Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-147/2025 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 162/2002 um úrvinnslugjald

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald nr. 162/2002 (umbúðir, uppfærslur viðauka).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október).

Með lögum nr. 103/2021 sem tóku að fullu gildi þann 1. janúar 2023 og innleiddu tilskipanir Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/850, (ESB) 2018/851, (ESB) 2018/852 og (ESB) 2019/904 voru fleiri tegundir umbúða felldar undir framlengda framleiðendaábyrgð en verið hafði fram að því og eru nú allar tegundir umbúða látnar sæta úrvinnslugjaldi. Í lögum um úrvinnslugjald er almenna reglan sú að framleiðendur og innflytjendur gefi upp þyngd og tegund umbúða utan um vörur sem fluttar eru inn en í þeim tilvikum þegar staðfestar upplýsingar um umbúðir fást ekki er þeim heimilt að gefa upp meginsöluumbúð viðkomandi vöru og greiða úrvinnslugjald í samræmi við reiknireglur sem koma fram í viðauka XVIII við lögin. Viðaukinn tók gildi þann 1. mars 2023 með lögum nr. 127/2022 um breytingu á lögum um úrvinnslugjald. Reynsla síðustu tveggja ára hefur dregið fram þörf á nauðsynlegum uppfærslum á viðaukanum til þess annars vegar að endurspegla betur meginsöluumbúðir tiltekinna vara og hins vegar til þess að ná betur utan um magn flutningsumbúða í þeim tilvikum þegar vara er ekki seld í söluumbúðum, heldur er seld í lausu. Mikilvægt er að reiknilíkanið sæti reglulega endurskoðun og uppfærslu til að álagning úrvinnslugjalds sé sem réttust hverju sinni. Í 8. gr. laga um úrvinnslugjald nr. 162/2002 er kveðið á um þá vöruflokka sem úrvinnslugjald er lagt á eins og nánar er kveðið á um í viðaukum við lögin. Mikilvægt er að gæta að því að viðaukarnir séu uppfærðir reglulega og í takt við breytingar á tollskrárnúmerum í tollskrá. Síðastliðin þrjú ár hefur tollskránni verið breytt þrisvar sinnum með auglýsingum um breytingu á viðauka I við tollalög, nr. 85/2005, og því er nauðsynlegt að uppfæra viðauka við lög um úrvinnslugjald til samræmis. Tilefni lagasetningarinnar er því að uppfæra tiltekna viðauka við lög um úrvinnslugjald, nr. 162/2002, þannig að þeir taki mið af breytingum sem gerðar hafa verið á tollskrá og að uppfæra reiknilíkan viðauka XVIII svo að álagning úrvinnslugjalds á umbúðir sé sannarlega á vörur sem eiga að bera úrvinnslugjald á hverjum tíma og nái einnig til flutningsumbúða í þeim tilvikum þegar vörur eru ekki seldar í sérstökum söluumbúðum.

S-147/2025· Áform um lagasetningu· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 12. ágú. 2025 – 9. sep. 2025· 5 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 162/2002 um úrvinnslugjald

Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um úrvinnslugjald nr. 162/2002 (umbúðir, uppfærslur viðauka).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-147/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 9. september 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 308)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (8. janúar 2026)

Frumvarp samþykkt á Alþingi 18. desember 2025

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-147/2025: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 162/2002 um úrvinnslugjald · Alviti