Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-141/2025 · Dómsmálaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (öryggisráðstafanir)

Lagt er til að að breyta ákvæðum almennra hegningarlaga um öryggisráðstafanir, þ.e. 62.-67. gr. laganna. Markmiðið er að skýra ákvæðin í því skyni að bæta þjónustu og tryggja öryggi almennings.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember).

Ákvæði almennra hegningarlaga um öryggisráðstafanir hafa að mestu staðið efnislega óbreytt frá setningu laganna. Skort hefur á samræmi í dómaframkvæmd í málum og heimild laganna um öryggisráðstafanir hefur sjaldan verið beitt. Með frumvarpinu er meðal annars lagt til að skýrt sé hvenær megi grípa til hvaða öryggisráðstafana og á hverju slík ákvörðun skuli byggjast. Þá er lögð til heimild til að vista einstaklinga áfram í fangelsi eftir afplánun refsidóms með því skilyrði að einstaklingurinn hafi gerst sekur um alvarlegt afbrot og að taldar séu verulegar líkur á því, í ljósi sakaferils og andlegs ástands viðkomandi við lok afplánunar, að hann muni fremja ofbeldis- eða kynferðisbrot þegar afplánun lýkur og sé því hættulegur umhverfi sínu. Með breytingunum er einnig leitast við að uppfylla þær kröfur sem gerðar eru skv. stjórnarskrá, mannréttindasáttmála Evrópu, eins og þær hafa verið túlkaðar og útfærðar í dómaframkvæmd Mannréttindadómstóls Evrópu, auk annarra mannréttindaskuldbindinga.

S-141/2025· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 7. ágú. 2025 – 21. ágú. 2025· 6 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (öryggisráðstafanir)

Lagt er til að að breyta ákvæðum almennra hegningarlaga um öryggisráðstafanir, þ.e. 62.-67. gr. laganna. Markmiðið er að skýra ákvæðin í því skyni að bæta þjónustu og tryggja öryggi almennings.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-141/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. ágúst 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 313)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (24. september 2026)

Frumvarp var unnið og lagt fram á Alþingi. Frumvarpið varð að lögum nr. 78/2026. https://www.althingi.is/altext/stjt/2026.078.html

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1Eyþór Víðisson
    Í 66. gr. hegningarlaga stendur núna m.a.: "Ef nokkur heitist við annan mann eða hótar honum bana, brennu eða öðrum óförum, og refsingu verður annaðhvort ekki við komið eða hún þykir ekki veita næga tryggingu, getur ákæruvaldið hlutast til um, eftir kröfu þess, sem hlut á að máli, eða án kröfu hans, ef nauðsynlegt þykir vegna réttaröryggis, að dómsúrskurður gangi um það, hvort gera skuli ráðstafanir til varnar því, að hótunin sé framkvæmd, þar á meðal, hvort heitingamaður skuli setja tryggingu eða hvort setja skuli hann í gæslu." Þarna sýnist mér að aðeins ákæruvaldið geti hlutast til um að be… Lesa alla

    Í 66. gr. hegningarlaga stendur núna m.a.: "Ef nokkur heitist við annan mann eða hótar honum bana, brennu eða öðrum óförum, og refsingu verður annaðhvort ekki við komið eða hún þykir ekki veita næga tryggingu, getur ákæruvaldið hlutast til um, eftir kröfu þess, sem hlut á að máli, eða án kröfu hans, ef nauðsynlegt þykir vegna réttaröryggis, að dómsúrskurður gangi um það, hvort gera skuli ráðstafanir til varnar því, að hótunin sé framkvæmd, þar á meðal, hvort heitingamaður skuli setja tryggingu eða hvort setja skuli hann í gæslu." Þarna sýnist mér að aðeins ákæruvaldið geti hlutast til um að beita öryggisgæslu. Se er vel. Það má þó að skýra betur hvernig krafa um öryggisgæslu verður til. Heilbrigðisstarfsfólk og starfsmenn sveitarfélaga (yfirleitt í velferðarþjónustu) verða að geta komið óskum um öryggisgæslu á framfæri eftir formlegum leiðum. Það þótti t.d. afar líklegt að sá sem myrti móður sína í Breiðholti í fyrra, myndi gera það. Vitneskja um líðan mannsins var til innan heilbrigðiskerfisins og sveitarfélagsins. En það voru lítil sem engin úrræði fyrir Reykjavíkurborg til að grípa inn í þó svo að vitneskja um hegðun og veikindi mannsins lægju fyrir. Þarna þyrfti að opna leið fyrir þessi þrjú síló, ákæruvaldið, heilbrigðsikerfið og sveitarfélagið sem þjónustar þessa einstaklinga, til að eiga samráð um þessi úrræði.

