Áform um frumvarp til laga um brottfall á lögum nr, 42/2007, um Heyrnar- og talmeinastöð
Heilbrigðisráðuneytið kynnir til umsagnar áform um frumvarp til laga um brottfall á lögum nr. 42/2007, um Heyrnar- og talmeinastöð.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-93/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 10. júní 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 16 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 238)
Niðurstöður samráðs (8. september 2025)
Það bárust 16 umsagnir við áformin sem teknar verða til skoðunar við vinnslu frumvarps til laga um breytingu á lögum um Heyrnar- og talmeinastöð en frumvarpsdrögin munu einnig verða birt í Samráðsgátt stjórnvalda.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (16)
- #1Jónas Rafn Jónsson
Hæ MER LYST ILLA A AÐ LEGGJA NIÐUR HEYRNA OG TALMEINMA ÞAR SEM SONUR MINN ER MEÐ VERULEGA SKERTA HEYRN OG HEFUR FENGIÐ ALLA SINA ÞJONUSTU HJE HEYRNA OG TALMEINA ER BUSETTUR A AKUREYRI.HANN ER VERULEGA A EFTIR SYNUM JAFNOLDRUM HVAÐ TEKKUR VIÐ EF HEYRNA OG TALMEINA VERÐUR LOGÐ NIÐUR
- #2Anna Ósk Sigurðardóttir
Erindi frá talmeinafræðingum Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands vegna áforma um lagasetningu um brottfall laga nr. 42/2007 Við, undirritaðir talmeinafræðingar Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands (HTÍ), viljum koma á framfæri athugasemdum við fyrirhuguð áform um brottfall laga nr. 42/2007 og að HTÍ verði lögð niður í núverandi mynd, sbr. drög að frumvarpi og frummati á áhrifum sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda. Talmeinafræðingar eru löggilt heilbrigðisstétt sem gegnir lykilhlutverki í greiningu, íhlutun og eftirfylgni við mál- og talmein og hafa starfað innan HTÍ frá stofnun henn… Lesa alla
Erindi frá talmeinafræðingum Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands vegna áforma um lagasetningu um brottfall laga nr. 42/2007 Við, undirritaðir talmeinafræðingar Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands (HTÍ), viljum koma á framfæri athugasemdum við fyrirhuguð áform um brottfall laga nr. 42/2007 og að HTÍ verði lögð niður í núverandi mynd, sbr. drög að frumvarpi og frummati á áhrifum sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda. Talmeinafræðingar eru löggilt heilbrigðisstétt sem gegnir lykilhlutverki í greiningu, íhlutun og eftirfylgni við mál- og talmein og hafa starfað innan HTÍ frá stofnun hennar. Við viljum árétta að við erum ekki andvíg því að starfsemi HTÍ verði endurskipulögð. Hins vegar er okkur umhugað um að sú þjónusta sem HTÍ hefur veitt – og þá sér í lagi sérhæfð talmeinaþjónusta við viðkvæma skjólstæðingahópa – fái áfram skýran farveg innan nýs fyrirkomulags. Enginn hópur á að verða útundan í þeirri breytingu sem nú er fyrirhuguð. Við viljum í því samhengi koma á framfæri eftirfarandi atriðum: 1. Talmeinaþjónusta er órjúfanlegur hluti af þjónustu HTÍ. Í áformum um lagasetningu og mati á áhrifum er víða fjallað um heyrnarþjónustu, en hvergi sérstaklega minnst á talmeinaþjónustu. Hvorki hefur verið fjallað um hlutverk talmeinaþjónustu innan stofnunarinnar eða um sérhæfða talmeinaþjónustu við afmarkaða skjólstæðingahópa. Þá er ekki tiltekið að sérhæft fagfólk í talmeinaþjónustu sé meðal hagsmunaaðila, þrátt fyrir að sinna hluta af þeirri þjónustu sem frumvarpið nær yfir. Á stofnuninni eru framkvæmdar mælingar af talmeinafræðingum sem ekki eru framkvæmdar annars staðar á Íslandi, s.s. nefjunarmælingar. Verklag hefur verið mótað um mat á málþroska og fræðslu til foreldra í kjölfar 18 mánaða skoðunar sem hætt var með vegna skorts á fjármagni og manneklu, en brýn nauðsyn er á slíku inngripi. Talmeinafræðingar stofnunarinnar sinna einnig handleiðslu talmeinafræðinema, starfsnámi og kennslu við Háskóla Íslands. Stofnunin hefur jafnframt sinnt útgáfu prófa. Nauðsynlegt er að tryggja að þessi þekking glatist ekki við endurskipulagningu stofnunarinnar. 