Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-120/2025 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október).

Eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar er að hagræða, einfalda stjórnsýslu og sameina stofnanir. Stofnanir ríkisins eru um 160 talsins með starfstöðvar um allt land. Helstu rök fyrir sameiningum eru þau að stærri einingar séu betur til þess fallnar að sinna kjarnaþjónustu og veita góða þjónustu. Slíkar einingar séu einnig betri rekstrareiningar. Rúmur helmingur stofnana er með færri en 50 stöðugildi. Fjórðungur stofnana er með færri en 20 stöðugildi. Skipulagsstofnun sinnir stefnumótun, stjórnsýslu og leiðbeiningum um skipulag og framkvæmdir með sjálfbæra nýtingu auðlinda og vandaða byggð að leiðarljósi. Skipulagsstofnun starfar á grundvelli skipulagslaga, laga um skipulag haf- og strandsvæða og laga um umhverfismat framkvæmda og áætlana. Hjá Skipulagsstofnun starfa um 25 manns. Árið 2020 varð Húsnæðis- og mannvirkjastofnun til við sameiningu Íbúðalánasjóðs og Mannvirkjastofnunar. Um mitt ár 2022 var fasteignaskrá flutt til Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar frá Þjóðskrá. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) er sjálfstæð stofnun sem lýtur sérstakri stjórn og heyrir stjórnarfarslega undir félags- og húsnæðismálaráðherra. Stofnunin starfar að stjórnsýsluverkefnum á sviði húsnæðismála, mannvirkjamála, rafmagnsöryggismála og brunavarna, fer með samhæfingarhlutverk opinberrar markaðsgæslu, og rekur fasteignaskrá ásamt því að sinna verkefnum því tengdu. Þá heldur HMS einnig utan um landeignaskrá sem er miðlægur, landfræðilegur gagnagrunnur sem geymir upplýsingar um landeignir, hnitsetta afmörkun þeirra, afstöðu og umfang. HMS ber lögum samkvæmt ábyrgð á að stuðla að jafnvægi á húsnæðismarkaði, meðal annars með húsnæðisstuðningi, lánveitingum, rannsóknum, upplýsingagjöf, áætlanagerð og eftirliti. HMS sér einnig um Húsnæðissjóð sem er í eigu og á ábyrgð ríkissjóðs og hefur það hlutverk að fjármagna lánveitingar á samfélagslegum forsendum.Hjá HMS starfa um 160 manns. Með því að sameina starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar verður til öflugri stofnun sem hefur getu til að vinna að þeim kerfisbreytingum í húsnæðismálum sem boðaðar eru í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins dags. 21. desember 2024. Með sameiningu næst fram einföldun stjórnsýslu skipulags- og mannvirkjamála. Ferill frá skipulagi til fullbúins mannvirkis verður hjá einni stofnun gagnvart sveitarfélögum, fasteignaeigendum og öðrum hagsmunaaðilum. Með sameiningu verður aukin áhersla á hagkvæmni í landnýtingu, sjálfbærni og nýtingu auðlinda.

S-120/2025· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. júl. 2025 – 15. ágú. 2025· 18 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs áform um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-120/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. ágúst 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 18 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 256)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (18. febrúar 2026)

Áform um framlagningu frumvarpsins voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 11. júlí 2025 og var veittur frestur til og með 15. ágúst sama ár til að veita umsagnir um áformin. Alls bárust sautján umsagnir um áformin sem komu til skoðunar við lokavinnslu frumvarpsins. Drög að frumvarpinu voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda frá og með 19. september til og með 10. október sama ár.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (18)
  • #1Umbra - þjónustumiðstöð Stjórnarráðsins
    Ábending í tengslum við tæknilega sameiningu Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.   Fyrirhuguð sameining skapar tækifæri til að efla þjónustu og tryggja betri yfirsýn yfir ferla í skipulags- og mannvirkjamálum. Ný stofnun með sterka heildarsýn getur orðið mikilvægur þátttakandi í kerfisbreytingum sem boðaðar hafa verið, en til þess þarf hún að vera tilbúin til virks samstarfs og þátttöku í samræmdum innviðum ríkisins. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur hingað til ekki verið tilbúin að taka þátt í samrekstri á skrifstofuumhverfi ríkisins.   Umbra er rekstraraðili á skrifsto… Lesa alla

