Áform um breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-124/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 20. ágúst 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 106)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (20. janúar 2026)
Áform um framlagningu frumvarpsins voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 11. júlí 2025 og var veittur frestur til og með 20. ágúst sama ár til að veita umsagnir um áformin. Alls bárust sjö umsagnir um áformin sem komu til skoðunar við vinnslu frumvarpsins. Drög að frumvarpinu voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda 25. september –12. október 2025 (mál nr. S-186/2025).
- Áform um breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk, nr. 88/2011
- Frummat á áhrifum frumvarps til laga um breytingar á lögum nr. 88/2011
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
- #1Aðalsteinn J Magnússon
Fyrir mína hönd og annarra tiltekina fatlaðra hef ég áhuga á að fá nánari upplýsingar um skipulag þjónustu núna og að því að mér hefur virst frá upphafi laga um umboðsmann menn fatlaðra, hefur þjónustan vegna husanlegs gersamlega ónógs fjármagns og ásamt vanhusaðs skipulags ekki virkað.Allavega er eitthvað mikið mikið að.
- #2Halldór Gunnarsson
Undirritaður er fyrrverandi formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar, síðar formaður vinnuhóps, sem lagði drög að réttindagæslulögunum, þá réttindagæslumaður fatlaðs fólks í Reykjavík og starfaði í Velferðar- og síðar félagsmálaráðuneyti að verkefnum Réttindavaktar og leiddi réttindagæslumenn í störfum sínum. Varðandi þau áform sem um ræðir er einkum tvennt sem ég vil benda á að þurfi að huga vel að: 1. Réttindavaktin: Í núverandi lögum er eftirlit með réttindagæslumönnum aðeins brot af hlutverki réttindavaktar. Verði réttindavakt lögð niður er mjög mikilvægt að þættir, sem var sinnt til ársin… Lesa alla
Undirritaður er fyrrverandi formaður Landssamtakanna Þroskahjálpar, síðar formaður vinnuhóps, sem lagði drög að réttindagæslulögunum, þá réttindagæslumaður fatlaðs fólks í Reykjavík og starfaði í Velferðar- og síðar félagsmálaráðuneyti að verkefnum Réttindavaktar og leiddi réttindagæslumenn í störfum sínum. Varðandi þau áform sem um ræðir er einkum tvennt sem ég vil benda á að þurfi að huga vel að: 1. Réttindavaktin: Í núverandi lögum er eftirlit með réttindagæslumönnum aðeins brot af hlutverki réttindavaktar. Verði réttindavakt lögð niður er mjög mikilvægt að þættir, sem var sinnt til ársins 2020, en lítið sem ekkert eftir það, komist í öruggt skjól, en falli ekki á milli stofnana: Fræðslu og upplýsingastarf um réttindi fatlaðs fólks, halda saman upplýsingum þ.a.l. Vaka yfir nýjungum í hugmyndafræði, beita sér fyrir og annast útgáfu á auðlesnu efni, vinna gegn staðalímyndum, efna til vitundarvakningar o.fl. 2. Undanþágur frá banni við beitingu nauðungar. Hér verður að gæta þess umfram allt að sú sérþekking sem gerð er krafa um og er til staðar í undanþágunefndinni, þynnist ekki út í ÚRVEL og fókusinn fari á að rumpa málum af á kostnað þeirrar ígrundunar sem leyfi til nauðungar kallar á. Halldór Gunnarsson
- #3Persónuvernd
Umsögn Persónuverndar um áform um breytingar á lögum um réttindagæslu fyrir fatlað fólk nr. 88/2011.
- #4Landssamtökin Þroskahjálp
Meðfylgjandi er sameiginleg umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar og Geðhjálpar
- #5Barnaheill - Save the Children á Íslandi
Meðfylgjandi er umsögn Barnaheilla - Save the Children á Íslandi
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.