Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-160/2025 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Áform um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember).

Samkvæmt fyrirhuguðum breytingum verður ábyrgð á eftirliti með hollustuháttum og mengunarvörnum færð frá heilbrigðiseftirliti til Umhverfis- og orkustofnunar og ábyrgð á eftirliti með matvælum færist frá heilbrigðiseftirliti til Matvælastofnunar. Þannig verða eftirlitsaðilar tveir í stað ellefu. Útgáfa starfsleyfa verður miðlæg og á vegum fyrrgreindra stofnana. Markmið breytinganna er aukið samræmi eftirlits, einföldun og skilvirkni, en fyrir liggja greiningar og skýrslur sem sýna skort á samræmi, skýrri ábyrgð og yfirstjórn eftirlits. Þá liggur fyrir áminningarbréf frá Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) vegna eftirlits með matvælum. Áformaðar breytingar eru skýrt svar við framangreindum ábendingum. Staðbundnum verkefnum heilbrigðiseftirlits verður fundinn staður innan stjórnsýslunnar í samráði við sveitarfélög. Þá er rétt að árétta að lagt er upp með að standa vörð um störfin á landsbyggðinni. Sjá hér frétt um áformin, þar sem jafnframt er hlekkur á skýrslu stýrihóps; https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2025/09/02/Storfelld-einfoldun-regluverks-ur-ellefu-eftirlitsadilum-i-tvo/ Fyrirhugað frumvarp er unnið í samstarfi við atvinnuvegaráðuneytið.

S-160/2025· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. sep. 2025 – 19. sep. 2025· 34 umsagnir

Áform um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingar á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-160/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 19. september 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 34 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 582)
Niðurstöður samráðs (18. nóvember 2025)

Umsagnir um áformaskjalið verða teknar til skoðunar við vinnslu fyrirhugaðs frumvarps. Þegar það frumvarp liggur fyrir verður það sett í Samráðsgátt og kostur gefinn á athugasemdum.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (34)
  • #1Svavar Kjarrval Lúthersson
    Andmælt er yfirlýsingu í lið D7 í mati á áhrifum um að þetta hafi ekki áhrif á lýðheilsu, nema staðhæfing um aukna skilvirkni sé yfirskyn. Einn tilgangur eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum er bætt lýðheilsa, þar á meðal sporna gegn slæmri heilsu þjóðarinnar almennt. Það væri varla tilefni fyrir Eftirlitsstofnun EFTA að kvarta yfir óskilvirku eftirliti ef einu breytingarnar sem hægt væri að fara í myndi ekki hafa nein marktæk áhrif á lýðheilsu. Aukin skilvirkni ætti að þýða aukin geta til þess að sinna hlutverkinu sem fyrirkomulaginu var ætlað að gegna, sem í þessu tilviki er að kom… Lesa alla