  • #2Kristján Sigurður Kristjánsson

    Athyglisvert að ekki skuli vísað í umsáturseinelti og Lög um nálgunarbann sem eiga heima í VII kafla Almn. hgl. nr. 19.1940 og miða við að nálgunarbannið sé 410 metrar eins og ákvæði Grágásar og var síðast lögfest skömmu fyrir þarsíðustu aldarmót um fjóshauga. Not fyrir öryggisgæslu á mönnum sen sitja um heimili þrátt fyrir nálgunarbann þarf að skýra.

  • #3Örn Ægir Reynisson
    🟦 Umsögn til samráðsgáttar vegna áforma um frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum (öryggisráðstafanir) – mál nr. DMR25040207 1. Inngangur Ég legg hér með fram umsögn mína um ofangreind áform um lagabreytingar á VII. kafla almennra hegningarlaga, sérstaklega 62. og 67. gr., sem varða öryggisráðstafanir gagnvart einstaklingum sem taldir eru hættulegir umhverfi sínu – jafnvel að lokinni afplánun refsidóms. Fram kemur að markmið lagasetningarinnar sé m.a. að skýra lagaheimildir, tryggja öryggi almennings og samræma framkvæmd. Jafnframt er lögð áhersla á að frumvarpið uppfylli… Lesa alla

