Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-184/2025 · Dómsmálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytinga á almennum hegningarlögum nr. 19/1940 (öryggisráðstafanir)

Kynnt eru drög frumvarps um breytingar á ákvæðum VII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 um öryggisráðstafanir.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember); 158. þing (áætlað: október).

Á grundvelli áforma sem kynnt voru í sumar (mál S-141/2025)) eru hér kynnt drög frumvarps til breytinga á ákvæðum VII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Er frumvarpið lagt fram samhliða drögum að frumvarpi félagsmálaráðherra um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn (mál S-177/2025). Ákvæðin sem lagt er til að breyta með þessum drögum hafa að mestu staðið efnislega óbreytt frá setningu laganna eða í um 85 ár. Endurskoðun þessara ákvæða er orðin tímabær, einkum með tilliti til ríkjandi sjónarmiða um mannréttindavernd. Vegna krafna um skýra lagaheimild er með frumvarpinu leitast við að kveða skýrar á til hvaða öryggisráðstafana megi grípa þegar um er að ræða einstaklinga sem metnir eru ósakhæfir eða þannig ástatt um að refsing er ekki talin bera árangur. Sem og að gera ákvæði um áframhaldandi vistun í fangelsi eða öryggisráðstafanir skýrari, þegar tímabundin fangelsisrefsing dugar ekki til þess að vernda líf, heilsu eða frelsi annarra. Með frumvarpinu er einnig leitast við að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru skv. Stjórnarskrá, mannréttindasáttmála Evrópu, eins og þær hafa verið túlkaðar og útfærðar í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu, auk annarra mannréttindaskuldbindinga.

S-184/2025· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 26. sep. 2025 – 12. okt. 2025· 4 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytinga á almennum hegningarlögum nr. 19/1940 (öryggisráðstafanir)

Kynnt eru drög frumvarps um breytingar á ákvæðum VII. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 um öryggisráðstafanir.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-184/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. október 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 313)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (24. september 2026)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi og varð að lögum nr. 78/2026. https://www.althingi.is/altext/stjt/2026.078.html

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-184/2025: Drög að frumvarpi til laga um breytinga á almennum hegningarlögum nr. 19/1940 (öryggisráðstafanir) · Alviti