    Andmælt er yfirlýsingu í lið D7 í mati á áhrifum um að þetta hafi ekki áhrif á lýðheilsu, nema staðhæfing um aukna skilvirkni sé yfirskyn. Einn tilgangur eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum er bætt lýðheilsa, þar á meðal sporna gegn slæmri heilsu þjóðarinnar almennt. Það væri varla tilefni fyrir Eftirlitsstofnun EFTA að kvarta yfir óskilvirku eftirliti ef einu breytingarnar sem hægt væri að fara í myndi ekki hafa nein marktæk áhrif á lýðheilsu. Aukin skilvirkni ætti að þýða aukin geta til þess að sinna hlutverkinu sem fyrirkomulaginu var ætlað að gegna, sem í þessu tilviki er að koma á og viðhalda góðri lýðheilsu, auk þess að viðhalda ákveðnum lágmarksgæðum á matvöru sem er flutt innan aðildarríkja EES. Að sama skapi er andmælt viðhorfinu í E-lið skjalsins með áformum um lagasetningu um að áformin komi eingöngu inn á svið 78. gr. stjórnarskrárinnar, enda augljóst að uppsprettan af þessum breytingum er sú að uppfylla betur EES-samninginn í kjölfar áminningarbréfs frá Eftirlitsstofnun EFTA. Það færi beinlínis gegn hlutverki og valdsviði eftirlitsstofnunarinnar að skipta sér af öðrum málefnum íslenska ríkisins en því sem hefur (næga) tengingu við EES-samninginn. Þrátt fyrir þessar skammir er fagnaðarefni að stjórnarráðið sé að setja af stað endurskoðun á heilbrigðiseftirlitinu. Svo best umsagnaraðili veit er eingöngu eitt heilbrigðiseftirlit sem birtir mat sitt opinberlega en það er heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur (HER). Einn kosturinn við það er að almenningur hefur tækifæri til að sýna aðhald. Mötuneyti heilbrigðisráðuneytisins, þegar það var statt að Síðumúla 24, fékk 3 í heildareinkunn frá HER, þar af 3 fyrir matvæli. Mötuneyti starfsmanna í Ráðhúsi Reykjavíkurborgar, Tjarnargötu 11, fékk tvo í heildareinkunn í seinustu tveimur eftirlitsferðum HER, í bæði skiptin tvo í einkunn fyrir matvæli. Mötuneytið að Borgartúni 12-14, þar sem HER er skráð til húsa, er með þrjár skráðar eftirlitsferðir. Eftirlitsferðin 8. september 2020 leiddi til 2 í heildareinkunn og það gerði einnig eftirlitsferðin þann 20. október 2022, og svo 3 í heildareinkunn í eftirlitsferð HER þann 12. febrúar 2025. Matvælin í tilviki þess mötuneytis fengu ýmist 2 eða 3 í einkunn, sem á einkunnaskala HER þýðir aðkallandi frávik/ábendingar (2) eða frávik/ábendingar (3). Athuga skal að 4 í einkunn þýðir fáein frávik/ábendingar sem þýðir að til að fá 3 í einkunn þarf að vera einhver fjöldi til staðar, ekki í skilningnum einhver frávik eða einhverjar ábendingar. Það má spyrja sig af hverju umsagnaraðili er að þylja þetta upp. Þetta eru merki um að heilbrigðiseftirlitið, a.m.k. í tilviki HER, er ekki tekið alvarlega af stjórnsýslunni, hvort sem það er að hálfu heilbrigðisráðuneytisins eða jafnvel sveitarfélagsins sem einmitt rekur HER. Hvort sagan sé eins í öðrum svæðum heilbrigðiseftirlits eru ekki upplýsingar sem umsagnaraðili hefur undir höndum en hann hvetur ráðuneytið til að gera stikkprufur hvað það varðar. Það er ekki útilokað að ástæðuna megi rekja til þess að einkunnarskalinn hjá HER sé rangur/gallaður, en í því tilviki er ástæða til að hafa það í huga þegar reynt er að vinna að samræmingu eftirlitsins (þ.e. ekki taka upp kerfi HER í blindni). Ljóst er að hvatinn til þess að hlíta ábendingum heilbrigðiseftirlitsins, allavega er kemur að HER, er greinilega afar lítill á meðan aðstæður fari ekki á það stig að heilbrigðiseftirlitið telur sig nauðbeygt til þess að beita tafarlausri lokun. Ef það eru einvörðungu veitt fyrirmæli um að laga tiltekið atriði er eingöngu (stundum smávægilegur) hvati til þess að halda því atriði í lagi þar til næsta eftirlitsferð fer fram, en ekki til viðhalds á góðu ástandi. Ef svo væri myndi ástandið í mötuneytinu að Tjarnargötu 11 og Borgartúni 12-14 vera miklu betra. Það yrði talsvert betri skilvirkni ef starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins þyrfti ekki að gera heilmiklar skýrslur þar sem bent á sömu annmarkana aftur og aftur, ýmist án þess að þeir séu lagaðir eða þeir séu lagaðir tímabundið. Eftirlitsferðir þar sem ýmist allt er í lagi eða fáeinir annmarkar ættu ekki að leiða til þess að starfsfólkið hefur meiri tíma til að fara í eftirlitsferðir eða bregðast við í tilviki þeirra sem þrjóskast við að viðhalda heilnæmu umhverfi. Umsagnaraðili ítrekar mikilvægi þess að hið nýja kerfi tryggi aðhald almennings með því að hafa samræmt einkunnakerfi í boði fyrir öll svæði heilbrigðiseftirlitsins og að niðurstöður þess verði opinberar. Sömuleiðis ætti að auka aðgengi almennings að skýrslum heilbrigðiseftirlita með þeim hætti að almenningur þurfi ekki að biðja sérstaklega um þær.

  • #2Félag Heilbrigðis/umhverfisfull

    Í viðhengi er umsögn FHU um áform Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins um að leggja niður heilbrigðiseftirlit á Íslandi.

  • #3Samtök heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka heilbrigðiseftirlitssvæða á Íslandi.

  • #4Grímsnes-og Grafningshreppur
    Á 600. fundi sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps, þann 17. september 2025, var tekið fyrir mál nr. S-160/2025 til samráðs „Áform um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum“ og þannig bókað; Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps telur mörgum spurningum enn ósvarað varðandi fyrirhugaðrar breytingar á regluverki. Sveitarstjórn leggur áherslu á að þessi vinna sé í nánu samráði við sveitarfélögin, heilbrigðiseftirlitsnefndir og aðra hagaðila. Mikilvægt er að tryggja að fyrirhugaðar breytinga… Lesa alla

    Á 600. fundi sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps, þann 17. september 2025, var tekið fyrir mál nr. S-160/2025 til samráðs „Áform um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum“ og þannig bókað; Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps telur mörgum spurningum enn ósvarað varðandi fyrirhugaðrar breytingar á regluverki. Sveitarstjórn leggur áherslu á að þessi vinna sé í nánu samráði við sveitarfélögin, heilbrigðiseftirlitsnefndir og aðra hagaðila. Mikilvægt er að tryggja að fyrirhugaðar breytingar feli ekki í sér kostnaðarauka eða annað óhagræði fyrir sveitarfélögin. F.h. Sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri

  • #5Viðskiptaráð Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Viðskiptaráðs Íslands.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-160/2025: Áform um breytingu á ýmsum lögum vegna einföldunar regluverks og aukinnar skilvirkni eftirlits með hollustuháttum, mengunarvörnum og matvælum · Alviti