Frumvarp til laga um loftslagsmál
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti kynnir til samráðs drög að frumvarpi um setningu nýrra heildarlaga um loftslagsmál.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-97/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 29. ágúst 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 32 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 595)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (32)
- #1Vinstrihreyfingin-Grænt framboð
Umsögn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um frumvarp til laga um loftslagsmál Vinstrihreyfingin – grænt framboð fagnar því að frumvarp til laga um loftslagsmál hafi verið lagt fram, þar sem það staðfestir mikilvægi loftslagsmála í opinberri stefnumótun. Hins vegar teljum við að frumvarpið, eins og það liggur fyrir, skorti nauðsynlegar skuldbindingar og aðgerðir til að ná markmiðum um kolefnishlutleysi og aðlögun að loftslagsbreytingum. Við viljum því koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri: 1. Skortur á lagalega bindandi markmiðum Í 4. gr. er kveðið á um að ráðherra skuli láta vinna… Lesa alla
Umsögn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um frumvarp til laga um loftslagsmál Vinstrihreyfingin – grænt framboð fagnar því að frumvarp til laga um loftslagsmál hafi verið lagt fram, þar sem það staðfestir mikilvægi loftslagsmála í opinberri stefnumótun. Hins vegar teljum við að frumvarpið, eins og það liggur fyrir, skorti nauðsynlegar skuldbindingar og aðgerðir til að ná markmiðum um kolefnishlutleysi og aðlögun að loftslagsbreytingum. Við viljum því koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri: 1. Skortur á lagalega bindandi markmiðum Í 4. gr. er kveðið á um að ráðherra skuli láta vinna langtímastefnu í loftslagsmálum og endurskoða hana á fimm ára fresti. Hins vegar eru engar lagalega bindandi skuldbindingar um árangur eða viðurlög við vanefndum. Þetta skapar óvissu um framkvæmd og ábyrgð. VG leggur til að skýrt verði kveðið á um lagalega bindandi markmið og ábyrgðarskyldu stjórnvalda til að tryggja raunhæfa framkvæmd. Lagalega bindandi markmið þurfa að vera bæði til lengri og skemmri tíma. 2. Ónákvæm skilgreining á kolefnishlutleysi Í 5. gr. er kolefnishlutleysi skilgreint sem ástand þar sem jafnvægi hefur náðst milli losunar gróðurhúsalofttegunda og bindingar kolefnis af mannavöldum. Þessi skilgreining gefur möguleika á að treysta um of á kolefnisjöfnun í stað raunverulegs samdráttar í losun. VG telur mikilvægt að lögin setji skýrari áherslu á að forgangsraða beinum samdrætti í losun umfram kolefnisjöfnun með kaupum á kolefniseiningum. Í skilgreiningunni á kolefnishlutleysi í lögum þarf að koma fram að það eigi við um alla losun sem á sér stað á Íslandi (þ.m.t. vegna landnotkunar) og frá öllum geirum (sector-wide targets er lykilhugtak á vettvangi UNFCCC sem er verið að þrýsta lönd á að setja inn í NDC hjá sér). 3. Takmarkað samráð og þátttaka almennings Frumvarpið kveður ekki á um skyldu til samráðs við almenning eða hagsmunaaðila við gerð og endurskoðun loftslagsstefnu. Þetta er í andstöðu við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands um þátttöku almennings í umhverfismálum. VG leggur til að lögfestar verði skýrar reglur um samráð og þátttöku almennings og hagsmunaaðila í stefnumótun og ákvörðunartöku í loftslagsmálum. 4. Skortur á fjárhagslegum skuldbindingum Frumvarpið fjallar ekki um fjármögnun loftslagsaðgerða eða hvernig tryggja eigi nauðsynleg fjárframlög til að ná markmiðum laganna. VG telur nauðsynlegt að lögin kveði á um fjárhagslegar skuldbindingar og aðgerðaáætlanir sem tryggja að markmiðin verði raunhæf og framkvæmanleg. Hér er einnig rétt að vísa til tilmæla IPCC um að verja 2-6% af VLF í loftslagsmál og skoða kosti þess að sett verði inn í lögin skuldbinding um að verja 4% af VLF í loftslagsaðgerðir. 5. Ónóg aðlögun að loftslagsbreytingum Þó að markmið laganna sé að íslenskt samfélag og lífríki aðlagist loftslagsbreytingum, skortir frumvarpið skýrari ramma fyrir aðgerðir og áætlanir um hvernig þessi aðlögun eigi að fara fram. VG leggur til að lögin kveði á um gerð aðlögunaráætlana fyrir mismunandi geira samfélagsins, með áherslu á viðkvæma hópa og vistkerfi. Niðurstaða VG telur að frumvarpið, eins og það liggur fyrir, skorti nauðsynlegar skuldbindingar, skýrari ramma um aðgerðaáætlanir og þátttöku almennings til að tryggja árangur í loftslagsmálum. Við hvetjum til endurskoðunar á frumvarpinu með það að markmiði að styrkja lagalega bindandi skuldbindingar, tryggja raunhæfa framkvæmd og auka þátttöku almennings og hagsmunaaðila.
