Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-175/2025 · Dómsmálaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020 (skýrslugjöf um kynbundinn launamun)

Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, sem varða skyldu fyrirtækja og stofnana til jafnlaunavottunar og jafnlaunastaðfestingar.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember).

Í frumvarpi þessu er lagt til að skylda til jafnlaunavottunar verði aflögð í núverandi mynd án þess þó að hvikað verði frá markmiðum laga nr. 150/2020 um að sporna gegn launamismunun á grundvelli kyns. Áfram verður skylda fyrir fyrirtæki og stofnanir af tiltekinni stærð að skila inn gögnum um starfaflokkun ásamt launagreiningu til að sýna fram á að launasetning þeirra byggist á málefnalegum sjónarmiðum og að þau viðmið sem lögð eru til grundvallar feli ekki í sér kynbundna mismunun. Þannig verði áfram tryggt að laun séu ákvörðuð á sama hátt fyrir alla óháð kyni. Lagt er til að slík skýrslugjöf fari fram á þriggja ára fresti. Í stað jafnlaunavottunar verði fyrirtækjum og stofnunum þannig gert að skila til Jafnréttisstofu gögnum um starfaflokkun og launagreiningu, ásamt tímasettri úrbótaáætlun, ef kynbundinn launamunur mælist, þar sem fram kemur hvernig brugðist skuli við og hvernig hann verði leiðréttur. Einnig er í frumvarpinu lagt til að stærðarmörk verði rýmkuð og að miða skuli við fyrirtæki og stofnanir þar sem 50 eða fleiri starfa að jafnaði á ársgrundvelli. Lagt er til að sama regla gildi fyrir öll fyrirtæki og stofnanir, jafnt á almenna og opinbera vinnumarkaðnum. Þó er lagt til að undantekning taki til Stjórnarráðsins þannig að öll ráðuneyti skuli skila gögnum samkvæmt lögunum óháð starfsmannafjölda. Með breytingunni í frumvarpinu er komið til móts við gagnrýni um mikinn kostnað við ferli jafnlaunavottunar en fyrirtækjum og stofnunum er engu að síður gert skylt sem fyrr að skila nauðsynlegum gögnum um kynbundinn launamun og gera úrbætur þar sem þess gerist þörf. Markmið laga um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna er óbreytt og enn verður farið fram á upplýsingar frá atvinnurekendum um kynbundinn launamun í formi skýrslugjafar og eftir atvikum úrbótaáætlana og skýringa á kynbundnum launamun og frávikum. Ábyrgð atvinnurekenda til að ná fram launajafnrétti er rík og það er eðlileg krafa að launakerfi séu gagnsæ og að launaákvarðanir byggi á málefnalegum sjónarmiðum. Einnig er gert ráð fyrir að gild jafnréttisáætlun skv. 5. gr. sé forsenda þess að fyrirtæki eða stofnun geti lokið skýrslugjöf um kynbundinn launamun.

S-175/2025· Drög að frumvarpi til laga· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 19. sep. 2025 – 13. okt. 2025· 12 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020 (skýrslugjöf um kynbundinn launamun)

Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, sem varða skyldu fyrirtækja og stofnana til jafnlaunavottunar og jafnlaunastaðfestingar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-175/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 13. október 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 12 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 297)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (22. desember 2025)

Eftir yfirferð umsagna í samráðsgátt er lögð til sú breyting að miða skuli við sömu meginviðmið við flokkun starfa og mat á störfum í samræmi við alþjóðleg viðmið og til að tryggja samræmi og samfellu í skýrslugjöf, auk þess að einfalda rafræn skil gegnum þjónustugátt og gera rafræna yfirferð skilvirkari um að gögn uppfylli lagakröfur jafnréttislaga. Að öðru leyti þótti ekki tilefni til breytinga á frumvarpinu eftir yfirferð umsagna. Sjá umfjöllun í niðurstöðuskjali.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (12)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-175/2025: Frumvarp til laga um breytingar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020 (skýrslugjöf um kynbundinn launamun) · Alviti