2. HTÍ sinnir sérhæfðri talmeinaþjónustu á landsvísu við viðkvæma hópa sem eru hvergi tilgreindir í fyrirhuguðum breytingum. Þeir hópar og sú þjónusta er eftirfarandi: • Börn með skarð í góm/vör: málþroskaeftirlit, talþjálfun, þverfaglegt samstarf og ráðgjöf. • Fullorðnir með kuðungsígræðslu: endurhæfing, hlustunarþjálfun og talgreining. • Börn með heyrnarskerðingu og/eða kuðungsígræðslu: hæfing, hlustunarþjálfun, málþroskaeftirlit og fræðsla. • Nemendur með heyrnarskerðingu í Hlíðaskóla og leikskólanum Sólborg. • CODA börn: eftirfylgni og stuðningur eftir þörfum Öllum þessum hópum býðst talþjálfun ef þörf er á. Þessi þjónusta er sérhæfð, oft þverfagleg, og krefst sérþekkingar og samfelldrar eftirfylgni. Hún er einnig mikilvægur liður í því að aðrar meðferðir (s.s. skurðaðgerðir eða tækjabúnaður) skili tilætluðum árangri. 3. Talmeinaþjónusta skiptir sköpum fyrir árangur snemmtækrar íhlutunar og lýðheilsu. Tal og mál er hornsteinn samskipta og náms. Sérhæfð talmeinaþjónusta stuðlar að bættri félagslegri þátttöku, námsárangri, líðan og framgangi í lífi – sér í lagi hjá börnum. Það er því alvarlegt að hún sé ekki sérstaklega nefnd í markmiðum lagasetningar, þrátt fyrir að hún sé lykilforsenda fyrir gæðum og samfellu annarrar þjónustu innan HTÍ. 4. Þjónustan við börn með skarð í góm og/eða vör er þegar brotakennd og gæti versnað til muna. Þessi hópur fær nú þegar takmarkaða og slitrótta þjónustu. Ef ekki er sérstaklega hugað að þeim í nýju skipulagi, óttumst við að þjónusta við þau verði enn ómarkvissari, sem er óásættanlegt gagnvart þessum viðkvæmu börnum og fjölskyldum þeirra. Við teljum ófrávíkjanlegt að tryggt verði að sérhæfð talmeinaþjónusta fái áfram skýrt hlutverk innan nýrrar þjónustueiningar. Við ítrekum mikilvægi þess að talmeinafræðingar HTÍ fái aðkomu að áframhaldandi mótun skipulagsins, til að tryggja faglega heildarsýn, samfellu og gæði þjónustu fyrir alla skjólstæðingahópa. Virðingarfyllst, Anna Ósk Sigurðardóttir Iðunn Kristínardóttir Ösp Vilberg Baldursdóttir
- #3Telma Sigtryggsdóttir
Heilbrigðisráðuneytið Síðumúla 24 108 Reykjavík Efni: Áform um frumvarp til laga um brotfall á lögum nr. 42/2007, um Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ). 1. Inngangur: Heyrnarhjálp er landssamtök þeirra sem eru heyrnarskertir, hafa misst heyrn að hluta eða alveg, þeirra er þjást af eyrnasuði og öðrum vandamálum er snúa að heyrn. Félagið var stofnað 14.nóvember árið 1937. 2. Heyrnarhjálp fagnaði því þegar að heilbrigðisráðuneytið ákvað í júlí 2024 að skipa starfshóp um stefnumótun í heyrnarþjónustu. Heyrnarskertir hafa ekki fengið þá þjónustu sem þeim ber í áraraðir. Afrakstur starfshópsin… Lesa alla
Heilbrigðisráðuneytið Síðumúla 24 108 Reykjavík Efni: Áform um frumvarp til laga um brotfall á lögum nr. 42/2007, um Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ). 1. Inngangur: Heyrnarhjálp er landssamtök þeirra sem eru heyrnarskertir, hafa misst heyrn að hluta eða alveg, þeirra er þjást af eyrnasuði og öðrum vandamálum er snúa að heyrn. Félagið var stofnað 14.nóvember árið 1937. 