Frumvarp til laga um almannavarnir
Drög að frumvarpi til nýrra heildarlaga um almannavarnir.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-114/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 18. ágúst 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 79 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 287)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (79)
- #1Svavar Kjarrval Lúthersson
Vakin er athygli ráðuneytisins á 11. gr. Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF), er fjallar um hættu- og neyðarástand. Gagnrýnisvert er að hvorki frumvarpið né greinargerðin, einkum kaflinn um samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar, minnist ekki einu orði á þennan samning og þetta ákvæði. Þá er einnig hægt að vísa til 3. liðar svars dómsmálaráðherra á þskj. 733 á 154. löggjafarþingi og þeirrar staðreyndar að engin samtök fatlaðs fólks fengu boð um þátttöku skv. listanum hér á samráðsgáttinni eða sérstakra yfirlýsinga í greinargerð. Það er ekki að ástæðulausu sem 11. gr.… Lesa alla
Vakin er athygli ráðuneytisins á 11. gr. Samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks (SRFF), er fjallar um hættu- og neyðarástand. Gagnrýnisvert er að hvorki frumvarpið né greinargerðin, einkum kaflinn um samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar, minnist ekki einu orði á þennan samning og þetta ákvæði. Þá er einnig hægt að vísa til 3. liðar svars dómsmálaráðherra á þskj. 733 á 154. löggjafarþingi og þeirrar staðreyndar að engin samtök fatlaðs fólks fengu boð um þátttöku skv. listanum hér á samráðsgáttinni eða sérstakra yfirlýsinga í greinargerð. Það er ekki að ástæðulausu sem 11. gr. SRFF var samin enda talsverðar áhyggjur að ríki láti neyðaraðstoð við fatlað fólk sæta afgangi. Umsagnaraðili hefur því talsverðar áhyggjur að svo verði áfram í framkvæmd, meðal annars með hliðsjón af því að eingöngu einu sinni er vísað í fatlað fólk í frumvarpinu og greinargerðinni samanlagt, sem upptalningu í dæmaskyni um viðkvæma hópa. Þó það sé jákvætt að setja nýmæli um að gæta sérstöðu viðkvæmra hópa er eingöngu minnst á það hugtak einu sinni í frumvarpinu sjálfu, en það er í tengslum við viðbragðsáætlun. Ekki er t.a.m. gert sérstaklega ráð fyrir aðkomu fatlaðs fólks eða samtaka þeirra í nokkru öðru er kemur að framkvæmd laganna, svo sem í samráðshópi ríkislögreglustjóra skv. 11. gr. eða veitingu umsagna um viðbragðsáætlanirnar sjálfar eða jafnvel snið þeirra. Almennt séð mættu vera fleiri/sterkari ákvæði með jákvæðum skyldum til þess að gæta að viðkvæmum hópum við framkvæmd fyrirhugaðra laga og/eða að lágmarki samráðsskyldu við samtök þeirra hópa við undirbúning viðbragða við atburðum sem frumvarpið á að ná yfir. Ef slík skylda er ekki orðuð sérstaklega er mikil hætta á að hún verði ekki talin vera til staðar eða framkvæmdin sundurleit. Miðað við fyrri reynslu er það ekki traustvekjandi ef það er talið duga að vísa til mikilvægra hópa sem þessara í orðskýringargrein.
- #2Persónuvernd
Sjá meðfylgjandi umsögn Persónuverndar.
- #3Garðar Agnar Garðarsson
Athugasemdir við 44. grein um almenna borgaralega skyldu. Ef almennur borgari er kvaddur til starfa á hættustundu án endurgjalds, væntanlega frá daglegri vinnu sinni í einkageiranum, hvar á hann þá að fá tekjutapið bætt? Ætla má að almennur borgari sem vinnur hjá hinu opinbera, hvort sem það er á vegum sveitarfélags eða ríkisins haldi launum sínum þar, þó svo að hann sé kvaddur til starfa á vegum almannavarna. Það er ekki á vísan að róa ef viðkomandi er í einkageiranum. Hann gæti verið launalaus með öllu. Það er ekki hægt að vísa til góðmennsku launagreiðenda um að viðkomandi haldi óskert… Lesa alla
Athugasemdir við 44. grein um almenna borgaralega skyldu. Ef almennur borgari er kvaddur til starfa á hættustundu án endurgjalds, væntanlega frá daglegri vinnu sinni í einkageiranum, hvar á hann þá að fá tekjutapið bætt? Ætla má að almennur borgari sem vinnur hjá hinu opinbera, hvort sem það er á vegum sveitarfélags eða ríkisins haldi launum sínum þar, þó svo að hann sé kvaddur til starfa á vegum almannavarna. Það er ekki á vísan að róa ef viðkomandi er í einkageiranum. Hann gæti verið launalaus með öllu. Það er ekki hægt að vísa til góðmennsku launagreiðenda um að viðkomandi haldi óskertum launum í allt öðru hlutverki heldur en hann réð sig til. Því þarf að setja inn ákvæði um að þeir sem kvaddir eru til starfa fái laun fyrir starf sitt. Síðasta málsgrein 44. greinar tekur af öll tvímæli um að þeir sem kvaddir hafa verið til starfa í þágu almannavarna eigi rétt á bótum ef þeir verði fyrir meiðslum eða tjóni á námskeiði eða æfingu. Það er vel. Eftir stendur ef almennur borgari sem kvaddur hefur verið til starfa á vegum almannavarna, er að vinna í þágu almannavarna á hættustund, er viðkomandi ekki með neinn bótarétt ef hann verður fyrir meiðslum eða tjóni. Allavega er það ekki tekið fram. Það þarf að vera algjörlega á hreinu að almennir borgarar eru vel tryggðir meðan þeir vinna í þágu almannavarna, því ætla má það geti verið töluvert hættulegra en dagleg störf viðkomandi.
- #4Elinóra Inga Sigurðardóttir
Nýtt frumvarp dómsmálaráðherra, Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur, kveður á um borgaralega skyldu allra Íslendinga á aldrinum 18–65 ára til að mæta til þjónustu við ríkislögreglustjóra án endurgjalds þegar hættustund ríður á. Þar með fellur niður ferðafrelsi, atvinnufrelsi og grundvallarréttindi. Nauðungarvinna verður lögboðin, með refsiábyrgð við brot. Slíkt frumvarp brýtur beinlínis gegn 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands: „Nauðungarvinnu skal engum gert að leysa af hendi.“ Ég vil að Ísland verði áfram fullvalda, herlaust, hlutlaust og friðelskandi land. Ég mótmæli því að afkomendur mín… Lesa alla
Nýtt frumvarp dómsmálaráðherra, Þorbjargar S. Gunnlaugsdóttur, kveður á um borgaralega skyldu allra Íslendinga á aldrinum 18–65 ára til að mæta til þjónustu við ríkislögreglustjóra án endurgjalds þegar hættustund ríður á. Þar með fellur niður ferðafrelsi, atvinnufrelsi og grundvallarréttindi. Nauðungarvinna verður lögboðin, með refsiábyrgð við brot. Slíkt frumvarp brýtur beinlínis gegn 68. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands: „Nauðungarvinnu skal engum gert að leysa af hendi.“ Ég vil að Ísland verði áfram fullvalda, herlaust, hlutlaust og friðelskandi land. Ég mótmæli því að afkomendur mínir verði nauðbeygðir sendir í her, sem í þessu frumvarpi er sett undir falskt flagg "almannavarna"
- #5Guðmundur Benediktsson
Mótmæli harðlega.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.