Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-139/2025 · Heilbrigðisráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um lækningatæki, nr. 132/2020

Heilbrigðisráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um lækningatæki, nr. 132/2020.

Frumvarpsdrögin fela í sér lögfestingu á Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2024/1860 frá 13. júní 2024 um breytingu á reglugerðum (ESB) 2017/745 og (ESB) 2017/746 að því er varðar að innleiða Evrópska gagnabankann um lækningatæki (Eudamed) smám saman, skylduna til að tilkynna um það ef truflanir verða á afhendingu eða ef afhendingu er hætt og um umbreytingarákvæði vegna tiltekinna lækningatækja til sjúkdómsgreiningar í glasi. Reglugerðin var tekin upp í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 172/2025 þann 11. júlí 2025. Ákvæði reglugerðar (ESB) 2024/1860 um skyldur aðila til að upplýsa um truflun eða stöðvun á afhendingu tækja er umritað í frumvarpsdrögin með það að markmiði að auka skýrleika um þær skyldur sem settar eru á aðila.

S-139/2025· Drög að frumvarpi til laga· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 23. júl. 2025 – 22. ágú. 2025· 5 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um lækningatæki, nr. 132/2020

Heilbrigðisráðuneytið birtir til umsagnar drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um lækningatæki, nr. 132/2020.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-139/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 22. ágúst 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 5 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 301)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. mars 2026)

Frumvarpið var lagt fram á Alþingi á 157. löggjafarþingi

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (5)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-139/2025: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um lækningatæki, nr. 132/2020 · Alviti