Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-176/2025 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október).

Í frumvarpinu eru gerðar tillögur til breytinga á skipulagslögum og lögum um Húsnæðis- og mannvirkjastofnun auk þess sem lagðar eru til breytingar á ákvæðum fleiri laga sem leiða af þeim breytingum. Lagt er til að starfsemi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Skipulagsstofnunar verði sameinuð þannig að verkefni Skipulagsstofnunar renni inn í Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og að heiti stofnunarinnar verði breytt í Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun og að öll stjórnsýsla skipulagsmála og verkefni Skipulagsstofnunar verði á höndum stofnunarinnar. Með sameiningu starfsemi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Skipulagsstofnunar verður allur ferillinn, frá skipulagi til fullbúins mannvirkis, á höndum einnar stofnunnar gagnvart sveitarfélögum, fasteignaeigendum og öðrum hagsmunaaðilum. Jafnframt er markmiðið að auka bolmagn hins opinbera á sviði skipulagsmála með samlegðaráhrifum af rekstri málaflokksins í stærri stofnun og samþættingu við aðra málaflokka á sama sviði. Þá er sameiningunni ætlað að mæta auknum kröfum um betri heildaryfirsýn yfir þróun byggðar, sjálfbæra landnotkun, húsnæðisþörf og nýtingu auðlinda.

S-176/2025· Drög að frumvarpi til laga· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. sep. 2025 – 10. okt. 2025· 12 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-176/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. október 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 12 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 256)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (18. febrúar 2026)

Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt 19.9.2025 - 10.10.2025. Alls bárust tólf umsagnir um frumvarpið sem teknar voru til skoðunar við gerð frumvarpsins. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 14. október 2025, sbr. hlekk hér fyrir neðan.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (12)
  • #2Skagafjörður
    Byggðarráð Skagafjarðar lítur það jákvæðum augum að starfsemi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Skipulagsstofnunar verði sameinuð undir hatti einnar stofnunar en við það verður allur ferillinn, frá skipulagi til fullbúins mannvirkis, á höndum einnar stofnunar gagnvart sveitarfélögum, fasteignaeigendum og öðrum hagsmunaaðilum. Samhliða breytingunum þarf að tryggja hraða og öfluga stafræna þróun. Byggðarráð bendir stjórnvöldum einnig á að við sameiningu stofnana skapast tækifæri til að fjölga störfum á vegum ríkisins á landsbyggðinni en sem kunnugt er hallar verulega á landsbyggðina í þeim efn… Lesa alla

    Byggðarráð Skagafjarðar lítur það jákvæðum augum að starfsemi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar og Skipulagsstofnunar verði sameinuð undir hatti einnar stofnunar en við það verður allur ferillinn, frá skipulagi til fullbúins mannvirkis, á höndum einnar stofnunar gagnvart sveitarfélögum, fasteignaeigendum og öðrum hagsmunaaðilum. Samhliða breytingunum þarf að tryggja hraða og öfluga stafræna þróun. Byggðarráð bendir stjórnvöldum einnig á að við sameiningu stofnana skapast tækifæri til að fjölga störfum á vegum ríkisins á landsbyggðinni en sem kunnugt er hallar verulega á landsbyggðina í þeim efnum á meðan höfuðborgarsvæðið er eini landshlutinn þar sem hlutfall stöðugilda ríkisins er hærra en hlutfall íbúa. Með eflingu opinberrar starfsemi á landsbyggðinni er unnið í samræmi við stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar við að treysta stoðir hinna dreifðu byggða og jafnt aðgengi að opinberri þjónustu, óháð búsetu.

  • #3Slökkvilið höfuðborgarsvæðis bs.
    Sem slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri almannavarna fagna ég þeirri stefnu að sameina Skipulagsstofnun og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Slík sameining styrkir heildarsýn á ferli mannvirkjagerðar, allt frá skipulagsstigi til tilbúins mannvirkis, og einfaldar jafnframt stjórnsýsluna. Ég tel tillögur frumvarpsins vel ígrundaðar og í samræmi við stefnu stjórnvalda um bætt skipulag og aukið öryggi. Mikilvægt er þó að tryggja að skýrar leiðbeiningar um aðgengi neyðarþjónustu, vatnsþörf og rýmingarmál verði ófrávíkjanlegur hluti skipulagsskilmála. Þá þarf sérstaklega að taka mið af þörfum… Lesa alla

    Sem slökkviliðsstjóri og framkvæmdastjóri almannavarna fagna ég þeirri stefnu að sameina Skipulagsstofnun og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS). Slík sameining styrkir heildarsýn á ferli mannvirkjagerðar, allt frá skipulagsstigi til tilbúins mannvirkis, og einfaldar jafnframt stjórnsýsluna. Ég tel tillögur frumvarpsins vel ígrundaðar og í samræmi við stefnu stjórnvalda um bætt skipulag og aukið öryggi. Mikilvægt er þó að tryggja að skýrar leiðbeiningar um aðgengi neyðarþjónustu, vatnsþörf og rýmingarmál verði ófrávíkjanlegur hluti skipulagsskilmála. Þá þarf sérstaklega að taka mið af þörfum slökkviliða og annarra viðbragðsaðila og jafnframt horfa til almannavarna strax í skipulagsferlinu. Þar má m.a. nefna að viðbragðstími slökkviliða ræðst að verulegu leyti af skipulagi gatna, aðkomuleiða og staðsetningu bækistöðva. Nauðsynlegt er því að í byrjunarfasa skipulagsvinnu nýrra hverfa sé metið hvort gera þurfi ráð fyrir lóð fyrir slökkvistöð eða bækistöð viðbragðsaðila, svo sem slökkviliðs, lögreglu eða sjúkraflutninga. Slík lóð verður að vera valin með hliðsjón af staðsetningu við stofnbraut, þannig að tryggð sé sem besta nýting á uppsettu afli, að viðbragðstími sé ásættanlegur og að kröfur um viðbragðstíma séu uppfylltar. Skipulag nýrra hverfa verður ætíð að skoðast með þetta að leiðarljósi frá upphafi. Sé það ekki gert getur fjárfesting í nýrri stöð á óheppilegum stað orðið mun lakari fjárfesting í öryggi almennings en að velja bestu staðsetningu í upphafi skipulags hverfisins. Sameining stofnananna er því mikilvægt og eðlilegt skref sem mun efla öryggi, fagmennsku og skilvirkni í þjónustu við almenning. Rétt er að minna á að sameining Íbúðalánasjóðs og Mannvirkjastofnunar í HMS reyndist farsæl og eðlilegt framhald er að sameina Skipulagsstofnun við HMS til að tryggja samræmda stjórnsýslu og samfellu í þjónustu. Kveðja, Jón Viðar Matthíasson.

  • #4Samtök atvinnulífsins

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins.

  • #5ÖBÍ réttindasamtök

    Ágæti viðtakandi, Í viðhengi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um drög að frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, mál nr. S-176/2025

  • #6Runólfur Vigfússon

    Meðfylgjandi er umsögn FÍN - Félags íslenskra náttúrufræðinga

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-176/2025: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar · Alviti