Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október).
Frumvarpið miðar að því að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2102, sem felld var inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 59/2021. Markmiðið er að tryggja með lögum að vefsetur og smáforrit opinberra aðila séu aðgengileg öllum, sérstaklega fötluðu fólki, og þannig stuðla að jafnrétti og virkri þátttöku í samfélaginu. Heimild til innleiðingar tilskipunarinnar var í frumvarpi til laga um skipan upplýsingatækni í rekstri ríkisins sem var lagt fram á sl. löggjafarþingi án þess að verða að lögum. Nú stendur til að gera sérstakt frumvarp um innleiðinguna.
Núgildandi aðgengisstefna stjórnvalda frá árinu 2012 er ekki lagalega bindandi og skortir formleg ákvæði um eftirlit, vöktun og skilvirkar úrlausnarleiðir, sem eru skýr skilyrði í tilskipuninni. Úrlausnarefnið er því að lögfesta skyldur opinberra aðila og koma á fót virku eftirlitskerfi.
Fyrirhugað er að setja rammalög sem mæla fyrir um meginreglur, gildissvið og skyldur opinberra aðila. Lögin munu veita ráðherra víðtæka heimild til að útfæra tæknilegar kröfur og staðla (t.d. með vísun í Evrópustaðalinn EN 301 549), verklag við vöktun og form aðgengisyfirlýsinga í reglugerð. Þessi leið er talin heppileg þar sem hún veitir nauðsynlegan sveigjanleika til að bregðast við hraðri tækniþróun.
Helstu áhrif lagasetningarinnar eru metin sem hér segir:
Samfélagsleg áhrif: Áhrifin eru talin mjög jákvæð og er það meginmarkmið laganna. Þau munu tryggja grundvallarréttindi fatlaðs fólks til aðgangs að upplýsingum og þjónustu og hafa einnig jákvæð áhrif á eldri borgara, fólk með lesblindu og aðra hópa. Lögin eru talin hafa jákvæð áhrif á jafnrétti kynjanna, þar sem konur eru í meirihluta meðal öryrkja og eldri borgara og nýta opinbera þjónustu oftar. Samfélagslegur ávinningur af auknu jafnrétti og stafrænni þátttöku er metinn mun meiri en kostnaðurinn sem af lögunum hlýst.
Fjárhagsáhrif á ríkissjóð: Nettóáhrif á ríkissjóð eru neikvæð. Þau felast í varanlegum árlegum rekstrarkostnaði vegna nýs eftirlitsaðila, sem áætlað er að krefjist allt að eins stöðugildis auk kostnaðar við hugbúnað og aðkeypta þjónustu. Einnig kann að skapast tímabundinn, óbeinn kostnaður hjá ríki og sveitarfélögum vegna nauðsynlegra úrbóta á vefsvæðum og smáforritum. Ekki er gert ráð fyrir tekjuáhrifum fyrir ríkið. Ekki hefur verið gert ráð fyrir kostnaðinum í gildandi fjárlögum eða fimm ára fjármálaáætlun, en gert er ráð fyrir að honum verði mætt innan útgjaldaramma málaflokksins.
Efnahagsáhrif: Áhrif á atvinnulífið eru metin jákvæð. Lögfesting samræmdra, skýrra krafna eykur fyrirsjáanleika fyrir fyrirtæki í upplýsingatæknigeiranum sem þjónusta hið opinbera. Þetta getur stuðlað að virkari samkeppni og örvað vöxt með aukinni eftirspurn eftir sérhæfðri þekkingu á sviði vefaðgengis.
Til að lagasetningin nái markmiðum sínum er lögð áhersla á að einn ábyrgur eftirlitsaðili með skýrt umboð verði tilnefndur, opinberir aðilar fái fullnægjandi fræðslu og stuðning og að virk vöktun fari fram. Árangur verður metinn með kerfisbundinni gagnaöflun, m.a. með hlutfalli aðgengilegra vefsetra og fjölda ábendinga frá notendum, og með skýrslugjöf til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).
S-170/2025· Áform um lagasetningu· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 16. sep. 2025 – 28. sep. 2025· 4 umsagnir
Aðgengi að vefsetrum og smáforritum opinberra aðila
Innleidd er tilskipun sem miðar að því að tryggja að vefsetur og smáforrit hins opinbera uppfylli aðgengiskröfur.
Fjórar umsagnir bárust þar sem áformum var fagnað. Ábendingar sneru að innleiðingu, s.s. samráði, notendaprófunum og skýrri ábyrgð, auk athugasemda um rafræn skilríki. Tekið verður mið af ábendingum við innleiðingu laganna.
Ég fagna þessum áformum fjármála- og efnahagsráðuneytisins um bætt aðgengi mismunandi hópa að rafrænum upplýsinga- og samskiptaveitum hins opinbera. Sérstaklega er mikilvægt að huga að því að ekki hafa öll færi á því að nota snjallsíma og eru þannig í mörgum tilfellum útilokuð frá því að sinna erindum gagnvart opinberum aðilum. Þannig má horfa til þess að allir notendur geti nýtt auðkenningu (t.d. þjónustu Auðkennis sem nú er alfarið í eigu ríkisins) til að fá aðgang að netbanka, vefsíðum Skattsins, vefsíðu Tryggingastofnunar og ekki síst aðgang að vefnum island.is. Til eru lausnir sem hægt er…Lesa alla
Ég fagna þessum áformum fjármála- og efnahagsráðuneytisins um bætt aðgengi mismunandi hópa að rafrænum upplýsinga- og samskiptaveitum hins opinbera. Sérstaklega er mikilvægt að huga að því að ekki hafa öll færi á því að nota snjallsíma og eru þannig í mörgum tilfellum útilokuð frá því að sinna erindum gagnvart opinberum aðilum. Þannig má horfa til þess að allir notendur geti nýtt auðkenningu (t.d. þjónustu Auðkennis sem nú er alfarið í eigu ríkisins) til að fá aðgang að netbanka, vefsíðum Skattsins, vefsíðu Tryggingastofnunar og ekki síst aðgang að vefnum island.is. Til eru lausnir sem hægt er að nota til auðkenningar án þess að þurfa snjallsíma. Þjónustunotendur ættu að hafa aðgang að auðkenniskubbum (USB) sem styðjast við FIDO2 staðal og eru til dæmis með fingrafarsauðkenningu. Þannig gætu einstaklingar með fatlanir eða sem eru í mjög flóknum félagslegum aðstæðum átt lykil hjá aðstoðarmanneskju, t.d. á þjónustumiðstöð og gætu þannig komið á miðstöðina til að sinna sínum erindum. Lykillinn er ekki nothæfur nema viðkomandi einstaklingur leggi til fingrafar en er á sama tíma geymdur á öruggum stað og alltaf tiltækur. Fleiri hópar sem ekki hafa aðgang að eða geta ekki notað snjallsíma myndu hafa gagn af lausn sem þessari.
#2ÖBÍ réttindasamtök
Góðan daginn,
Meðfylgjandi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaka.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)