Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-68/2025 · Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið

Stefna stjórnvalda um öflun raforku

Með frumvarpinu er lagt til að ráðherra leggi á fjögurra ára fresti fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um öflun raforku til næstu tíu ára.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: október).

Með frumvarpinu er lagt til að ráðherra leggi á fjögurra ára fresti fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um öflun raforku til næstu tíu ára. Samkvæmt frumvarpsdrögunum er gert er ráð fyrir að slík tillaga verði fyrst lögð fram árið 2026. Með þessum hætti verður sú regla fest í sessi að ráðherra beri undir Alþingi ákveðin meginsjónarmið og markmið um orkuöflun sem taka mið af stefnumótun stjórnvalda að öðru leyti, s.s. hvað varðar atvinnu- og iðnaðarstefnu, byggðastefnu og loftslagsstefnu. Með þeim hætti verður aðkoma Alþingis að mótun slíkrar áætlunar, eftirfylgni með framkvæmd hennar og þróun tryggð.

S-68/2025· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 4. apr. 2025 – 9. maí 2025· 9 umsagnir

Stefna stjórnvalda um öflun raforku

Með frumvarpinu er lagt til að ráðherra leggi á fjögurra ára fresti fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um stefnu stjórnvalda um öflun raforku til næstu tíu ára.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 251)
  2. Birt í Samráðsgátt (S-68/2025)
  3. Umsagnarfrestur hefst · til 9. maí 2025
  4. Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
  • #1Vinstrihreyfingin-Grænt framboð
    Umsögn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun (stefna stjórnvalda um öflun raforku) (Þingskjal X – mál X, 156. löggjafarþing 2025) Vinstrihreyfingin – grænt framboð (VG) lýsir yfir verulegum áhyggjum af því frumvarpi sem hér birtist á samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpið felur í sér kerfislæga breytingu á nálgun stjórnvalda við mótun orkustefnu og dregur með óljósum hætti úr vægi rammaáætlunar – faglegs og lýðræðislegs ferlis sem staðið hefur vörð um náttúruvernd og sjálfbæra nýtingu orkuauðlinda um la… Lesa alla

    Umsögn Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs um frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum og lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun (stefna stjórnvalda um öflun raforku) (Þingskjal X – mál X, 156. löggjafarþing 2025) Vinstrihreyfingin – grænt framboð (VG) lýsir yfir verulegum áhyggjum af því frumvarpi sem hér birtist á samráðsgátt stjórnvalda. Frumvarpið felur í sér kerfislæga breytingu á nálgun stjórnvalda við mótun orkustefnu og dregur með óljósum hætti úr vægi rammaáætlunar – faglegs og lýðræðislegs ferlis sem staðið hefur vörð um náttúruvernd og sjálfbæra nýtingu orkuauðlinda um langt árabil. Við teljum að í stað þess að skýra og styrkja umgjörð ákvarðanatöku, boði frumvarpið miðstýringu og töluleg markmið sem mótast af pólitískum hagsmunum hverju sinni – án þess að tryggð sé aðkoma fagaðila, samfélags og náttúruverndar. Við lýsum andstöðu við frumvarpið í núverandi mynd og hvetjum til þess að það verði ekki lagt fram að svo komnu máli. Megináhyggjur VG 1. Árekstur við hlutverk og sjálfstæði rammaáætlunar Frumvarpið kveður á um að ráðherra leggi fram stefnu um öflun raforku sem hafi áhrif á verndar- og orkunýtingaráætlun. Þetta felur í sér að pólitísk markmið verði sett ofan frá og að verkefnastjórn rammaáætlunar verði látin taka mið af þeim – sem veikir það meginmarkmið áætlunarinnar að byggja á óháðu mati faghópa á náttúruvernd, samfélagslegum áhrifum og nýtingarþörf. Slíkt samræmist ekki hlutverki rammaáætlunar sem varúðartækis, stefnumótunar og ákvarðanaramma til langs tíma. 2. Skortur á faglegum og samfélagslegum grunni Frumvarpið gerir ráð fyrir „tölulegum markmiðum“ í raforkuframleiðslu, án þess að ljóst sé hver metur þau, á hvaða forsendum þau byggja og hvaða áhrif þau eigi að hafa. Engin krafa er um heildarmat á samfélagslegum áhrifum, umhverfisáhættu eða kostnaðarhagkvæmni einstakra orkukosta. Þannig er hætt við að framkvæmdavaldið setji markmið um orkuöflun án aðkomu almennings eða sjálfstæðrar sérfræðiþekkingar. 3. Skortur á gagnsæi Þingsályktunartillaga á fjögurra ára fresti kann að gefa til kynna lýðræðislega aðkomu Alþingis. Í reynd er þó verið að festa í sessi málsmeðferð þar sem þingið samþykkir pólitíska stefnu sem síðan hefur áhrif á faglega flokkun og forgangsröðun virkjunarkosta – án þess að þau tengsl séu gagnsæ eða lögbundin með skýrum hætti. 4. Samhengisleysi og hugsanleg skerðing á náttúruvernd Ekki er tryggt í frumvarpinu að hin nýja stefnumótun feli í sér samþættingu við skuldbindingar Íslands um líffræðilega fjölbreytni, náttúruvernd eða loftslagsmál. Þvert á móti er hætt við að þrýstingur um töluleg markmið ýti undir hraðvirka orkubyggingu með takmörkuðu mati á afleiðingum, sérstaklega á viðkvæmum svæðum. Niðurstaða Vinstri græn telja að frumvarpið sé vanreifað, feli í sér aðför að lýðræðislegri og faglegri ákvarðanatöku um nýtingu náttúruauðlinda og veiki það mikilvæga hlutverk rammaáætlunar sem grundvallartæki í sjálfbærri orkunýtingu. Við hvetjum til þess að fallið verði frá framlagningu frumvarpsins í núverandi mynd og hefja þess í stað vinnu að raunverulegri samræmingu orkustefnu, rammaáætlunar og náttúruverndarsjónarmiða.

  • #2Samtök atvinnulífsins

    Meðfylgjandi er umsögn SA um málið.

  • #3Bára Jónsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn Orkuveitunnar um stefnu stjórnvalda um öflun raforku, mál í samráðsgátt nr. S-68/2025.

  • #4Samorka,samtök orku- og veitufyrirtækja

    Meðfylgjandi er umsögn Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja.

  • #5Hugrún Ragnarsdóttir

    Meðfylgjandi er umsögn Landsvirkjunar.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-68/2025: Stefna stjórnvalda um öflun raforku · Alviti