Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, nr. 88/2008 og lögreglulaga, nr. 90/1996 (embætti ákæruvalds og lögreglu)
Áformað er að færa skipunarvald ráðherra þegar kemur að æðstu embættum ákæruvalds og lögreglu til forstöðumanna embætta sem framvegis munu skipa næstráðendur sína til 5 ára.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-162/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 22. september 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
- #1Kristinn Ríkharðsson
Það ætti að gilda það sama um ríkissaksóknara og vararíkissaksóknara. Skipunartími beggja ætti að vera 5 ár.
- #2Þorsteinn Gíslason
Það ætti að gilda það sama um ríkissaksóknara og aðra embættismenn
- #3Grétar S. Gunnarsson
Hætta öllum æviráðningum hjá ríkinu hafa frekar að ríkisstarfsmaður hafi ákveðinn ráðningatíma ef viðkomandi er að skila góðu starfi og vill halda áfram þá framlengist starfið um 5-10 ár. Þetta gæti gert störf hjá Ríkinu skilvikari.
- #4Uni Gíslason
Það er ekki ljóst að ráðherra skilji hvers vegna æviráðið hefur verið í þessi embætti hingað til, en þetta er hliðstæða við dómaraskipanir sem einnig eru æviráðningar. Þannig er þetta æviráðning til að tryggja eins vel og hægt er að viðkomandi embættismaður sé undir engum þrýstingi og ekki sé hægt að hafa áhrif á ákvarðanir hans. Það er ekki hægt að hóta honum brottrekstri eða kjaraskerðinga ef hann lætur ekki eftir utanaðkomandi vilja yfirvalda. Það er einmitt sérstaklega mikilvægt þegar kemur að handhöfum dómsvalds og hér á landi einnig ákæruvalds. Það virðist frekar að ráðherra og senni… Lesa alla
Það er ekki ljóst að ráðherra skilji hvers vegna æviráðið hefur verið í þessi embætti hingað til, en þetta er hliðstæða við dómaraskipanir sem einnig eru æviráðningar. Þannig er þetta æviráðning til að tryggja eins vel og hægt er að viðkomandi embættismaður sé undir engum þrýstingi og ekki sé hægt að hafa áhrif á ákvarðanir hans. Það er ekki hægt að hóta honum brottrekstri eða kjaraskerðinga ef hann lætur ekki eftir utanaðkomandi vilja yfirvalda. Það er einmitt sérstaklega mikilvægt þegar kemur að handhöfum dómsvalds og hér á landi einnig ákæruvalds. Það virðist frekar að ráðherra og sennilega ráðuneytið einnig, telji að vara-ríkissaksóknari sé "aðstoðar-ríkissaksóknari", en svo er ekki. Hann er ekki til aðstoðar, hann er til vara þegar settur ríkissaksóknari getur ekki uppfyllt skyldur sínar, sökum vanhæfni eða annarra ástæðna. Ef að ráðherra vill búa til embætti aðstoðar-ríkissaksóknara með þessu móti sem tillagan hér snýr að, þá er það sjálfsagt besta mál, en mjög óheppilegt að vara-ríkissaksóknari sé þannig settur að t.d. vanhæfur ríkissaksónari geti leiðbeint og haft áhrif á varamann sinn, enda sá sem skipar hann í embætti og ræður or rekur. Nú er tækifæri til að hugsa aðeins um góða og ábyrga stjórnsýslu í stað þess að gera hér fullkomið glapræði eins og lagt er til.
- #5Sigfús Aðalsteinsson
ÞAð á klárlega að afnema allar æviráðningar ríkisstarfsmanna, algerlega rangt að skilja þá æðstu eftir með slíka ráðningu.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.