Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-153/2025 · Utanríkisráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja

Með fyrirhugaðri lagasetningu er áætlað að innleiða lagalegar skuldbindingar BBNJ-samningsins um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).

Þann 19. júní 2023 var samþykktur á vettvangi Sameinuðu þjóðanna nýr samningur undir hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna um vernd og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja („BBNJ-samningurinn“). Samningurinn skiptist í fjóra ólíka efnishluta en heildarmarkmið hans er að stuðla að aukinni heilbrigði hafsins með verndun og sjálfbærri nýtingu auðlinda þess. Þriðji hluti samningsins setur á fót kerfi til að skilgreina svæðisbundin stjórntæki á úthafi, t.d. vernduð hafsvæði, en stofnsetning þessa kerfis er liður í því að ríki heims geti náð fram markmiði sínu um vernd 30% vatns- og landsvæða á heimsvísu fyrir árið 2030. Samningurinn hefur hingað til verið fullgildur af 50 ríkjum en hann mun öðlast gildi þegar 60 ríki hafa fullgilt hann. Utanríkisráðherra undirritaði samninginn af hálfu Íslands þann 20. september 2023, en ekki verður unnt að ljúka fullgildingu nema að undangengnum lagabreytingum. Starfshópur um fullgildingu BBNJ-samningsins metur sem svo að Ísland hafi hagsmuni af því að taka þátt í ákvarðanatöku á vettvangi fyrsta ráðstefna aðildarríkja samningsins, sem mun fara fram innan árs frá gildistöku hans, og því er áformað að ráðast í nauðsynlegar lagabreytingar á komandi haustþingi.

S-153/2025· Áform um lagasetningu· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 27. ágú. 2025 – 11. sep. 2025· 9 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja

Með fyrirhugaðri lagasetningu er áætlað að innleiða lagalegar skuldbindingar BBNJ-samningsins um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Umsagnarfrestur hefst · til 11. september 2025
  2. Birt í Samráðsgátt (S-153/2025)
  3. Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 210)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
  • #1Náttúruverndarstofnun

    Hjálögð er umsögn Náttúruverndarstofnunar.

  • #2Hvalavinir vernd hafsins

    Meðfylgjandi er umsögn frá Hvalavinum vernd hafsins

  • #3Laura Sólveig Lefort Scheefer

    Meðfylgjandi er umsögn frá Ungum umhverfissinnum.

  • #4Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands

    Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Landverndar. Bestu kveðjur, Þorgerður María Þorbjarnardóttir Formaður

  • #5Árni Finnsson

    Sjá umsögn Náttúruverndarsamtaka Íslands.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-153/2025: Áform um frumvarp til laga um verndun og sjálfbæra nýtingu líffræðilegrar fjölbreytni hafsins utan lögsögu ríkja · Alviti