2. Heyrnarhjálp fagnaði því þegar að heilbrigðisráðuneytið ákvað í júlí 2024 að skipa starfshóp um stefnumótun í heyrnarþjónustu. Heyrnarskertir hafa ekki fengið þá þjónustu sem þeim ber í áraraðir. Afrakstur starfshópsins var greinagóð skýrsla. Starfshópurinn lagði meðal annars til að sett yrði á fót sérhæfð þverfagleg þjónustueining innan Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins í stað HTÍ. Áform um frumvarp til laga um brotföll á lögum nr. 42/2007, um Heyrnar- og talmeinastöð er sett fram í kjölfar skýrslu starfshópsins. Athugasemdir og ábendingar Heyrnarhjálpar varðandi áform og frumvarp um niðurfellingu HTÍ: 1) Ekki er talað um aukið fjárframlag til þess að bæta þjónustu við þennan hóp. Heyrnarhjálp hefur miklar áhyggjur af því að ekki verði mögulegt að sinna þjónustunni sem skyldi ef að fjármagn er ekki fyrirhugað til breytinga. Heilsugæslan er nú þegar að sliga undan álagi, mönnunarvanda og fjármagnsvanda. Fjármagnið verður að vera til staðar sem og að hugsað sé vel til mönnunar. Ef að vel er hugsað um framtíðina þá getur sameining HTI og Heilsugæslunnar eflaust leitt til sparnaðar í ríkisrekstri. En það krefst aðgerðaráætlunar. 2) Heyrnarhjálp vill leggja áherslu á mikilvægi þess að ekki verði rof á þjónustu vegna þessarar breytinga. Skipuleggja verði vel yfirfærsluna áður en að henni verður. Okkar hópur fólks þarf á þjónustunni að halda til þess að geta tekið þátt í daglegu lífi. Einnig verður að tryggja að þjónustan verði á landsvísu og aðgengileg öllum. 3) Heyrnarhjálp vill benda á það að ekki er gert ráð fyrir talmeinum í skýrslu starfshóps um stefnumótun við heyrnarskerta og ekkert er minnst á það við áform þessi, hver grípur þennan hóp. Talmeinaþjónusta er órjúfanlegur hluti af þjónustu HTÍ. Talmeinafræðingar gegna mikilvægu hlutverki í greiningu, meðferð og eftirfylgni við ýmiskonar mál og talmein. Það þarf að liggja skýrt fyrir hvar starfsemi talmeinafræðinga á að vera og hvernig á að veita skjólstæðingum þá nauðsynlegu þjónustu sem þeir þurfa. Tryggja þarf að ekki verði rof á veitri þjónustu við þá sem þurfa á talmeinafræðing að halda. 4) Heyrnarhjáp vill leggja áherslu á mikilvægi fræðslu og stuðnings í fyrsta stigs þjónustu við okkar hóp. Við mælumst til þess að skimun barna á grunnskólaaldri verði tekin upp aftur og farið verði í að rannsaka enn betur ávinning þess og bera saman við Norðurlöndin. 5) Heyrnarhjálp leggur áherslu á bætt aðgengi að 1. og 2. Stigs þjónustu í kjölfar breytinga. Aðgengi að 1. og 2.stigs þjónustu þarf að vera aðgengileg í öllum landshlutum. Aðgengi að grunnmælingum og skimun þarf að vera í boði fyrir alla sama hvar búseta er. 6) Heyrnarhjálp vill leggja áherslu á mikilvægi þess að tryggja fjármagn til námsbrautar Símenntunar Háskólans á Akureyri í Heyrnarfræði. Mikil vöntun er á heyrnarfræðingum á Íslandi og gera verður allt til þess að tryggja að starfsstéttin lifi. Það sama gildir um nám í táknmálsfræðum. Ef tryggja á jafnt aðgengi allra að þjónustu við heilsugæslu og rétt til jafns aðgengis að öllu daglegu lífi þá er mjög mikilvægt að tryggja námi í starfsstéttum þeim nefndum hér að ofan. Einnig er mikilvægt að auglýsa námið vel og markaðssetja. 7) Heyrnarhjálp vill koma á framfæri áhyggjum varðandi einkareknar stofnanir. Mikilvægt er að skýra þeirra hlutverk vel og tryggja gott eftirlit með starfsemi þeirra. Bæði á gæði þjónustunnar og þjónustunnar í heild. Taka þarf skýrt fram þeirra hlutverk í að fræða og endurhæfa ef svo ber undir. 