Áform um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun vegna vindorku og verndarflokks áætlunarinnar
Lagðar verða til breytingar á lögum til að skýra reglur um meðhöndlun vindorku innan rammaáætlunar auk breytinga sem miða að almennari vernd virkjunarkosta í verndarflokki hennar.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-178/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 13. október 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 14 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 565)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (14)
- #1Storm orka ehf.
StormOrka ehf skorar á umhverfis- orku og loftslagsráðherra og Alþingi að flýta uppbyggingu grænnar raforku áður en í óefni stefnir með því að fella niður rammaáætlun, stytta leyfisveitingaferli fyrir græna orku í 1 ár og að einungis verði um 1 leyfi að ræða. Meðfylgjandi eru ábendingar, lagalegur rökstuðningur og almenn reifun málsins, sett fram í umsögn StormOrku ehf í máli nr. S-178/2025
- #2Bændasamtök Íslands
Umsögn Bændasamtaka Íslands um áform um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun vegna vindorku og verndarflokks áætlunarinnar
- #3Samband íslenskra sveitarfélaga
Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga
- #4Samtök orkusveitarfélaga
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka orkusveitarfélaga
- #5Samtök ferðaþjónustunnar
Góðan dag, í viðengi er umsögn Samtaka ferðaþjónustunnar um áform um breytingu á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun vegna vindorku og verndarflokks áætlunarinnar. Með góðum kveðjum f.h. SAF Gunnar Valur Sveinsson
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.