eða heilkenni sem ekki hafa enn verið þróaðar eða viðurkenndar gagnreyndar meðferðir við. Þetta á sérstaklega við um fólk með post covid, ME (mýalískt heilkenni) og aðra skyldar taugasjúkdóma. Þessir hópar hafa þegar afar takmarkað aðgengi að viðeigandi heilbrigðisþjónustu hér á landi og standa margir frammi fyrir miklum heilsutengdum og félagslegum áskorunum. Ef samþykktar yrðu lagabreytingar sem þrengja heimildir Sjúkratrygginga Íslands til að greiða fyrir meðferðir sem ekki hafa hlotið formlega skilgreiningu sem gagnreyndar, væri hætta á að þjónusta við þessa hópa yrði enn frekar skert. SKÝ telur að í stað þess að þrengja túlkun laganna ættu stjórnvöld að beita sér fyrir breytingum sem veita Sjúkratryggingum Íslands eðlilegt svigrúm til að greiða fyrir meðferðir sem læknar telja geta bætt lífsgæði einstaklinga með ólæknanlega eða illa skilgreinda sjúkdóma. Slíkt væri í samræmi við jafnræðissjónarmið og þá skyldu stjórnvalda að stuðla að heilbrigði og velferð allra þegna samfélagsins, óháð því hvort gagnreynd meðferð hafi verið þróuð fyrir viðkomandi sjúkdóm. Niðurstaða: SKÝ hvetur heilbrigðisráðuneytið og Alþingi til að endurmeta áhrif frumvarpsins á stöðu sjúklinga með langvinn og ólæknanleg heilkenni áður en það verður samþykkt. Mikilvægt er að tryggja að breytingarnar leiði ekki til frekari mismununar eða skerðingar á heilbrigðisþjónustu þeirra sem þegar standa höllum fæti innan kerfisins. Stjórn SKÝ Gunnar Helgi Guðjónsson Hafdís Inga Helgud. Hinriksdóttir Regína Sverrisdóttir Sigríður Elín Ásgeirsdóttir

  • #4Landspítali

    Umsögn Landspítala.

  • #5BSRB

    Meðfylgjandi er umsögn BSRB.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-187/2025: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sjúkratryggingar · Alviti