Frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum nr. 138/2011
Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-180/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 13. október 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 47 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 505)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (5. mars 2026)
Innviðaráðherra mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi 5. mars 2026. Fjallað er um niðurstöður samráðsins í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu og í skýrslu um samráð sem hér er birt.
- Frumvarp til laga um breytingar á sveitarstjórnarlögum
- Endurskoðun á fjármálakafla sveitarstjórnarlaga
- Fjölkjarna sveitarfélög
- Yfirlitsskjal
- Vinnustofur um samvinnu sveitarfélaga
- Glærukynning
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (47)
- #1Oddrún Ásta Sverrisdóttir
Mér finnst þessar breytingar góðar og styð þær heils hugar.
- #2Gísli Örn Guðmundsson
Umsögn vegna frumvarps til breytinga á sveitarstjórnarlögum. Undirritaður vill með þessari umsögn gera alvarlegar athugasemdir við ákvæði í frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum sem lúta að skyldusameiningu fámennra sveitarfélaga og breytingum á lýðræðislegum réttindum íbúa þeirra. Frumvarpið kveður á um að ráðherra skuli hafa frumkvæði að sameiningu sveitarfélaga sem hafa færri en 250 íbúa og að íbúakosningar séu ekki lengur skylda heldur valkvæð ákvörðun ráðherra. Slík breyting felur í sér grundvallarbreytingu á stjórnskipulegri stöðu sveitarfélaga á Íslandi og rýrir lýðræðislegt… Lesa alla
Umsögn vegna frumvarps til breytinga á sveitarstjórnarlögum. Undirritaður vill með þessari umsögn gera alvarlegar athugasemdir við ákvæði í frumvarpi til breytinga á sveitarstjórnarlögum sem lúta að skyldusameiningu fámennra sveitarfélaga og breytingum á lýðræðislegum réttindum íbúa þeirra. Frumvarpið kveður á um að ráðherra skuli hafa frumkvæði að sameiningu sveitarfélaga sem hafa færri en 250 íbúa og að íbúakosningar séu ekki lengur skylda heldur valkvæð ákvörðun ráðherra. Slík breyting felur í sér grundvallarbreytingu á stjórnskipulegri stöðu sveitarfélaga á Íslandi og rýrir lýðræðislegt sjálfstæði þeirra í verulegum mæli. Skerðing lýðræðis og afnám sjálfsákvörðunarréttar íbúa. Í núgildandi sveitarstjórnarlögum (nr. 138/2011) er gert ráð fyrir að sameiningar sveitarfélaga fari eingöngu fram að frumkvæði sveitarstjórna og að íbúar hafi endanlegt ákvörðunarvald með kosningu. Þessi skipan tryggir að ákvörðun um framtíð sveitarfélags byggist á vilja íbúanna sjálfra. Með nýju frumvarpi er þessi lýðræðislegi réttur tekinn af íbúum fámennra sveitarfélaga. Ráðherra fær sjálfstæða heimild til að hefja sameiningarferli án samþykkis sveitarstjórnar og án skyldu til að efna til íbúakosningar. Þetta þýðir í reynd að ákvörðunarvald íbúa og sveitarstjórna yfir eigin málum flyst frá þeim til ríkisvaldsins. Fyrir sveitarfélög með færri en 250 íbúa, jafngildir þetta því að íbúar þeirra sveitarfélaga séu sviptir þeim sjálfsagða rétti að eiga sjálfir lokaorðið um framtíð sveitarfélags síns og verða háðir stjórnsýslulegu mati ráðherra á því hvort þau „megi“ halda áfram sem sjálfstæð eining. Þetta gengur þvert gegn þeirri lýðræðislegu hugsjón sem hefur verið grundvallarþáttur í íslensku samfélagi frá upphafi. Brot á Evrópusáttmála um sjálfstjórn sveitarfélaga Ísland er aðili að Evrópusáttmála um sjálfstjórn sveitarfélaga, samþykktum af Evrópuráðinu árið 1985 og fullgiltum af Íslandi árið 2011. Samkvæmt 5. gr. sáttmálans skal: „Við allar breytingar á sveitarfélagamörkum skal ráðgast við viðkomandi sveitarfélög. Þar sem mögulegt er skal leitað til íbúa með þjóðaratkvæðagreiðslu.“ Frumvarpið, eins og það liggur fyrir, samræmist hvorki þessu ákvæði né anda sáttmálans. Það gerir ráð fyrir að ráðherra geti sameinað sveitarfélög án þess að ráðgast við íbúa með kosningu eða jafnvel án samþykkis sveitarstjórnar. Þetta er augljós frávik frá skuldbindingum Íslands samkvæmt 5. gr. og grefur undan þeim alþjóðlega grundvelli sem sjálfstjórn sveitarfélaga hvílir á. Stjórnskipuleg sjónarmið Samkvæmt 78. gr. stjórnarskrár Íslands skulu sveitarfélög ráða sjálf málefnum sínum „eftir því sem lög ákveða“. Það ákvæði hefur verið túlkað þannig að Alþingi geti sett almennar reglur, en ekki gengið svo langt að afnema raunverulegt sjálfstæði sveitarfélaga eða lýðræðislegt vald íbúa þeirra. Þegar frumvarpið gerir ráð fyrir að ráðherra hafi vald til að sameina sveitarfélög gegn vilja íbúa eða sveitarstjórnar, eru þau mörk hugsanlega farin að rofna. Þetta felur í sér verulega fækkun sjálfstæðra lýðræðiseininga í landinu án þess að íbúar fái sjálfir að taka afstöðu til þess. Tillögur og ábendingar Að ákvæði frumvarpsins verði endurskoðuð þannig að íbúakosning verði lögbundin áður en ráðherra getur ákveðið sameiningu sveitarfélags. Að ákvæði um undanþágu verði styrkt þannig að ráðherra geti ekki einhliða hafnað beiðni sveitarfélags um áframhaldandi sjálfstæði ef íbúar þess hafa lýst yfir skýrum vilja til sjálfstjórnar. Að tryggt verði að allar breytingar á sveitarfélagamörkum séu gerðar í samræmi við 5. gr. Evrópusáttmálans og með raunverulegu samráði við íbúa. Niðurstaða Frumvarpið, eins og það er framsett, felur í sér alvarlega skerðingu á lýðræðislegum réttindum íbúa fámennra sveitarfélaga og getur talist brjóta í bága við 5. gr. Evrópusáttmálans um sjálfstjórn sveitarfélaga. Það gengur gegn grundvallarhugmyndum um sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga og lýðræðislega þátttöku íbúa í ákvörðunum sem varða þeirra eigið samfélag. Sveitarstjórnarstigið er grunnstoð lýðræðis í landinu. Það er á ábyrgð Alþingis og ráðuneytisins að tryggja að endurskoðun laganna verði gerð í sátt við íbúalýðræði, stjórnarskrá og alþjóðlegar skuldbindingar Íslands.
- #3Landssamtökin Þroskahjálp
Meðfylgjandi er umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar
- #4Fjórðungssamband Vestfirðinga
Fjórðungssamband Vestfirðinga hefur ekki efnislegar athugasemdir við tillögur er varða 97. gr, um landshlutasamtök sveitarfélaga. Fjórðungssambandið vísar að öðru leyti til umsagna aðildarsveitarfélaga sambandsins við aðrar tillögur samráðsskjalsins.
- #5Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
Meðfylgjandi er umsögn stjórnar SSNV.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.