Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-128/2025 · Dómsmálaráðuneytið

Áform um breytingu á lögum um meðferð sakamála (bótafjárhæðir)

Áform um breytingu á lögum um meðferð sakamála (bótafjárhæðir).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: janúar).

Dómsmálaráðuneytið hefur undanfarið leitað leiða til þess að gera meðferð bótakrafna sem hafðar eru uppi á grundvelli laga um meðferð sakamála nr. 88/2008, skilvirkari, einfaldari og fyrirsjáanlegri. Hefur þá jafnframt verið litið til þess að fækka dómsmálum af því tagi eftir föngum og einfalda þannig aðgengi þeirra sem rétt eiga á bótum til greiðslu bóta. Veigamestu breytingarnar sem áformaðar eru, verður lögfesting heimildar til setningar viðmiðunarfjárhæða bóta, sem taki mið af dómaframkvæmd, sem ríkislögmanni verður ætlað að líta til við meðferð bótakrafna hjá embættinu. Með því verður fyrirsjáanleiki aukinn enda ætti þá bótakrefjanda, sem og lögmanni hans ef honum er til að dreifa, að vera ljós frá upphafi hver líkleg bótafjárhæð er sem og bótafjárhæðir í sambærilegum málum. Setning slíkra viðmiðunarreglna stuðlar jafnframt að jafnræði við meðferð bótakrafna. Aukinn fyrirsjáanleiki og skilvirkni við meðferð bótakrafna sem hafðar eru uppi á grundvelli laga um meðferð sakamála dregur jafnframt úr þörf á rekstri dómsmála þess efnis. Því er áformað að fella brott fyrirmæli 1. mgr. 248. gr. laganna um að veita skuli viðkomandi gjafsókn í héraði. Eftir sem áður verður bótakrefjanda heimilt að sækja um gjafsókn eftir almennum reglum telji hann rétt að höfða dómsmál til greiðslu bóta. Ekki er til skoðunar að gera efnislegar breytingar á bótareglum 246. gr. laga um meðferð sakamála sem slíkum.

S-128/2025· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 14. júl. 2025 – 31. júl. 2025· 0 umsagnir

Áform um breytingu á lögum um meðferð sakamála (bótafjárhæðir)

Áform um breytingu á lögum um meðferð sakamála (bótafjárhæðir).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-128/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 31. júlí 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 103)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (24. september 2026)

Málið er til skoðunar í dómsmálaráðuneytinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-128/2025: Áform um breytingu á lögum um meðferð sakamála (bótafjárhæðir) · Alviti