    🟦 Umsögn til samráðsgáttar vegna áforma um frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum (öryggisráðstafanir) – mál nr. DMR25040207 1. Inngangur Ég legg hér með fram umsögn mína um ofangreind áform um lagabreytingar á VII. kafla almennra hegningarlaga, sérstaklega 62. og 67. gr., sem varða öryggisráðstafanir gagnvart einstaklingum sem taldir eru hættulegir umhverfi sínu – jafnvel að lokinni afplánun refsidóms. Fram kemur að markmið lagasetningarinnar sé m.a. að skýra lagaheimildir, tryggja öryggi almennings og samræma framkvæmd. Jafnframt er lögð áhersla á að frumvarpið uppfylli mannréttindakröfur stjórnarskrár og alþjóðlegra skuldbindinga. Ég tel hins vegar að ákvæði frumvarpsins – sérstaklega þau sem heimila áframhaldandi vistun í fangelsi að lokinni afplánun – brjóti gegn grundvallarreglum réttarríkisins, stjórnarskrá og Mannréttindasáttmála Evrópu. Þá vantar skýra aðgreiningu milli refsinga og öryggisráðstafana, sem getur leitt til geðþóttaákvarðana og mannréttindabrota. 2. Aðalatriði umsagnar a) Brot gegn 67. gr. stjórnarskrár og 5. gr. Mannréttindasáttmála Evrópu Frumvarpið heimilar áframhaldandi frelsissviptingu að lokinni afplánun, ef dómari metur að veruleg hætta sé á því að viðkomandi muni fremja alvarlegt brot á ný. Slík vistun verður að öllu jöfnu ótímabundin en endurmetin reglulega. Slíkt ákvæði felur í sér refsivarslu án nýrrar refsiréttarlegrar sakfellingar. Þetta samræmist ekki 67. gr. stjórnarskrárinnar, sem tryggir frelsi manna, nema samkvæmt lögmætum dómsúrskurði vegna fyrirliggjandi brots, né heldur 5. gr. MSE, sem kveður á um að frelsissvipting verði að byggjast á ákvörðun um sakfellt brot og afplánun þess. Mannréttindadómstóll Evrópu hefur tekið fram í dómum (t.d. M. v. Germany, Witold Litwa v. Poland) að vistun vegna framtíðarlíka um brot sé aðeins heimil að mjög þröngum skilyrðum, ef hún byggist á strangri málsmeðferð, afmarkaðri tímasetningu og aðskilnaði frá refsivörslu. Áformin uppfylla ekki þessi skilyrði. b) Lögfesting hugmyndar um „pre-crime“: refsivarsla án brots Frumvarpið gerir ráð fyrir að dómari meti líkindi á endurtekningu brots út frá „sakaferli og andlegu ástandi“. Þetta er nálgun byggð á spá um hegðun – svokallaðri forvirkri refsingu sem gengur gegn meginreglu refsilaga: Nulla poena sine crimine – Engin refsing án brots. Slíkt gengur gegn 69. gr. stjórnarskrár (bann við refsingu án lagaheimildar) og almennum grundvallarreglum réttarríkisins. Það opnar einnig hættulegar glufur fyrir misnotkun, geðþótta og stjórnmálalegar ráðstafanir gegn óþægilegum einstaklingum. c) Óljós og ónóg málsmeðferðarábyrgð Frumvarpið fjallar ekki nægilega ítarlega um: • hvort og hvernig vistaðir einstaklingar hafi rétt til málsvarnar, • hvort sjálfstæð matsaðili taki ákvörðun um hættu, • hvort skilyrði fyrir vistun verði rökstudd með raunverulegum gögnum, • hvernig aðskilnaður verður tryggður milli öryggisvistunar og refsifangelsa. Án þessara atriða er lögmæti öryggisráðstafana verulega vafasamt. d) Mismunun gagnvart einstaklingum með geðræna erfiðleika eða fötlun Fram kemur að vistunin byggist m.a. á mati á „andlegu ástandi“. Slíkt ákvæði getur leitt til mismununar gegn fólki með geðsjúkdóma, fötlun eða hegðunarfrávik, í trássi við: • Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (CRPD) • 3. gr. MSE (bann við ómannúðlegri meðferð) • 76. gr. stjórnarskrárinnar (réttur til aðstoðar vegna veikinda – ekki refsingu) 3. Niðurstaða og tilmæli Ég legg til að: 1. Fallið verði frá því að lögfesta áframhaldandi vistun í fangelsi að lokinni afplánun. 2. Ef grípa á til öryggisráðstafana, verði þær háðar nýrri, fullburða málsmeðferð með sama réttarábyrgðarkerfi og í sakamálum (réttur til verjanda, áfrýjunar o.s.frv.). 3. Öll vistun sem ekki er hluti af refsingu verði utan refsivarslunnar, þ.e. meðferðar- og endurhæfingarúrræði utan fangelsis. 4. Tryggja verði að einstaklingar sem sæta öryggisráðstöfunum hafi fullan rétt til upplýsingagjafar, úrræða og endurskoðunar. 4. Samantekt Frumvarpið, þrátt fyrir faglega framsetningu og gott skipulag, leiðir til óásættanlegs fráviks frá réttaröryggi í lýðræðisríki. Það gengur gegn grundvallarreglum um: • frelsi einstaklings, • rétt til réttarverndar, • skýrar og fyrirsjáanlegar lagaheimildir. Það felur í sér hættu á mannréttindabrotum og ætti því ekki að hljóta brautargengi í núverandi mynd. Með kveðju Örn Ægir Reynisson kt 1312612929

