Áform um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-159/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 19. september 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 12 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (30. desember 2025)
Áform um framlagningu frumvarpsins voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 4. september 2025 og var veittur frestur til og með 19. september sama ár til að veita umsagnir um áformin. Alls bárust tólf umsagnir um áformin sem komu til skoðunar við lokavinnslu frumvarpsins. Drög að frumvarpinu voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda 15. –29. október 2025 (mál nr. S-206/2025).
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (12)
- #1Sigurður G Bjarnason
Hvað er ætlað að gera til að hjálpa fólki að fá vinnu. Sérstaklega þau okkur sem að erum komin yfir 50 og dæmnd með ónýta kennitölu. Ég er búinn að vera atvinnulaus í kringum 18 mánuði og þrátt fyrir að ég sé að gera allt sem ég kann og veit til að finna nýja vinnu og er að sækja um allt sem ég tel mig hafa séns á þá fæ ég valla viðtal. Af 54 stöðum sem að ég hef sótt um á síðustu mánuðum hef ég fengið sex viðtöl og ekkert meira en það. Ég hef fengið null hjálp frá Vinnumálastofnum, eina skiptið sem ég heiri frá þeim er að boða mig á algjölegan notalausan skildufund. Og svo til að tilkynna mér… Lesa alla
Hvað er ætlað að gera til að hjálpa fólki að fá vinnu. Sérstaklega þau okkur sem að erum komin yfir 50 og dæmnd með ónýta kennitölu. Ég er búinn að vera atvinnulaus í kringum 18 mánuði og þrátt fyrir að ég sé að gera allt sem ég kann og veit til að finna nýja vinnu og er að sækja um allt sem ég tel mig hafa séns á þá fæ ég valla viðtal. Af 54 stöðum sem að ég hef sótt um á síðustu mánuðum hef ég fengið sex viðtöl og ekkert meira en það. Ég hef fengið null hjálp frá Vinnumálastofnum, eina skiptið sem ég heiri frá þeim er að boða mig á algjölegan notalausan skildufund. Og svo til að tilkynna mér um viðurlög fyrir því að bóka námskeið á sama tíma og þeir bókuðu skildufund. Ég sótti um starf deildarstjóra tæknideildar hjá vinnumálastofnum, sem mér fannst passa minni reinslu mjög vel, en þeir tóku mig ekki einu sinni í viðtal. Ég hefði viljað finna nýtt starf fyrir svona 17 mánuðum síðan. Ef þessar breytingar verða til þess að ég fái strax vinnu, þá er ég rosalega hlyntur þessu. En ef við sem þjóðfélag erum búinn að ákveða að fólk yfir 50 er óvinnuhæf, þá þarf að eitthvað úrræði til að grípa okkur. Ef þjóðfélaðig vill ekki hafa okkur í vinnu, þá þarf kanski að lækka ellilífeyris aldurinn.
- #2Hafsteinn Auðunn Hafsteinsson
Það getur ekki verið að stjórnvöld hafi ekki tekið eftir yfirlýsingu nokkurra verkalýðsforingja, lífeyrissjóða og SA o.fl. um það, að eftir nýlegar kjarabætur til öryrkja þá muni þær ráðstafanir kalla á skerðingu á greiðslum til lífeyrisþega um næstu áramót. Takk fyrir, kv. Hafsteinn A. Hafsteinsson
- #3Skagafjörður
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar markmiðum ríkisstjórnar Íslands um að grípa fyrr fólk sem misst hefur atvinnu og lent á atvinnuleysisskrá af einhverjum orsökum, og stuðla að aukinni virkni hjá þeim hópi sem útsettur er fyrir langtímaatvinnuleysi. Það er í hróplegu ósamræmi við þessa stefnu nýrrar ríkisstjórnar að Vinnumálastofnun hafi gefið út þann 1. september sl. að þjónustuskrifstofa stofnunarinnar á Sauðárkróki hafi verið lokað tímabundið auk þess sem forstöðumaður Norðurlands vestra, Norðurlands eystra og Austurlands hjá Vinnumálastofnun hefur staðfest við sveitarfélagið að skrifstofan ver… Lesa alla
Byggðarráð Skagafjarðar fagnar markmiðum ríkisstjórnar Íslands um að grípa fyrr fólk sem misst hefur atvinnu og lent á atvinnuleysisskrá af einhverjum orsökum, og stuðla að aukinni virkni hjá þeim hópi sem útsettur er fyrir langtímaatvinnuleysi. Það er í hróplegu ósamræmi við þessa stefnu nýrrar ríkisstjórnar að Vinnumálastofnun hafi gefið út þann 1. september sl. að þjónustuskrifstofa stofnunarinnar á Sauðárkróki hafi verið lokað tímabundið auk þess sem forstöðumaður Norðurlands vestra, Norðurlands eystra og Austurlands hjá Vinnumálastofnun hefur staðfest við sveitarfélagið að skrifstofan verði flutt frá þessu stærsta vinnusóknarsvæði landshlutans. Í öðrum landshlutum eru þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar þar sem fjölmennasti þéttbýliskjarninn er, þ.e. á Akranesi, Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Selfossi, Reykjanesbæ og í Reykjavík. Fyrrgreind ákvörðun er ekki í samræmi við áform um að aukinn kraftur verði lagður í að aðstoða þá sem hafa verið lengi án atvinnu við að komast út á vinnumarkaðinn. Þá lýsir byggðarráð yfir miklum áhyggjum af að hámarkslengd tímabils þar sem atvinnuleysistryggingar eru greiddar verði stytt um 12 mánuði þannig að heimilt verði að greiða atvinnuleysistryggingar í samtals 18 mánuði í stað 30 mánaða, líkt og nú er samkvæmt gildandi lögum. Áætlað er að þessi skerðing muni skila um sex milljarða króna sparnaði á ári fyrir ríkissjóð þegar hún verður að fullu innleidd. Líklegt er að hluti þess fólks sem missir réttindi sín við þessa fyrirhuguðu breytingu muni þurfa að leita með auknum þunga í fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og þar með færist útgjöld frá ríkissjóði til sveitarfélaganna. Í matsskjali um áhrif fyrirhugaðrar lagasetningar sem fylgir með gögnum í Samráðsgátt kemur fram að mat á áhrifum á fjárhag sveitarfélaga hafi enn sem komið er ekki verið lagt fyrir Samband íslenskra sveitarfélaga til umsagnar. Það er með öllu óboðlegt að svo viðamiklar breytingar séu lagðar fyrir í Samráðsgátt stjórnvalda án fullnægjandi áhrifamats.
- #4Alþýðusamband Íslands
Meðfylgjandi er umsögn Alþýðusambands Íslands um áformin
- #5Landssamband ísl verslunarmanna
Meðfylgjandi er umsögn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna um áformin.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.