Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-89/2025 · Innviðaráðuneytið

Áform um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja)

Lagt er til að fella úr gildi undanþágu rafveitna (vatnsafls-, jarðvarma- og vindaflsvirkjana) frá fasteignamati.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: febrúar).

Innviðaráðherra áformar að leggja fram frumvarp á haustþingi um afnám á undanþágu rafveitna (vatnsafls- og jarðvarmavirkjanna og vindmylla) frá fasteignamati. Frumvarpið mun byggja á tillögum starfshóps um skattlagningu orkuvinnslu sem skipaður var af þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra sem var falið að greina hvernig ávinningur vegna auðlindanýtingar, þ.m.t. orkuframleiðslu, geti skilað sér í ríkari mæli til nærsamfélagsins. Starfshópurinn skilaði niðurstöðum sínu í skýrslu sem kynnt var í febrúar 2024. Tillaga starfshópsins felur m.a. í sér að felld verði niður undanþága rafveitna frá fasteignamati, en undanþágan hefur leitt til þess að stærstur hluti mannvirkja til orkuframleiðslu er undanþeginn fasteignaskatti, sjá hér: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2024/02/12/Skyrsla-starfshops-um-skattlagningu-orkuvinnslu/. HMS og verkefnahópur á vegum stofnunarinnar hefur unnið nánari greiningu á því hvernig fasteignamat rafveitna og álagning fasteignaskatts getur farið fram í samræmi við tillögur starfshópsins. Einnig hefur Jöfnunarsjóður sveitarfélaga útfært tillögur að reglum um hvernig skuli fara þegar fasteignaskattstekjur vegna rafveitna til einstaka sveitarfélaga leiða til þess að sveitarfélag fær mun hærri tekjur per íbúa en önnur sambærileg sveitarfélög eins og starfshópurinn lagði til. Frumvarpið mun byggja á framangreindri vinnu HMS, Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga og skýrslu starfshópsins frá 2024 en í fylgigögnum með áformunum er útfærslan á fasteignamati rafveitna og álagning fasteignaskatts kynnt nánar.

S-89/2025· Áform um lagasetningu· Innviðaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 14. maí 2025 – 23. jún. 2025· 29 umsagnir

Áform um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja)

Lagt er til að fella úr gildi undanþágu rafveitna (vatnsafls-, jarðvarma- og vindaflsvirkjana) frá fasteignamati.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-89/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 23. júní 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 29 umsagnir bárust

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (29)
  • #1Skagafjörður
    Á 147. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar, þann 21. maí 2025, var tekið fyrir mál 89/2025 til samráðs og þannig bókað. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að loksins séu lögð fram formleg áform um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga, þar sem felld verður úr gildi undanþága rafveitna (vatnsafls-, jarðvarma- og vindaflsvirkjana) frá fasteignamati. Byggðarráð lýsir jafnframt yfir ánægju með að áformað sé að fasteignaskattur geti dreifst á milli fleiri en eins sveitarfélags og að hluti af fasteignaskattstekjum af orkumannvirkjum skuli eiga að dreifast til sveitarfélaga í gegn… Lesa alla

    Á 147. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar, þann 21. maí 2025, var tekið fyrir mál 89/2025 til samráðs og þannig bókað. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar því að loksins séu lögð fram formleg áform um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga, þar sem felld verður úr gildi undanþága rafveitna (vatnsafls-, jarðvarma- og vindaflsvirkjana) frá fasteignamati. Byggðarráð lýsir jafnframt yfir ánægju með að áformað sé að fasteignaskattur geti dreifst á milli fleiri en eins sveitarfélags og að hluti af fasteignaskattstekjum af orkumannvirkjum skuli eiga að dreifast til sveitarfélaga í gegnum Jöfnunarsjóð sveitarfélaga. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri

  • #2Samband íslenskra sveitarfélaga

    Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga

  • #3Kristín Ólafsdóttir

    Umsögn Landsnets hf.

  • #4Samband sveitarfélaga á Austurlandi

    Umsögn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.

  • #5Samtök orkusveitarfélaga

    Meðfylgjandi er umsögn stjórnar Samtaka orkusveitarfélaga.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-89/2025: Áform um endurskoðun laga um tekjustofna sveitarfélaga (skattlagning orkumannvirkja) · Alviti