Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-181/2025 · Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að frumvarpi til markaðssetningarlaga

Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á lögum nr. 57/2005, lögum nr. 62/2005 og lögum nr. 20/2020. Tillaga frumvarpsins er að ný markaðssetningarlög leysi framangreind lög af hólmi.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október).

Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á lögum um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu nr. 57/2005, lögum um Neytendastofu nr. 62/2005 og lögum um samvinnu stjórnvalda á Evrópska efnahagssvæðinu um neytendavernd nr. 20/2020. Tillaga frumvarpsins er að ný markaðssetningarlög leysi framangreind lög af hólmi og er í frumvarpinu að finna ákveðna uppfærslu og endurskoðun á gildandi löggjöf á sviði neytendamála, með aukna neytendavernd að leiðarljósi. Frumvarp sama heitis var lagt fram á 154. löggjafarþingi en náði ekki fram að ganga. Nokkrar breytingar hafa verið gerðar á frumvarpinu, frá fyrri útgáfu þess, í kjölfar umsagna sem bárust við það frumvarp. Má þar helst nefna að þeim ákvæðum frumvarpsins sem geta varðað refsingu hefur verið fækkað verulega þar sem hærri sektarheimildir samkvæmt frumvarpinu eru til þess fallnar að tryggja fullnægjandi varnaðaráhrif. Breyttir viðskiptahættir, aukin netviðskipti og tækniþróun síðustu ára hafa gert fyrirtækjum kleift að markaðssetja sig með sífellt nýjum aðferðum. Þetta hefur meðal annars valdið óvissu fyrir fyrirtæki og neytendur um hvaða viðskiptahættir séu heimilir og hverjir ekki. Reynsla síðustu ára af framkvæmd gildandi markaðssetningarlaga hefur einnig leitt í ljós að lögin virka um margt brotakennd og óaðgengileg og talsvert er um skörun og tvítekningu efnisreglna. Þá eru ákvæði laganna sem innleiða Evrópugerðir mörg hver ekki nógu skýr eða gagnsæ til tryggja samræmda túlkun og beitingu þeirra á Evrópska efnahagssvæðinu, auk þess sem skort hefur á samþættingu þeirra við önnur ákvæði laganna. Markmið frumvarpsins er m.a. að ný markaðssetningarlög tryggi virka samkeppni í viðskiptum og öfluga neytendavernd sem tekur mið af tækniþróun síðustu ára. Einnig að lögin séu einföld, skýr, aðgengileg og tæknihlutlaus og leggi ekki óþarfa byrðar á atvinnulífið. Er þannig stutt við það markmið í stefnu stjórnvalda að stuðla að öflugri neytendavernd og hagstæðum rekstrarskilyrðum fyrirtækja. Með frumvarpinu er auk þess lagt til að innleiða hluta tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/2161 um breytingu á tilskipun ráðsins 93/13/EBE og tilskipunum Evrópuþingsins og ráðsins 98/6/EB, 2005/29/EB og 2011/83/ESB að því er varðar betri framfylgd og nútímavæðingu reglna Sambandsins um neytendavernd. Auk þess er með frumvarpinu lagt til að innleiða hluta tilskipunar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/771 frá 20. maí 2019 um tiltekna þætti varðandi samninga um sölu á vörum, um breytingu á reglugerð (ESB) 2017/2394 og tilskipun 2009/22/EB og um niðurfellingu tilskipunar 1999/44/EB. Verði frumvarpið að lögum er ekki gert ráð fyrir að lagasetningin hafi í för með sér kostnað fyrir ríkissjóð.

S-181/2025· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 23. sep. 2025 – 7. okt. 2025· 8 umsagnir

Drög að frumvarpi til markaðssetningarlaga

Frumvarpið felur í sér heildarendurskoðun á lögum nr. 57/2005, lögum nr. 62/2005 og lögum nr. 20/2020. Tillaga frumvarpsins er að ný markaðssetningarlög leysi framangreind lög af hólmi.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-181/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. október 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 234)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.