Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-81/2025 · Dómsmálaráðuneytið

Áform um tillögu til þingsályktunar um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2026-2030

Dómsmálaráðuneytið kynnir áform um tillögu til þingsályktunar um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2026-2030.

Ekki komið til Alþingis

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: janúar).

Dómsmálaráðuneytið kynnir áform um tillögu til þingsályktunar um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2026-2030. Áætlunin verður unnin í víðtæku samráði við stofnanir, félagasamtök og fræðafólk sem starfar að forvörnum og verður byggð á því starfi sem unnið hefur verið við framkvæmd þingsályktunar nr. 37/150 um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2021-2025. Óskað er eftir ábendingum um áformin og meðfylgjandi verkefnisáætlun. Íslensk stjórnvöld hafa lagt áherslu á forvarnir sem leið til þess að uppræta þann samfélagslega vanda sem kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni er. Með forvörnum er leitast við að fyrirbyggja ofbeldið og stuðla að menningu virðingar þar sem ofbeldi og áreitni þrífst ekki. Fyrsta heildstæða áætlunin um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun um aðgerðir fyrir árin 2021–2025, var samþykkt á Alþingi sumarið 2019. Þá voru í fyrsta sinn settar fram heildstæðar úrbætur sem byggja á forvörnum sem eru samþættar skólastarfi á öllum skólastigum, innan frístundaheimila og félagsmiðstöðva og í öðru æskulýðs- og tómstundastarfi. Hægt er að nálgast upplýsingar um framgang aðgerða í mælaborði áætlunarinnar á vefsvæði skrifstofu jafnréttis- og mannréttindamála. Til þess að vinna áfram að þeirri framtíðarsýn að útrýma kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni gegn börnum og ungmennum , tryggja samfellu og markvissan árangur til framtíðar, áforma stjórnvöld nú að hefja vinnu við nýja tillögu til þingsályktunar um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2026-2030. Fram fór yfirgripsmikil kortlagning á stöðu og þekkingu á forvarnarmálum gegn kynferðislegu og kynbundu ofbeldi gegn börnum og ungmennum þegar núgildandi áætlun var unnin. Ný áætlun mun byggja á markmiðum þeirrar áætlunar, eftirfylgni hennar og mati á árangri við framkvæmd aðgerða. Skrifstofa jafnréttis- og mannréttindamála í dómsmálaráðuneytinu mun leiða vinnuna á tímabilinu frá maí til desember í ár. Áhersla verður lögð á vítt samráð. Vinnu við aðgerðaáætlunina verður skipt upp í fjóra áfanga. Unnið verður að gagnaöflun í fyrsta áfanga, samráði í öðrum áfanga, úrvinnslu í þriðja áfanga og gæðarýni í fjórða áfanga. Nánar er gerð grein fyrir skipulagningu vinnunnar í meðfylgjandi verkefnisáætlun.

S-81/2025· Annað· Dómsmálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 25. apr. 2025 – 30. maí 2025· 12 umsagnir

Áform um tillögu til þingsályktunar um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2026-2030

Dómsmálaráðuneytið kynnir áform um tillögu til þingsályktunar um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2026-2030.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-81/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 30. maí 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 12 umsagnir bárust
  4. Niðurstöður samráðs birtar

Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.

Niðurstöður samráðs (9. júlí 2025)

Áform um tillögu til þingsályktunar um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2026-2030 voru birt í Samráðsgátt stjórnvalda, 25. apríl - 30. maí. 12 umsagnir bárust og almennt lýstu umsagnaraðilar ánægju með áformin og lýstu yfir vilja um samstarf við gerð og framkvæmd þingsályktunarinnar.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (12)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-81/2025: Áform um tillögu til þingsályktunar um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun fyrir árin 2026-2030 · Alviti