Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-177/2025 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn

Kynnt eru drög frumvarps til laga er miðar að því að skapa bæði lagaramma og stofnanaramma um framkvæmd einstaklingsbundinna öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember).

Á grundvelli áforma sem kynnt voru í sumar (mál nr. S-127/2025) og í samræmi við þingmálaskrá félags- og húsnæðismálaráðherra vegna nýhafins löggjafarþings, eru hér kynnt drög frumvarps til laga um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn. Dómsmálaráðherra hyggst samhliða leggja fram frumvarp til laga um breytingar á VII. kafla almennra hegningarlaga og er frumvarpsdrög þar að lútandi væntanleg í samráðsgátt. Um er að ræða drög frumvarps sem miðar að því að skapa bæði lagaramma og stofnanaramma um framkvæmd einstaklingsbundinna öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn. Markmið með fyrirhugaðri lagasetningu er að bæta lagaumhverfi og framkvæmd öryggisráðstafana og gera úrbætur í málefnum einstaklinga sem með dómsúrlausn er gert að sæta slíkum ráðstöfunum. Þannig er frumvarpinu ætlað að bæta úr annmörkum á framkvæmd öryggisráðstafana hér á landi sem eftirlitsaðilar hafa bent á, m.a. umboðsmaður Alþingis. Settar verði skýrar lagaheimildir þegar nauðsyn ber til að grípa inn í réttindi einstaklinga. Einnig er ætlunin að bæta réttarstöðu þeirra einstaklinga sem í hlut eiga og skýra ábyrgð og framkvæmd til skýrleika fyrir alla þá sem að þessum málum koma. Þá mun frumvarpið fela í sér að ný stofnun félags- og húsnæðismálaráðuneytis verði stofnuð og beri heitið Miðstöð um öryggisráðstafanir. Hlutverk stofnunarinnar verður að annast framkvæmd öryggisráðstafana skv. VII. kafla hegningarlaga, auk annarra verkefna í samræmi við ákvæði frumvarpsins. Frumvarpinu er jafnframt ætlað að tryggja viðeigandi málsmeðferð í þeim afar sjaldgæfu tilvikum þegar börn sem náð hafa sakhæfisaldri sæta öryggisráðstöfunum samkvæmt dómsúrlausn. Framkvæmd vistunar og þjónusta við börn sem sæta öryggisráðstöfunum verður þó á ábyrgð barnaverndaryfirvalda í samvinnu við nýja stofnun. Allar ákvarðanir skulu taka mið af því sem barni er fyrir bestu. Markmiðið er einnig að tryggja að fólk sem þarf á öryggisráðstöfunum að halda fái bestu velferðarþjónustu sem kostur er á, í samræmi við þarfir þess hverju sinni. Þá skal tryggja að inngrip í réttindi einstaklinga verði hvorki umfangsmeiri né standi lengur en nauðsyn ber til. Frumvarpið miðar þannig bæði að því að vernda réttindi viðkomandi einstaklinga og að tryggja öryggi og almannahagsmuni. Þá er samhæfing og samstarf milli ráðuneyta og undirstofnana þeirra, sem og á milli ríkis og sveitarfélaga, lykilatriði við þá lagaframkvæmd sem frumvarpið leggur grunninn að.

S-177/2025· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. sep. 2025 – 12. okt. 2025· 11 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn

Kynnt eru drög frumvarps til laga er miðar að því að skapa bæði lagaramma og stofnanaramma um framkvæmd einstaklingsbundinna öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-177/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. október 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 11 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 305)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. febrúar 2026)

Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 19. september 2025 og var veittur frestur til og með 12. október til að veita umsagnir um drögin (mál nr. S-177/2025). Alls bárust 11 umsagnir um frumvarpið sem teknar voru til skoðunar við gerð frumvarpsins. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 27. janúar 2026, sbr. hlekk hér fyrir neðan.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (11)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-177/2025: Drög að frumvarpi til laga um öryggisráðstafanir samkvæmt dómsúrlausn · Alviti