Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-95/2025 · Dómsmálaráðuneytið

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 og lögum um stjórnsýslu jafnréttismála nr. 151/2020 (jafnlaunakerfi)

Lög og reglur um jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana verða endurskoðuð með tilliti til reynslu af kerfinu og ábendinga sem fram hafa komið um framkvæmd þess.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: nóvember).

Skylda fyrirtækja og stofnana til innleiðingar jafnlaunavottunar sem byggist á jafnlaunastaðlinum ÍST 85/2012 var lögfest árið 2017 með lögum um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 10/2008, með síðari breytingum (jafnlaunavottun). Með breytingu á jafnréttislögunum árið 2020 var minnstu fyrirtækjum á almenna markaðnum (með 25-49 starfsmönnum) gefinn kostur á að velja á milli þess að fá jafnlaunavottun eða jafnlaunastaðfestingu, sem framkvæmd er af Jafnréttisstofu sem er einfaldari og kostnaðarminni í framkvæmd. Nú þegar nokkur ár eru liðin frá því að framangreind lög tóku gildi er ástæða til að endurskoða lög og reglur um jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana með tilliti til reynslu af kerfinu og ábendinga sem fram hafa komið um framkvæmd þess. Einnig verður horft til tillagna starfshóps forsætisráðherra um hagræðingu í ríkisrekstri sem skilað var til ríkisstjórnar 4. mars sl. um að létt verði á jafnlaunavottun og stærðarmörk hækkuð. Tilskipun Evrópusambandsins 2023/970 um launagagnsæi verður auk þess höfð til hliðsjónar. Markmiðið er að einfalda gildandi jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana í ljósi fenginnar reynslu. Gera ferlið skilvirkara, hagkvæmara og draga úr kostnaði við framkvæmd þess fyrir fyrirtæki og stofnanir að teknu tilliti til markmiða jafnréttislaga um launajafnrétti milli kvenna og karla.

S-95/2025· Áform um lagasetningu· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 2. jún. 2025 – 7. júl. 2025· 13 umsagnir

Frumvarp til laga um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 og lögum um stjórnsýslu jafnréttismála nr. 151/2020 (jafnlaunakerfi)

Lög og reglur um jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana verða endurskoðuð með tilliti til reynslu af kerfinu og ábendinga sem fram hafa komið um framkvæmd þess.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-95/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. júlí 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (11. júlí 2025)

Ráðuneytinu bárust 13 umsagnir um áformin. Umsagnirnar verða teknar til skoðunar við vinnslu fyrirhugaðs frumvarps. Þegar frumvarpið liggur fyrir verður það sett í Samráðsgátt og kostur gefinn á athugasemdum.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-95/2025: Frumvarp til laga um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020 og lögum um stjórnsýslu jafnréttismála nr. 151/2020 (jafnlaunakerfi) · Alviti