8) Heyrnarhjálp fagnar því að endurskoða eigi greiðsluþáttöku í ríkisins í nauðsynlegum heyrnartækjum og öðrum nauðsynlegum hjálpartækjum sem gagnast heyrnarskertum einstaklingum. Í fjölda ára hefur niðurgreiðsla heyrnartækja verið allt of lítil og getur kallast til mannréttindabrots.Heyrnarskertir hafa ekki notið jafnaðar á við aðrar fatlanir í þessum efnum. Heyrnartæki þarf að endurnýja á 4- 5 ára fresti og kosta góð tæki í dag á bilinu 400-700 þúsund. Niðurgreiðsla hefur staðið í stað í fjölda ára og er einungis 60.000kr á tæki. Til eru fjölmörg dæmi meðal okkar hóps að ekki hefur verði til fjármagn á heimilinu til þess að fjármagna nauðsynleg heyrnartæki. Það er einnig augljóst að með auknum styrk til kaupa tækja þá sparar ríkið töluverða upphæð þar sem að heyrnarskertir einstaklingar haldast þá lengur í vinnu og félagslífi í stað þess að einangrast. Mikilvægt er einnig að líta til niðurgreiðslu nauðsynlegra öryggistækja fyrir þennan hóp. Eins og reykskynjara og annað slíkt. Heyrnarhjálp leggur til að heyrnarskertir með 80% niðurgreiðslu í dag fái sín tæki endurgjaldslaust. 9) Heyrnarhjáp vill koma á framfæri mikilvægi félagslega hlutans fyrir heyrnarskerta einstaklinga. Hingað til hefur ekki verið horft til þessa . Heyrnarhjálp leggur til að stofnuð verði einskonar þekkingarmiðstöð heyrnar. Heyrnarhjáp vill taka fram að við mótmælum ekki fyrirhuguðum aðgerðum en ítrekum að ítarlegt aðgerðarplan þarf að liggja fyrir áður en til aðgerða kemur til þess að tryggja okkar skjólstæðingum samfellda þjónustu og að ekki verði rof á nauðsynlegri þjónustu við hópinn. Einnig eru þættir sem þarf að bæta við í þjónustu við heyrnarskertra. Virðingafyllst Stjórn Heyrnarhjálpar Telma Sigtryggsdóttir, formaður Heyrnarhjálpar Kristín Margrét Bjarnadóttir, gjaldkeri Heyrnarhjálpar Bergþóra Benediktsdóttir Ingólfur Már Magnússon Jóna Vestfjörð Hannesdóttir Sigrún Magnússdóttir, varamaður í stjórn Kristján Sverrisson, varamaður í stjórn
- #4Kristbjörg Gunnarsdóttir
Erindi frá Heyrnarfræðingi á Heyrnar-og talmeinastöð Íslands
- #5Kristín Theódóra Þórarinsdóttir
Erindi frá Félagi talmeinafræðinga á Íslandi vegna áforma um lagasetningu um brottfall laga nr. 42/2007. Stjórn Félags talmeinafræðinga á Íslandi vill með þessu erindi koma á framfæri athugasemdum vegna áforma um brottfall laga nr. 42/2007 og að HTÍ verði lögð niður í núverandi mynd, sbr. drög að frumvarpi og frummati á áhrifum sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda. Félag talmeinafræðinga á Íslandi telur afar brýnt að tryggja áframhaldandi sérhæfða talmeinaþjónustu til þeirra barna og fullorðinna sem talmeinafræðingar á Heyrnar- og talmeinastöð Íslands hafa sinnt frá stofnun stöðva… Lesa alla
Erindi frá Félagi talmeinafræðinga á Íslandi vegna áforma um lagasetningu um brottfall laga nr. 42/2007. Stjórn Félags talmeinafræðinga á Íslandi vill með þessu erindi koma á framfæri athugasemdum vegna áforma um brottfall laga nr. 42/2007 og að HTÍ verði lögð niður í núverandi mynd, sbr. drög að frumvarpi og frummati á áhrifum sem birt hefur verið í samráðsgátt stjórnvalda. Félag talmeinafræðinga á Íslandi telur afar brýnt að tryggja áframhaldandi sérhæfða talmeinaþjónustu til þeirra barna og fullorðinna sem talmeinafræðingar á Heyrnar- og talmeinastöð Íslands hafa sinnt frá stofnun stöðvarinnar. Talmeinafræðingar á Heyrnar- og talmeinastöð koma að þjónustu við börn og fullorðna með greinda heyrnarskerðingu og heyrnarleysi ásamt því að sinna börnum fædd með skarð í gómi og/eða vör. Talmeinafræðingar hafa einnig verið hluti af þverfaglegri teymisvinnu innan stofnunarinnar og Landspítalans. Mikilvægt er að tryggja aðgengi að þessari sérhæfðu talmeinaþjónustu til að styðja við velferð og jöfn lífstækifæri þeirra barna og fullorðinna sem nýta sér þjónustuna. Stjórn Félags talmeinafræðinga á Íslandi hvetur eindregið til þess að sú þjónusta sem talmeinafræðingar HTÍ hafa sinnt verði fundinn skynsamlegur farvegur í framtíðarskipulagi og hagsmunir þjónustþega hafðir að leiðarljósi. Virðingarfyllst, Félags talmeinafræðinga á Íslandi Fh. stjórnar Bryndís Guðmundsdóttir
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.