  • #4Afstaða til ábyrgðar
    Umsögn Afstöðu – Réttindafélags áform um breytingu á almennum hegningarlögum nr. 19/1940 (öryggisráðstafanir) mál nr. DMR25040207 Reykjavík, 19. ágúst 2025 Afstaða – Réttindafélag hefur um árabil hvatt til heildarendurskoðunar á lögum um fullnustu refsinga jafnhliða því að fjölga úrræðum dómstóla við úrlausn mála. Með fyrirhugaðri breytingu er ætlun stjórnvalda að „færa ákvæði VII. kafla almennra hegningarlaga um öryggisráðstafanir, þ.e. 62.-67. gr. laganna til nútímalegra horfs. Með því er leitast við að auka skýrleika lagaheimilda og uppfylla þannig betur mannréttindakröfur stjórnarskrár… Lesa alla

    Umsögn Afstöðu – Réttindafélags áform um breytingu á almennum hegningarlögum nr. 19/1940 (öryggisráðstafanir) mál nr. DMR25040207 Reykjavík, 19. ágúst 2025 Afstaða – Réttindafélag hefur um árabil hvatt til heildarendurskoðunar á lögum um fullnustu refsinga jafnhliða því að fjölga úrræðum dómstóla við úrlausn mála. Með fyrirhugaðri breytingu er ætlun stjórnvalda að „færa ákvæði VII. kafla almennra hegningarlaga um öryggisráðstafanir, þ.e. 62.-67. gr. laganna til nútímalegra horfs. Með því er leitast við að auka skýrleika lagaheimilda og uppfylla þannig betur mannréttindakröfur stjórnarskrár, Mannréttindasáttmála Evrópu og annarra þjóðréttarskuldbindinga, og með því m.a. bregðast við athugasemdum eftirlitsaðila, svo sem CPT nefndar Evrópuráðsins og OPCAT eftirlits umboðsmanns Alþingis.“ Í þarfagreiningu kemur fram að helstu breytingar á 62. gr. hegningarlaga séu að „kveðið verði á um heimild til að dæma einstaklinga til að sæta öryggisgæslu í stað „viðeigandi hælis“ og bætt í upptalningu á mögulegum vægari öryggisráðstöfunum, sem þó eru ekki tæmandi taldar. Gert er ráð fyrir að dómari taki afstöðu til tegundar og umfangs öryggisráðstöfunar/-ráðstafana. Þá verði bætt við sjónarmiðum sem ákvörðun um öryggisráðstafanir skuli byggjast á, þ.e. hvort einstaklingur skuli sæta öryggisráðstöfun vegna réttaröryggis og þá hvaða. Er talið rétt að kveða skýrar á um helstu sjónarmið sem ákvörðun skal byggjast á í lögum en ekki er um tæmandi talningu að ræða. Þá er áformuð sú breyting að í stað þess að öryggisráðstafanir séu alltaf ótímabundnar verði öryggisgæsla það aðeins þegar einstaklingur hefur gerst sekur um allra alvarlegustu brotin, þ.e. manndráp, rán, frelsissviptingu, alvarlega líkamsárás, brennu, nauðgun eða annað alvarlegt kynferðisbrot eða fyrir tilraun eða hlutdeild til slíkra brota. Þó er gert ráð fyrir að öryggisráðstafanir verði endurmetnar reglulega, og að kveðið verði nánar á um það í frumvarpi félags- og húsnæðismálaráðherra til laga um framkvæmd öryggisráðstafana. Eigi það ekki við verði hámarkstími öryggisráðstöfunar ekki lengri en fimm ár, en heimilt verði að framlengja tímann í allt að fimm ár í senn að kröfu ríkissaksóknara.