Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-105/2025 · Dómsmálaráðuneytið

Áform um breytingar á 112. gr. almennra hegningarlaga um tálmun lögreglurannsóknar

Áform um breytingar á 112. gr. almennra hegningarlaga um tálmun lögreglurannsóknar

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: febrúar).

Dómsmálaráðuneytið hefur haft til skoðunar þær aðstæður, sem fjallað er um í 112. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940, sem geta komið upp þegar náinn aðstandandi aðstoðar einstakling sem grunaður er um að hafa framið afbrot með því að tálma rannsókn lögreglu, til dæmis með því að eyðileggja, breyta eða koma undan sönnunargögnum eða raska ummerkjum brots. Sú skoðun hefur leitt í ljós að ef um er ræða náinn vandamann þá er slík tálmun alltaf refsilaus, sama hversu langt viðkomandi gengur í aðstoð sinni. Ákvæði 112. gr. almennra hegningarlaga hefur staðið óbreytt frá gildistöku laganna að því frátöldu að árið 1998 var varðhald fellt brott sem viðurlagategund. Hliðstætt ákvæði var að finna í 111. gr. almennra hegningarlaga frá 25. júní 1869. Fyrirhuguð er endurskoðun á þessari tilhögun þ. á m. á því hvort eða að hvaða leyti slík háttsemi eigi að vera refsilaus. Er þá litið til þess tálmun lögreglurannsóknar er fallin til þess að gera lögreglu og ákæruvaldi erfiðara fyrir við rannsókn mála enda gegnir öflun og meðferð sönnunargagna lykilhlutverki við það að upplýsa sakamál og stuðlar að því að rétt verði leyst úr þeim. Ekki er útilokað að í einhverjum tilvikum leiði tálmun sakamálarannsóknar til þess að sá sem fremur afbrot komist undan refsiábyrgð. Fyrst og fremst er áformað að endurskoða 3. mgr. 112. gr. almennra hegningarlaga en jafnframt verður til athugunar hvort tilefni sé til að endurskoða aðrar málsgreinar ákvæðisins að einhverju leyti.

S-105/2025· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. jún. 2025 – 21. júl. 2025· 0 umsagnir

Áform um breytingar á 112. gr. almennra hegningarlaga um tálmun lögreglurannsóknar

Áform um breytingar á 112. gr. almennra hegningarlaga um tálmun lögreglurannsóknar

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-105/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. júlí 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 0 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (24. september 2026)

Málið er til skoðunar í dómsmálaráðuneytinu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt

Engar umsagnir hafa borist.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-105/2025: Áform um breytingar á 112. gr. almennra hegningarlaga um tálmun lögreglurannsóknar · Alviti