Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-101/2025 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Frumvarp til laga um uppbótarskatt á skattstofna innan samstæðna sem sæta lægri skatti en lágmarksskatti

Frumvarp til laga um lágmarksskatt (15%) á fjölþjóðleg stórfyrirtæki.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október).

Frumvarpið felur í samræmdar reglur um 15% alþjóðlegs lágmarksskatts fjölþjóðlegra samstæðna með tekjur umfram 750 milljón evra, með það að markmiði að draga úr skaðlegri skattasamkeppni á milli landa. Fyrirmynd reglnanna hefur verið samin á vettvangi OECD (Inclusive Framework) sem 140 lönd hafa sammælst um að taka upp m.a. Evrópusambandið, en frumvarpið er samið á grundvelli reglna þess. Gert er ráð fyrir að Ísland verði bæði fyrir beinum og óbeinum áhrifum vegna innleiðingar alþjóðlegs lágmarksskatts. Með upptöku reglna um hæfan innlendan uppbótarskatt (QDMTT) og tekjuviðbót (IIR), líkt og lagt er til í þessu frumvarpi, verður Ísland fyrir beinum áhrifum í formi aukinna skatttekna. Taki Ísland ekki upp reglu um innlendan uppbótarskatt færist skattlagningarétturinn til annarra ríkja þó svo að hagnaðurinn myndist hjá grunneiningu með starfsemi á Íslandi. Því er Ísland að tryggja að hagnaðurinn sem myndast hér á landi verði skattalagður innanlands samkvæmt reglu um uppbótarskatt. Þau óbeinu áhrif sem Ísland verður fyrir þegar settar eru skorður á skattasniðgöngu og skaðlega skattasamkeppni milli ríkja munu þegar uppi er staðið vega töluvert þyngra. Óbeinu áhrifin koma fram sem viðbrögð fjölþjóðlegra fyrirtækja og stjórnvalda við skattlagningu þar sem þau bregðast við nýjum hvötum. Ekki er gert ráð fyrir að mörg móðurfélög á Íslandi komi til með að falla undir reglurnar vegna hins háa tekjuþröskuldar en talið að nokkrar dóttureiningar erlendra samstæðna, með skattalegt heimilisfesti á Íslandi, muni falla undir reglurnar. Í þeim tilvikum er það í höndum móðureiningarinnar að skila inn upplýsingum til íslenskra skattyfirvalda. Verði frumvarpið að lögum koma reglurnar ekki til með að hafa áhrif að venjuleg íslensk fyrirtæki né einstaklinga.

S-101/2025· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 5. jún. 2025 – 12. ágú. 2025· 3 umsagnir

Frumvarp til laga um uppbótarskatt á skattstofna innan samstæðna sem sæta lægri skatti en lágmarksskatti

Frumvarp til laga um lágmarksskatt (15%) á fjölþjóðleg stórfyrirtæki.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-101/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 12. ágúst 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (25. ágúst 2026)

Þrjár umsagnir bárust. Frumvarpið er í endurskoðun og verða ný áform lög fram í haust. Umsagnir sem bárust verða teknar til skoðunar við áframhaldandi vinnslu málsins.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-101/2025: Frumvarp til laga um uppbótarskatt á skattstofna innan samstæðna sem sæta lægri skatti en lágmarksskatti · Alviti