“ Varðandi breytingar á 67. gr. hegningarlaga þá er þar „kveðið á um öryggisráðstafanir eftir að afplánun refsidóms lýkur. Nauðsynlegt er að skýra ákvæðið en á það hefur nánast ekkert reynt og hefur ríkissaksóknari um langt skeið ekki talið mögulegt að láta reyna á gildandi ákvæði. Fyrirhugaðar breytingar felast í því að kveðið verði á um að heimilt verði að beita öryggisráðstöfunum skv. 62. gr. hgl. að lokinni afplánun, eða áframhaldandi vistun í fangelsi. Lagt er til að heimildin verði bundin við alvarleg afbrot, s.s. manndráp, stórfellda líkamsárás eða annað gróft ofbeldis- eða kynferðisbrot. Þá verði skilyrði að dómur telji verulegar líkur á því í ljósi sakaferils og andlegs ástands við lok afplánunar, svo og af undanfarandi breytni hans, að hann muni drýgja ofbeldis- eða kynferðisbrot þegar afplánun lýkur og sé því hættulegur umhverfi sínu. Gert er ráð fyrir að um ótímabundna ráðstöfun sé að ræða, en tryggja þarf reglubundið endurmat þeirra. Samhliða eða í kjölfar breytinga á ákvæðinu þarf að gera breytingar á fullnustulögum til að þau taki mið af vistun einstaklings eftir lok afplánunar í fangelsi. Sérstaklega hefur verið horft til Noregs varðandi breytingar á ákvæðinu, en þar er sér kafli í hegningarlögum um svokallað „forvaring.“ Athugasemdir Afstöðu Varðandi breytingu á ákvæði 67. gr. er þar sérstaklega vísað til ákvæða í norskum hegningar-lögum þar sem fjallað er um „forvaring“ dóma. Ekki er heimild í norskum lögum til að dæma einstaklinga í ævilangt fangelsi, eins og er að finna í 1. mgr. 34. gr., sbr. einnig 211. gr., íslenskra hegningarlaga nr. 19/1940 og eru því „forvaring“ dómar mest íþyngjandi úrræði í norskum lögum, sem getur í raun þýtt ævilangt fangelsi. Nokkur umræða hefur farið fram í Noregi um þetta ákvæði að undanförnu þar sem m.a. hefur verið bent á að það sé íþyngjandi bæði fyrir dómþola og kerfið í heild að óvissa ríki um hvenær einstaklingur verður laus aftur út í samfélagið að nýju, sem hlýtur ávallt að vera markmiðið. Vegna þessarar óvissu skortir á framtíðarsýn fyrir einstaklinginn og kerfið, þar sem beitt er stiglosandi úrræðum svo að einstaklingar fara oft úr mikilli öryggisgæslu út í samfélagið að nýju og eiga þar af leiðandi erfitt með að fóta sig í frelsinu. Norska lögmannafélagið sendi stjórnvöldum umsögn um þetta úrræði í síðustu viku. Þar kemur m.a. fram gagnrýni á að nauðsynlegt sé að endurskoða virkni þessara úrræða reglulega til að tryggja að þau standist tilgang sinn og séu ekki ofnotuð. Nauðsynlegt er að sú gagnrýni sem fram hefur komið á öryggisvistun í Noregi verði höfð til hliðsjónar í aðdraganda hugsanlegrar breyttrar lagasetningar enda sérstaklega vísað til norskrar reynslu í íslenskri þarfagreiningu. Við mat á áhrifum fyrirhugaðrar lagasetningar kemur fram að fyrir liggi „að ritun frumvarps verður gerð í samráði við hagsmunasamtök þeirra hópa sem málið varðar. Það eru Geðhjálp, Þroskahjálp, ÖBÍ réttindasamtök og Afstaða, félag fanga.