- #2Sigurpáll Ingibergsson
Hellnasker, ung hugveita á sviði sjálfbærni og umhverfismála, fagnar framlagningu frumvarpsins sem mikilvægu skrefi í mótun heildstæðrar loftslagsstefnu. Hugveitan leggur þó ríka áherslu á að lagasetning skili raunverulegum breytingum – einkum með skýrari ábyrgð fyrirtækja á losun, fjárhagslegum hvötum til að innheimta samfélagslegan kostnað losunar, og aukinni þekkingu í loftslagsvísindum. Helstu atriði umsagnarinnar eru eftirfarandi: - Réttlát umskipti: Ekki bara markmið heldur ferli - Loftslagsbókhald og ábyrgð stórlosenda - Samfélagslegur kostnaður vegna losunar og mengunarbætur - Vísindal… Lesa alla
Hellnasker, ung hugveita á sviði sjálfbærni og umhverfismála, fagnar framlagningu frumvarpsins sem mikilvægu skrefi í mótun heildstæðrar loftslagsstefnu. Hugveitan leggur þó ríka áherslu á að lagasetning skili raunverulegum breytingum – einkum með skýrari ábyrgð fyrirtækja á losun, fjárhagslegum hvötum til að innheimta samfélagslegan kostnað losunar, og aukinni þekkingu í loftslagsvísindum. Helstu atriði umsagnarinnar eru eftirfarandi: - Réttlát umskipti: Ekki bara markmið heldur ferli - Loftslagsbókhald og ábyrgð stórlosenda - Samfélagslegur kostnaður vegna losunar og mengunarbætur - Vísindalegar rannsóknir og þátttaka Íslands í AMOC-rannsóknum - Þjóðarátak í náttúruvernd og vernd líffræðilegrar fjölbreytni - Ákall til stjórnvalda - Lokaorð Þungamiðjan er að of fá stórfyrirtæki leggja sitt af mörkum í þágu loftslagsmála. Aðeins eitt af 50 stærstu fyrirtækjum landsins nær að draga úr losun í samræmi við Parísarsamkomulagið. Réttlát umskipti snúast um að allir taki þátt í vinnunni framundan. Setja þarf sérstök lög um fyrirtæki sem losa meira en 20 þúsund tonn af CO2í. Skilgreind eru markmið og tímarammi. Loftslagslögin mega ekki vera draumur um 2040 – þau verða að vera verkfæri 2026
- #3Páll Gunnarsson
Umsögn um loftslagsáhættu utan aðlögunarhæfni og loftslagsverkfræði.
- #4Valdimar Össurarson
Tímabært frumvarp og um flest ágætt. Einn stóran ágalla þarf þó að laga fyrir framlagningu. Sjá viðhengi.
- #5Fjórðungssamband Vestfirðinga
Umsögn Fjórðungssambands Vestfirðinga
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.