    Ábending í tengslum við tæknilega sameiningu Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.   Fyrirhuguð sameining skapar tækifæri til að efla þjónustu og tryggja betri yfirsýn yfir ferla í skipulags- og mannvirkjamálum. Ný stofnun með sterka heildarsýn getur orðið mikilvægur þátttakandi í kerfisbreytingum sem boðaðar hafa verið, en til þess þarf hún að vera tilbúin til virks samstarfs og þátttöku í samræmdum innviðum ríkisins. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur hingað til ekki verið tilbúin að taka þátt í samrekstri á skrifstofuumhverfi ríkisins.   Umbra er rekstraraðili á skrifstofuumhverfi ríkisins fyrir ráðuneytin og allflestar A-hluta stofnanir ríkisins. Samrekstur dregur úr álagi og mannaflaþörf stofnana vegna reksturs á stöðluðum upplýsingatæknilausnum, og gerir þeim þannig kleift að einbeita sér að sínum kjarnarekstri, sérsniðnum lausnum og þjónustu við starfsmenn og notendur. Þar með sparast umtalsverðir fjármunir hjá hverri stofnun og samreksturinn auðveldar til muna samþættingu og sameiningu stofnana í samrekstrinum.   Skipulagsstofnun hefur verið í rekstri hjá Umbru, en Húsnæðis- og mannvirkjastofnun verið með eigin rekstur. Með boðaðri sameiningu þessara stofnana væri því kjörið að nýta tækifærið og færa rekstur skrifstofuumhverfis Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar til Umbru.     Umbra telur því að það sé mikilvægt að breytingin verði ekki einungis formleg heldur fylgi henni raunveruleg samþætting í vinnubrögðum, gagnavinnslu og tæknilausnum í anda samreksturs því þannig getum við betur stutt ráðuneytin og stofnanir þeirra við framtíðar breytingar með lágmörkun á raski og tilkostnaði. Nýja stofnunin ætti að verða virkur þátttakandi í skrifstofuumhverfi ríkisins, samræmdu skýjaumhverfi, sameiginlegum rekstrarinnviðum og stafrænum umbreytingum sem Umbra og Stafrænt Ísland hafa leitt. Þannig má nýta betur tækifæri sem sameiningin gefur til að auka skilvirkni og þjónustugæði á landsvísu.   Við erum tilbúin í nánara samtal við ráðuneytið um útfærslu á ofangreindu fyrirkomulagi.

  • #2Kjartan Þór Ingason

    Ágæti viðtakandi, Í viðhengi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, mál nr. S-120/2025

  • #3Landsvirkjun

    Hér kemur meðfylgjandi umsögn Landsvirkjunar

  • #4Bára Jónsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn Orkuveitunnar.

  • #5Adam Hoffritz
    Ég bendi á að starfsemi Skipulagsstofnunar á lítið sameiginlegt með starfsemi HMS. Skipulagsstofnun fer yfir skipulagsuppdrætti og skipulagsgreinargerðir og hefur eftirlit með að skipulag sé unnið skv. lögum auk þess að vinna að landsskipulagsstefnu. Skipulagsvinna öll er á hendi sveitarfélaga og eru deiliskipulög unnin af eigendum lóða og þeim sem ætla að byggja og megnið af allskonar deiliskipulögum eru afgreidd alfarið á sveitarstjórnarstigi og fara ekki til Skipulagsstofnunar. Skipulagsstofnun hefur ekkert að gera með t.d. þróun húsnæðismála. Það er allt saman á forræði sveitarfélaga. E… Lesa alla

    Ég bendi á að starfsemi Skipulagsstofnunar á lítið sameiginlegt með starfsemi HMS. Skipulagsstofnun fer yfir skipulagsuppdrætti og skipulagsgreinargerðir og hefur eftirlit með að skipulag sé unnið skv. lögum auk þess að vinna að landsskipulagsstefnu. Skipulagsvinna öll er á hendi sveitarfélaga og eru deiliskipulög unnin af eigendum lóða og þeim sem ætla að byggja og megnið af allskonar deiliskipulögum eru afgreidd alfarið á sveitarstjórnarstigi og fara ekki til Skipulagsstofnunar. Skipulagsstofnun hefur ekkert að gera með t.d. þróun húsnæðismála. Það er allt saman á forræði sveitarfélaga. Ef ríkisstjórnin vill efla húsnæðismál þá gerist það ekki hjá Skipulagsstofnun. Einnig fer Skipulagsstofnun með mat á umhverfisáhrifum framkvæmda og er það stærsta svið stofnunarinnar. Þekking á slíku innan HMS er engin enda hefur starfssemi HMS ekkert með umhverfismál að gera. Hvernig er það hagkvæmt að sameina stofnun við aðra stofnun þar sem engin þekking er til staðar á einum stærsta málaflokknum? Það mun ekkert sparast á því. Miklu nær væri að sameina Skipulagsstofnun og Umhverfis- og orkustofnun. Þar yrði til öflug stofnun sem gæti skoðað skipulagsmál með umhverfismál og sjálfbærnis markmið að leiðarljósi. Þar eru sérfræðingarnir í þeim málaflokkum og það er það sem skiptir máli við gerð skipulaga. Umhverfis- og orkustofnun þarf að auki að gefa álit á fjölmörgum deiliskipulögum, aðalskipulögum og umhverfismati og að það myndi stytta boðleiðir verulega að mat á umhverfisáhrifum væri þar. Sameining þessara stofnana eflir hvoruga stofnun. Sameining sameiningar vegna skilar aldrei sparnaði og skipulagsmál munu týnast algjörlega innan HMS.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-120/2025: Áform um frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna sameiningar starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar · Alviti