Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-185/2025 · Forsætisráðuneytið

Áform um breytingar á lögum um laun forseta Íslands o.fl

Áform þessi varða rafrænar undirritanir á vettvangi ríkisráðs, breytt fyrirkomulag á greiðslum til handhafa forsetavalds, sérstakan aðstoðarmann forseta og launaákvörðun forsetaritara.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember).

Þau úrlausnarefni sem hér eru til umfjöllunar eru í meginatriðum fjórþætt og varða í fyrsta lagi rafrænar undirritanir ráðherra og forseta Íslands á vettvangi ríkisráðs sem fyrirhugað er að setja skorður um, í öðru lagi fyrirkomulag á greiðslum til handhafa forsetavalds sem gert er ráð fyrir að breytingar verði gerðar á til lækkunar, í þriðja lagi heimild til ráðningar sérstaks aðstoðarmanns sitjandi forseta með tilteknum frávikum frá almennum reglum um opinbera starfsmenn, svo sem um auglýsingaskyldu og ráðningarlok, og í fjórða lagi launaákvörðun forsetaritara, til samræmis við almennt fyrirkomulag launaákvörðunar aðila sem áður heyrðu undir kjararáð.

S-185/2025· Áform um lagasetningu· Forsætisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. sep. 2025 – 13. okt. 2025· 2 umsagnir

Áform um breytingar á lögum um laun forseta Íslands o.fl

Áform þessi varða rafrænar undirritanir á vettvangi ríkisráðs, breytt fyrirkomulag á greiðslum til handhafa forsetavalds, sérstakan aðstoðarmann forseta og launaákvörðun forsetaritara.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-185/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 13. október 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 314)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (11. desember 2025)

Drög að frumvarpi voru birt í Samráðsgáttinni, sjá tengt mál. Búið er að leggja frumvarpið fram á Alþingi (314. mál á 157. löggjafarþingi).

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
  • #1Óli Jóhann Kristjánsson

    Spurning af hverju á að veita forseta leifi til að ráða starfsmann án auglýsingar ef það yrði gert er það þá ekki fordæmdi fyrir aðra hjá ríkinu.

  • #2Birna Guðrún Konráðsdóttir

    Ég sé ekki nauðsyn þess að ráða aðstoðarmanneskju fyrir forseta Íslands. Embættið rekur forsetaskrifstofu, þar sem starfa fimm manneskjur að meðaltali. Þar að auki starfar fólk fyrir embættið á Bessastöðum. Það er því að mínu mati algjörlega ónauðsynlegt að ráða sérstakan aðstoðarmann forseta. Fyrir löngu hefði mátt lækka laun handhafa forsetavalds sem halda örðum tekjum á meðan þeir gegna forsetavaldinu. Þeirri tillögu fagna ég jafn mikið og ég er á móti þeirri fyrrgreindu.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-185/2025: Áform um breytingar á lögum um laun forseta Íslands o.fl · Alviti