Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-121/2025 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998 (fyrirkomulag hlutdeildarlána)

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998 (fyrirkomulag hlutdeildarlána).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember).

Hlutdeildarlánum var komið á laggirnar haustið 2020 en um er að ræða eitt form húsnæðisstuðnings stjórnvalda til að stuðla að húsnæðisöryggi og jafnrétti landsmanna í húsnæðismálum. Slíkur húsnæðisstuðningur hefur það að markmiði að öll hafi aðgengi að öruggu og góðu húsnæði með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði. Hlutdeildarlán eru lán sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) veitir þeim sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð og þeim sem ekki hafa átt íbúðarhúsnæði síðastliðin fimm ár og eru undir tilteknum tekjumörkum með það að markmiði að brúa eiginfjárkröfu við íbúðarkaup fyrir þá sem þess þurfa. Markmið hlutdeildarlána er þannig að bæta stöðu ungra og tekjulágra á húsnæðismarkaði með því að brúa bilið við fyrstu fasteignarkaup. Nú þegar fimm ár eru liðin frá lögfestingu úrræðisins er tímabært að taka úrræðið til heildarendurskoðunar í því skyni að gera hlutdeildarlán skilvirkari og festa þau í sessi í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins frá 21. desember 2024. Tryggja þarf mánaðarlegar úthlutanir hlutdeildarlána og aukinn fyrirsjáanleika til að úrræðið nái markmiðum sínum um að auðvelda fyrstu íbúðarkaup og stuðla að auknu framboði íbúða með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði. Jafnframt hefur komið í ljós að samspil tekjumarka hlutdeildarlána og annarra skilyrða lánveitinga, s.s. um greiðslubyrðarhlutfall, hefur orðið til þess að ákveðnir félagshópar, t.a.m. einstæðingar, eiga minni möguleika á að nýta sér úrræðið til íbúðarkaupa. Þá hefur reynsla af framkvæmd laganna leitt í ljós fleiri agnúa sem sníða þarf af löggjöfinni.

S-121/2025· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. júl. 2025 – 15. ágú. 2025· 7 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998 (fyrirkomulag hlutdeildarlána)

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998 (fyrirkomulag hlutdeildarlána).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-121/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. ágúst 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 306)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (18. febrúar 2026)

Áform um framlagningu frumvarpsins voru kynnt í Samráðsgátt 11.7.2025 - 15.8.2025. Alls bárust sjö umsagnir um áformin sem komu til skoðunar við lokavinnslu frumvarpsins. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 28. nóvember 2025 og samþykkt 18. desember sama ár, sbr. hlekk hér fyrir neðan

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
  • #1Skagafjörður
    Byggðarráð Skagafjarðar áréttar að hugmyndafræðin á bak við hlutdeildarlán til fólks sem er að kaupa sína fyrstu íbúð er góð. Engu að síður er reynslan í Skagafirði og landshlutanum öllum sú að mjög fáir hafa haft möguleika á að nýta sér þetta úrræði til húsnæðiskaupa. Ástæðan er að stærstum hluta sú að hér hafa verktakar eða fjárfestar ekki sóst eftir að byggja íbúðir sem standast kröfur um lágmarksstærð og hámarksverð til að fá hlutdeildarlán. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því þeim áformum að farið verði í endurskoðun á kröfum til slíkra lána og leggur til að horft verði í framtíðinni til m… Lesa alla

    Byggðarráð Skagafjarðar áréttar að hugmyndafræðin á bak við hlutdeildarlán til fólks sem er að kaupa sína fyrstu íbúð er góð. Engu að síður er reynslan í Skagafirði og landshlutanum öllum sú að mjög fáir hafa haft möguleika á að nýta sér þetta úrræði til húsnæðiskaupa. Ástæðan er að stærstum hluta sú að hér hafa verktakar eða fjárfestar ekki sóst eftir að byggja íbúðir sem standast kröfur um lágmarksstærð og hámarksverð til að fá hlutdeildarlán. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því þeim áformum að farið verði í endurskoðun á kröfum til slíkra lána og leggur til að horft verði í framtíðinni til mjög sértækra hlutdeildarlána til svæða eins og Norðurlands vestra, þar sem íbúafjölgun hefur verið undir landsmeðaltali og íbúða- og byggingamarkaður íbúða verið jafn óvirkur og raun ber vitni.

  • #2Landssamtökin Þroskahjálp

    Meðfylgjandi er umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar

  • #3Kjartan Þór Ingason

    Ágæti viðtakandi, Í viðhengi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998 (fyrirkomulag hlutdeildarlána)

  • #4Viðskiptaráð Íslands

    Meðfylgjandi er umsögn Viðskiptaráðs Íslands

  • #5Hagsmunasamtök heimilanna

    Sjá viðhengi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-121/2025: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál, nr. 44/1998 (fyrirkomulag hlutdeildarlána) · Alviti