Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum varðandi stafræna og rafræna málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum
Frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum varðandi stafræna og rafræna málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-151/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 11. september 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 231)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (17. júlí 2026)
Frumvarpið lagt fram á Alþingi 6. nóvember 2025, sbr. hlekk hér fyrir neðan. Í greinargerð er fjallað um athugasemdir í umsögnum og viðbrögð við þeim.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
- #1ÖBÍ réttindasamtök
Umsögn ÖBÍ réttindasamtaka
- #2Persónuvernd
Meðfylgjandi er umsögn Persónuverndar
- #3Landssamtökin Þroskahjálp
Meðfylgjandi er umsögn Landsamtakanna Þroskahjálpar
- #4Sigríður Laufey Jónsdóttir
Efni: Umsögn Lögheimtunnar ehf. um mál nr. S-151/2025, frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum varðandi stafræna og rafræna málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum. Lögheimtan ehf. sérhæfir sig í löginnheimtu og stefnir að því að vera í fararbroddi í stafrænum lausnum sem tengjast innheimtu. Lögheimtan fagnar þeim skrefum sem boðuð eru í frumvarpinu í átt að stafrænum- og rafrænum lausnum við meðferð mála hjá sýslumönnum og dómstólum. Um mikið framfaraskref er almennt að ræða sem væntingar eru um að muni spara bæði kostnað og tíma við meðferð mála. Eftir yfirferð á fyrirliggjand… Lesa alla
Efni: Umsögn Lögheimtunnar ehf. um mál nr. S-151/2025, frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum varðandi stafræna og rafræna málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum. Lögheimtan ehf. sérhæfir sig í löginnheimtu og stefnir að því að vera í fararbroddi í stafrænum lausnum sem tengjast innheimtu. Lögheimtan fagnar þeim skrefum sem boðuð eru í frumvarpinu í átt að stafrænum- og rafrænum lausnum við meðferð mála hjá sýslumönnum og dómstólum. Um mikið framfaraskref er almennt að ræða sem væntingar eru um að muni spara bæði kostnað og tíma við meðferð mála. Eftir yfirferð á fyrirliggjandi frumvarpsdrögum vill Lögheimtan koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum við ákveðin efnisatriði frumvarpsins. Krafa um framlagningu frumrits. Víða í frumvarpinu er þess getið að dómari, eða eftir atvikum sýslumaður, geti ákveðið að frumrit gagns verði lagt fram telji hann þess nauðsynlegt. Lögheimtan telur mikilvægt, í ljósi reynslunnar, að tekin verði af tvímæli um það í frumvarpinu að skjöl undirrituð með fullgildri rafrænni undirritun teljist frumrit í skilningi viðkomandi laga. Staðan í dag er sú að ómögulegt er að nýta réttarfarshagræði beinnar nauðungarsölu þegar veðskuldabréf hafa verið undirrituð með fullgildri rafrænni undirritun og þeim verið þinglýst athugasemdalaust. Á þetta hefur reynt í framkvæmd en með úrskurði héraðsdóms Reykjavíkur í máli nr. Z-3149/2024 var því hafnað að fella úr gildi ákvörðun Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu um að fella niður beiðni um nauðungarsölu. Í því máli var nauðungarsölubeiðni felld niður þar sem gerðarbeiðandi gat ekki orðið við kröfu um að leggja fram frumrit veðskuldabréfs en um var að ræða þinglýst veðskuldabréf sem undirrituð var með fullgildri rafrænni undirritun. Við meðferð málsins var sýslumaður upplýstur um að frumrit veðskuldabréfsins væri ekki til í hefðbundnum skilningi þar sem það hefði verið undirritað rafrænt, en hægt væri að leggja fyrir sýslumann gögn og útskýringar um framkvæmd hinnar rafrænu undirskriftar. Engu að síður tók embætti sýslumanns þá ákvörðun að nauðungarsölubeiðnin teldist niður fallin í ljósi þess að sóknaraðili gæti ekki orðið við kröfu embættisins um að láta í té frumrit umrædds veðskuldabréfs. Þessi ákvörðun sýslumanns var borin undir héraðsdóm sem staðfesti ákvörðun sýslumanns m.a. með þeim rökstuðningi að innleiðing reglugerðar um réttaráhrif rafrænna undirskrifta væri ekki ætlað að víkja til hliðar ákvæðum landslaga um ýmis formskilyrði, svo sem þegar landslög áskilja að leggja skuli fram frumrit skjals. Er því staðan í dag sú að ekki næst það hagræði sem mögulegt er með fullgildri rafrænni undirritun og þinglýsingu skjala sem undirrituð eru með þeim hætti. Lögheimtan telur mikilvægt að úr þessu verði bætt með þeim hætti að tryggt sé að skjöl undirrituð með fullgildri rafrænni undirritun teljist frumrit í skilningi viðkomandi laga. Að öðrum kosti verður markmiði laganna ekki náð að fullu. Staðfesting á móttöku gagna í stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda Í fyrirliggjandi drögum að frumvarpi er lagt til að birting tilkynninga geti farið fram í stafrænu pósthólfi gerðarþola í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda. Í nokkrum tilvikum er þó gerður áskilnaður um að gerðarþoli staðfesti móttöku tilkynninga í stafræna pósthólfið. Gert er ráð fyrir að sú staðfesting fari fram með því að gerðarþola verði gerð grein fyrir því að með opnun póstsins muni birtingaraðila verða send staðfesting á móttöku skjalsins. Lögheimtan telur að þessi áskilnaður leiði til þess að í raun verði lítið hagræði af þessum breytingum og birtingar verði áfram að meginstefnu með þeim aðferðum sem tíðkast í dag. Aðgangur einkaaðila að stafrænu pósthólfi í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda. Í greinargerð þeirri sem fylgir fyrirliggjandi frumvarpi kemur fram að ekki sé gert ráð fyrir því enn sem komið er að einkaaðilar sendi eða birti gögn í gegnum stafrænt pósthólf. Í grunninn er Lögheimtan sammála því að einkaaðilum eigi ekki að vera veittur óheftur aðgangur að stafrænu pósthólfi. Öðru máli gegnir hins vegar um aðila sem lúta opinberu eftirliti og ber lögum samkvæmt að senda tilkynningar sambærilegar þeim sem gert er ráð fyrir að birtar verði í stafræna pósthólfi. Undir þetta falla meðal annars innheimtuaðilar, sem stunda frum- og milliinnheimtu og lögmannsstofur sem sinna löginnheimtu. Lögheimtan ítrekar að almennt séð tekur félagið undir efnisatriði fyrirliggjandi frumvarps en telur að verði tekið tillit til framangreindra athugasemda auki það líkur á því að markmiðum frumvarpsins verði náð. Virðingarfyllst, f.h. Lögheimtunnar ehf. Sigríður Laufey Jónsdóttir, lögmaður
- #5Íris Björk Hreinsdóttir
Umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) um mál nr. S-151/2025, frumvarp til laga um breytingar á ýmsum lögum varðandi stafræna málsmeðferð hjá sýslumönnum og dómstólum.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.