Áform um endurskoðun sveitarstjórnarlaga
Breytingarnar snúa m.a. að almennum umbótum, reglum um fjármál sveitarfélaga og atvinnuþátttöku þeirra, eftirliti með sveitarfélögum, samvinnu sveitarfélaga o.fl.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-88/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 23. júní 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 19 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 505)
Niðurstöður samráðs (20. október 2025)
Fjallað er um niðurstöðu samráðsins í 5. kafla frumvarps til breytinga á sveitarstjórnarlögum, sem birt var í samráðsgáttinni í september 2025. Sjá hlekk.
- Áform um endurskoðun sveitarstjórnarlaga
- Frummat á áhrifum lagasetningar
- Minnisblað - Fjármálakafli
- Minnisblað - Fyrirtæki sveitarfélaga
- Minnisblað - Stjórnsýsluumbætur og eftirlit
- Skýrsla - Starfshættir kjörinna fulltrúa, íbúalýðræði og birting reglna
- Kynning - Endurskoðun sveitarstjórnarlaga
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (19)
- #1Skagafjörður
Á 147. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar, þann 21. maí 2025, var tekið fyrir 88. mál til samráðs og þannig bókað. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar áformum um breytingar á sveitarstjórnarlögum. Nauðsynlegt er að lögin fylgi framþróun sveitarstjórnarstigsins og séu skýr og aðgengileg. Boðaðar breytingar ná til mikilvægra þátta en nauðsynlegt er að nánari útfærslur liggi fyrir sem fyrst. Hvað varðar kaflann um fjármál sveitarfélaga bendir byggðarráð á að það væri til verulegra bóta fyrir framsetningu ársreikninga og gagnsæis í rekstri sveitarfélaga ef tekinn væri upp C-hluti í samstæ… Lesa alla
Á 147. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar, þann 21. maí 2025, var tekið fyrir 88. mál til samráðs og þannig bókað. Byggðarráð Skagafjarðar fagnar áformum um breytingar á sveitarstjórnarlögum. Nauðsynlegt er að lögin fylgi framþróun sveitarstjórnarstigsins og séu skýr og aðgengileg. Boðaðar breytingar ná til mikilvægra þátta en nauðsynlegt er að nánari útfærslur liggi fyrir sem fyrst. Hvað varðar kaflann um fjármál sveitarfélaga bendir byggðarráð á að það væri til verulegra bóta fyrir framsetningu ársreikninga og gagnsæis í rekstri sveitarfélaga ef tekinn væri upp C-hluti í samstæðureikningsskilum, þar sem inn kæmu hlutdeildarfélög eftir hlutfallslegri ábyrgð viðkomandi sveitarfélags. Byggðarráð áskilur sér rétt til frekari umsagna á síðari stigum. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
- #2Grýtubakkahreppur
Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps bókað svo á fundi sínum í gær, 26. maí 2025: Sveitarstjórn Grýtubakkahrepps telur að sveitarstjórnarlög eigi að endurspegla og styðja við fjölbreytni í gerð og stærð sveitarfélaga. Varast ber að þrengja lögin með það að meginmarkmiði að sveitarfélög verði fjölmennari óháð landfræðilegum aðstæðum og vilja íbúa þeirra. Lýðræði verður að vera allra, ekki bara hinna stærri. f.h. sveitarstjórnar, Þröstur Friðfinnsson, sveitarstjóri
- #3Húnaþing vestra
Meðfylgjandi er umsögn byggðarráðs Húnaþings vestra um áform um endurskoðun sveitarstjórnarlaga. F.h. byggðarráðs, Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri.
- #4Samband íslenskra sveitarfélaga
Meðfylgjandi er umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga. f.h. Sambandsins, Valgerður Rún
- #5Samband sveitarfélaga á Austurlandi
Meðfylgjandi er umsögn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.