“ Afstaða – Réttindafélag, fagnar fyrirætlunum stjórnvalda um samráð við fyrrnefnd hagsmunasamtök og ítrekar mikilvægi þess að horft verði til heildstæðrar löggjafar um framkvæmd, fullnustu og eftirlit með slíkum ráðstöfunum, einnig þegar úrskurðað er samkvæmt 3. mgr. 15. gr. laga um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011. Um er að ræða einstaklinga sem oft eru í viðkvæmri stöðu, með flókna sögu geðrænna áskorana, fötlunar eða félagslegra aðstæðna og sem þurfa samfellda, sérhæfða og mannúðlega þjónustu. Ítrekaðar athugasemdir umboðsmanns Alþingis og skýrslur OPCAT-eftirlits umboðsmanns hafa sýnt að skortur á skýru lagaumhverfi og ábyrgðarskiptingu hefur skapað réttarleysi og brotakennda framkvæmd. Afstaða styður ekki að einstaklingar sæti frelsisskerðingu nema þegar um sé að ræða raunverulegan og staðfestan vanda sem ekki er unnt að mæta með vægari úrræðum. Það er því grundvallaratriði að tryggja að öryggisráðstafanir séu neyðarúrræði, ekki almennt viðbragð við félagslegum erfiðleikum eða skorti á þjónustu. Sérstaklega er varað við því að sveitarfélög líti á öryggisvistun sem tæki til að „færa frá sér“ einstaklinga sem þeim reynist erfitt að sinna vegna skorts á úrræðum eða sérhæfðum stuðningi. Slíkt væri alvarlegt brot á réttindum einstaklinga og andstætt markmiðum frumvarpsins. Langflestir sem glíma við þennan flókna vanda eru ekki hættulegir öðrum, þeir verða það vegna þess að stuðningskerfin bregðast þeim. Því er það mat Afstöðu að forgangsverkefni sé að byggja upp raunveruleg og sérhæfð úrræði í nærumhverfi fólks áður en til öryggisvistunar kemur. Öryggisráðstafanir mega aldrei verða staðgengill fyrir heildstæða geðheilbrigðis-þjónustu eða úrræði fyrir fatlað fólk. Afstaða telur sérstaklega mikilvægt að ábyrgð stjórnvalda sé skýr, þar sem mannréttindi séu virt og þjónusta samræmd. Að frumvarpið leggi áherslu á: • batamiðaða nálgun sem virðir sjálfræði einstaklinga, • að hlutverk Afstöðu sem talsmenn þjónustuþega úrræðisins verði lögbundið, • reglubundið endurmat verði á vistun og úrræðum, • markvissa uppbyggingu úrræða með fjölbreyttum stuðningi og eftirfylgd, og • stofnun sérhæfðrar ríkisstofnunar sem hafi heildaryfirsýn og sérþekkingu á málaflokknum sem haldi jafnframt utan um rannsóknir á virkni úrræða. Afstaða leggur jafnframt ríka áherslu á að í fyrirhuguðum úrræðum verði jafningjastuðningur þar sem þátttaka fólks með eigin reynslu af frelsissviptingu verði hluti af þjónustuteymum. Þekking þeirra er ómetanleg og hefur ítrekað sýnt sig vera áhrifarík leið til að styðja við einstaklinga í bata, byggja upp traust og auka von og virðingu í þjónustunni. Við hvetjum til þess að jafningjastarf verði lögfest sem hluti af starfsemi nýrrar stofnunar. Vonast er til þess að með fyrirhugaðri löggjöf sé markmiðið að bæta réttstöðu þessa hóps sem um ræðir og tryggja öryggi og mannvirðingu þeirra sem sæta öryggisráðstöfunum og ekki síður almennings. Um er að ræða þjóðfélagshóp sem hefur of lengi búið við óljósar reglur og lítið gegnsæi. Afstaða – Réttindafélag, er reiðubúið til áframhaldandi samráðs og samstarfs við stjórnvöld við mótun og framkvæmd kerfis sem byggir á mannréttindum, þverfaglegri nálgun og virðingu fyrir reisn hvers einstaklings. Virðingarfyllst, Guðmundur Ingi Þóroddson, formaður

  • #5Embætti landlæknis

    Umsögn landlæknis.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-141/2025: Áform um frumvarp til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940 (öryggisráðstafanir) · Alviti