Drög að frumvarpi til laga um réttindavernd fatlaðs fólks
Félags- og húsnæðismálaráðherra kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um réttindavernd fatlaðs fólks.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-186/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 12. október 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 14 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 311)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. febrúar 2026)
Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 26. september 2025 og var veittur frestur til og með 12. október til að veita umsagnir um drögin (mál nr. S-186/2025). Alls bárust 14 umsagnir um frumvarpið sem teknar voru til skoðunar og leiddu að einhverju leyti til breytinga á efni frumvarpsins. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 27. janúar 2026, sbr. hlekk hér fyrir neðan.
- Uppfærð drög að frumvarpi til laga um réttindavernd fatlaðs fólks
- Frummat á áhrifum frumvarps til laga um réttindavernd fatlaðs fólks
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (14)
- #1Atli Freyr Magnússon
Í þessari umsögn vil ég beina sjónum að börnum og réttindavernd þeirra, sérstaklega þegar kemur að nauðung og/eða þegar réttindi þeirra eru skert til að tryggja velferð þeirra. Í fyrri drögum stóð til að þessi lög, a.m.k. sá hluti þeirra sem fjallar um nauðung, næðu ekki til fatlaðra barna.Hætt hefur verið við það, líklega vegna þess að ekkert annað kerfi/lög sem grípur þennan viðkvæma hóp. Í mínum huga er það miður. Best væri ef til væru lög um hvernig standa skuli að því að skerða réttindi sem næðu til allra barna, óháð þeirri þjónustu sem þau eru í. Til dæmis má benda á að oft á tíðum er ól… Lesa alla
Í þessari umsögn vil ég beina sjónum að börnum og réttindavernd þeirra, sérstaklega þegar kemur að nauðung og/eða þegar réttindi þeirra eru skert til að tryggja velferð þeirra. Í fyrri drögum stóð til að þessi lög, a.m.k. sá hluti þeirra sem fjallar um nauðung, næðu ekki til fatlaðra barna.Hætt hefur verið við það, líklega vegna þess að ekkert annað kerfi/lög sem grípur þennan viðkvæma hóp. Í mínum huga er það miður. Best væri ef til væru lög um hvernig standa skuli að því að skerða réttindi sem næðu til allra barna, óháð þeirri þjónustu sem þau eru í. Til dæmis má benda á að oft á tíðum er óljóst hvort barn sé fatlað eða ekki og ég veit til þess að það hefur skapað óvissu í skólum, hvert skuli leita. Ég vil þó vekja sérstaka athygli og vara við breytingum í þessum drögum, frá núgildandi lögum um réttindagæslu fatlaðra frá 2011. Í þessum drögum er sérstaklega tekið fram að IV. kafli um ráðstafanir til að draga úr nauðung í þjónustu við fatlaða, nái ekki til fatlaðra barna sem vistuð eru á vegum barnaverndar. Vísað er til þess að þau falli undir barnaverndarlög (líklega átt við 82. grein þeirra laga frá því árið 2002). Í 82. Grein barnaverndarlaga frá 2002, er fjallað um þvingunarúrræði í þjónustu við börn sem vistuð eru í úrræðum barnaverndar. Í þeirri grein segir að ráðherra skuli setja reglugerð sem skýri nánar hvernig staðið skuli að þessum aðgerðum, en hún hefur ekki enn verið sett, 23 árum síðar. Því væri verið að draga verulega úr vernd fyrir einn viðkvæmasta hóp fatlaðs fólks, þ.e. fötluð börn sem vistuð eru utan heimilis, mörg hver af því foreldrar þeirra hafa ekki forsendur til að gæta hagsmuna þeirra. Því vona ég svo sannarlega að þessi hópur fá áfram að njóta verndar þessara laga. Annað atriði sem mætti bæta úr, þó svo ég viti ekki hvernig það sé gert, er að reyna að gera miðlæga stjórnsýslu sveitarfélagana ábyrgari í ferlinu þegar sótt er eftir ráðgjöf og svo undanþágu frá banni við beitingu nauðungar. Í reynd eru það svo til alltaf forstöðumenn heimilia sem sækja um ráðgjöf og undanþágur. Á sumum heimilum eru nokkuð tíð forstöðumannaskipti og það hefur oft mjög slæm áhrif á umsóknarferlið og ósjaldan sem nýjir forstöðumenn eru ekki meðvitaðir um að búið sé að sækja um ráðgjöf/undanþágu og þá er hætta á því að mál falli niður. Einnig er fjöldi dæma þess að forstöðumenn þekki ekki þessi lög og viti ekki af banni við nauðung og að sækja þurfi um ráðgjöf/undanþágu.
- #2Persónuvernd
Umsögn Persónuverndar um drög að frumvarpi til laga um réttindavernd fatlaðs fólks -S-186/2025
- #3Barnaheill - Save the Children á Íslandi
Meðfylgjandi er umsögn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi
- #4Aðalheiður Kristjánsdóttir
Meðfylgjandi er umsögn velferðarsviðs Akureyrarbæjar.
- #5Reykjavíkurborg
Meðfylgjandi er umsögn Reykjavíkurborgar.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.