Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-118/2025 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Áform um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2026-2029

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs áform um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2026-2029.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: mars).

Samkvæmt 7. gr. laga um málefni innflytjenda nr. 116/2012 skal ráðherra leggja fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda til fjögurra ára í senn að fenginni umsögn annarra ráðuneyta, stofnana, Vinnumálastofnunar og innflytjendaráðs.Í tillögunni skal kveða á um verkefni sem hafa það að markmiði að stuðla að samfélagi þar sem allir einstaklingar geta verið virkir þátttakendur óháð þjóðerni og uppruna. Framkvæmd, ábyrgð og áætlaður kostnaður verkefna skulu tilgreind í áætluninni ásamt því hvernig mati á árangri aðgerða skuli háttað. Gildandi framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda gildir út árið 2025 og er úrlausnarefnið að vinna að nýrri áætlun fyrir árin 2026-2029.

S-118/2025· Annað· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 11. júl. 2025 – 15. ágú. 2025· 6 umsagnir

Áform um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2026-2029

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið kynnir til samráðs áform um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2026-2029.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-118/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 15. ágúst 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar
  5. Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 597)
Niðurstöður samráðs (17. febrúar 2026)

Alls bárust sex umsagnir; nánar tiltekið frá Alþýðusambandi Íslands, Barnaheill, Félagsráðgjafafélagi Íslands, Landssamtökunum Þroskahjálp, Rauða krossins á Íslandi og ÖBÍ réttindasamtökum. Umsögnum var vísað til innflytjendaráðs til umfjöllunar við gerð tillögu að framkvæmdaáætlun

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-118/2025: Áform um tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda 2026-2029 · Alviti