Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-140/2025 · Utanríkisráðuneytið

Áform um breytingu á lögum nr. 41/1979 um landhelgi, aðlægt belti, efnhagslögsögu og landgrunn

Áformað er að gera breytingar á 5. gr. laganna þannig að landgrunn Íslands í Ægisdjúpinu og á Reykjaneshrygg verði afmörkuð í lögum í samræmi við niðurstöðu landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október).

Samkvæmt hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna eiga strandríki sjálfkrafa landgrunn að 200 sjómílum sem eru jafnframt ytri mörk efnahagslögsögunnar. Mörg ríki, eins og Ísland, eiga hins vegar sökum náttúrulegra aðstæðna víðáttumeiri hafsbotnsréttindi samkvæmt ákvæðum samningsins. Viðkomandi ríki eiga að senda landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna ítarlega greinargerð um ytri mörk landgrunnsins utan tvö hundruð sjómílna og nefndin fer yfir greinargerðina, leggur tæknilegt mat á hana og gerir tillögur um landgrunnsmörkin. Í mars 2025 afgreiddi landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna endurskoðaða greinargerð Íslands um landgrunn á Reykjaneshrygg (vestur-, suður- og suðausturhluti Reykjaneshryggjar) og hefur landgrunnsnefndin þar með afgreitt og samþykkt mörk landgrunns Íslands á því svæði. Einnig hefur samþykki landgrunnsnefndarinnar fyrir landgrunni Íslands á Ægisdjúpi legið fyrir frá því 2016. Náttúruauðlindir sem tilheyra landgrunninu eru jarðefnaauðlindir á borð við olíu, gas og málma, aðrar ólífrænar auðlindir hafsbotnsins og botnlaganna, til dæmis jarðhiti og lífverur í flokki botnsetutegunda og erfðaefni þeirra. Réttindi strandríkis yfir landgrunninu utan efnahagslögsögunnar hafa ekki áhrif á réttarstöðu hafsins þar fyrir ofan, sem telst úthaf, og ná ekki til fiskistofna né annarra auðlinda þess. Núverandi afmörkun landgrunns Íslands er sett fram í reglugerð nr. 196/1985 um afmörkun landgrunnsins til vesturs, í suður og til austurs. Sú afmörkun er birt á grundvelli 2. mgr. 6. gr. laga nr. 41/1979 um landhelgi, aðlægt belti, efnahagslögsögu og landgrunn. Í ljósi þess að landgrunnsnefnd Sameinuðu þjóðanna hefur nú samþykkt ytri mörk landgrunns Íslands á Reykjaneshrygg og á Ægisdjúpi þykir rétt að afmark þann hluta landgrunnsins í lögum, líkt og gert er með önnur hafsvæði. Áformað er að frumvarp til breytinga á lögum nr. 41/1979 verði lagt fram á Alþingi á haustþingi 2025.

S-140/2025· Áform um lagasetningu· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 29. júl. 2025 – 12. ágú. 2025· 0 umsagnir

Áform um breytingu á lögum nr. 41/1979 um landhelgi, aðlægt belti, efnhagslögsögu og landgrunn

Áformað er að gera breytingar á 5. gr. laganna þannig að landgrunn Íslands í Ægisdjúpinu og á Reykjaneshrygg verði afmörkuð í lögum í samræmi við niðurstöðu landgrunnsnefndar Sameinuðu þjóðanna.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-140/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. ágúst 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 315)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-140/2025: Áform um breytingu á lögum nr. 41/1979 um landhelgi, aðlægt belti, efnhagslögsögu og landgrunn · Alviti