Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-82/2025 · Heilbrigðisráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra

Með frumvarpi um breytingu á lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra, er ætlunin að fækka færni- og heilsumatsnefndum í hverju heilbrigðisumdæmi og setja í þeirra stað eina nefnd fyrir landið allt.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: janúar).

Heilbrigðisráðuneytið áformar að leggja fram á haustþingi 2025 frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra, þar sem færni- og heilsumatsnefndum verður fækkað úr sjö landshlutabundnum nefndum í hverju heilbrigðisumdæmi niður í eina færni- og heilsumatsnefnd sem kemur til með að starfa fyrir landið allt. Í 2. mgr. 15. gr. laga, nr. 125/1999, um málefni aldraðra, er kveðið á um færni- og heilsumatsnefndir. Samkvæmt ákvæðinu skipar ráðherra þriggja manna nefnd í hverju heilbrigðisumdæmi sem annast færni- og heilsumat. Lagt verður til að ákvæðinu verði breytt með þeim hætti að ekki verður vísað í nefndir í hverju umdæmi heldur að ein nefnd taki til landsins í heild. Nauðsynlegt er að tryggja hlutleysi við mat á þörf fyrir hjúkrunarrými en nú er ákveðin óskilvirkni við öflun upplýsinga um umsækjendur sem og við úthlutun rýma. Við breytinguna er gert ráð fyrir að meira samræmi verði við gerð færni- og heilsumats ásamt einföldun varðandi umsóknir og mat. Með breytingunni er gert ráð fyrir að hægt verði að spara um 37 m.kr. árlega.

S-82/2025· Áform um lagasetningu· Heilbrigðisráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 30. apr. 2025 – 21. maí 2025· 6 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra

Með frumvarpi um breytingu á lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra, er ætlunin að fækka færni- og heilsumatsnefndum í hverju heilbrigðisumdæmi og setja í þeirra stað eina nefnd fyrir landið allt.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-82/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 21. maí 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 6 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (15. júlí 2026)

Frumvarp í vinnslu.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (6)
  • #1Bjarni Geir Gunnarsson

    Með hagræðingu þarf jafnframt að tryggja hraða og skilvirka afgreiðslu mála. Ekki má draga úr afköstum í umsóknarferli vegna færni- og heilsumats, þar sem tafir valda einungis auknu álagi og streitu fyrir umsækjendur, aðstandendur og stofnanir, svo sem Landspítalann. Auk þess er mikilvægt að endurskoða umsóknarferlið og viðmið fyrir samþykki færni- og heilsumats. Sérstaklega þarf að meta hvort ákveðin atriði, eins og hvíldarinnlagnir, hafi í raun áhrif á heilsufar umsækjanda og þar með vægi í matsferlinu. Virðingarfyllst, Bjarni Geir Gunnarsson Sjúkraþjálfari

  • #2Pálmi V Jónsson

    Sendi sameiginlega ábendingu varðandi mál nr. S-82"2025 frá nefndarmönnum og starfsmönnum Færni- og heilsumatsnefndar höfuðborgarsvæðis. F.h. allra, Pálmi V. Jónsson

  • #3Pálmi V Jónsson

    Góðan daginn, sendi hér með álitsgerð varðandi ofangreinda hugmynd um lagabreytingu sem tekur til skjalsins áform um lagabreytingu, sjá viðhengi, Pálmi V. Jónsson, lyf- og öldrunarlæknir, prófessor emeritus, formaður FHM nefndar höfuðborgarsvæðis.

  • #4Arna Rún Óskarsdóttir

    Sjá umsögn færni- og heilsumatsnefndar Norðurlands í viðhengi.

  • #5Kjartan Hreinn Njálsson

    Sjá umsögn embættis landlæknis í viðhengi.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-82/2025: Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 125/1999, um málefni aldraðra · Alviti