Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-61/2025 · Utanríkisráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á varnarmálalögum nr. 34/2008 (netöryggi)

Með frumvarpinu er fyrirhugað að flytja ábyrgð á starfsemi netöryggissveitarinnar CERT-IS frá Fjarskiptastofu til utanríkisráðuneytisins.

Við myndun ríkisstjórnar Samfylkingarinnar, Viðreisnar og Flokks fólksins í desember 2024 kom fram það markmið ríkisstjórnarinnar að styrkja hlutverk utanríkisráðuneytisins á sviði varnar- og öryggismála, þ.m.t. netöryggismála og þar m.a. litið til mögulegs flutnings á netöryggissveitinni CERT-IS til utanríkisráðuneytisins. Þann 28. febrúar sl. undirrituðu utanríkisráðuneytið og Fjarskiptastofa undir samkomulag þar sem að starfsemi CERT-IS var flutt í húsnæði utanríkisráðuneytisins. Með flutningnum er CERT-IS tryggð fyrsta flokks aðgengi að vottuðum öruggum vinnu- og fundarýmum og tölvu- og samskiptakerfum sem nauðsynlegt er vegna eðlis starfsemi CERT-IS, m.a. vegna fjölþjóðlegs samstarfs á sviði netvarna og netöryggis. Með frumvarpinu er starfsemi netöryggissveitar (CERT-IS) flutt frá Fjarskiptastofu til utanríkisráðuneytisins og netvarnir og netöryggi á sviði varnarmála fest í sessi sem lögbundin verkefni á sviði varnarmála sem heyra undir utanríkisráðuneytið. Þær meginbreytingar sem ráðgerðar eru með frumvarpinu eru flutningur ákvæða um starfrækslu netöryggissveitar úr lögum um Fjarskiptastofu og yfir í varnarmálalög. Þannig verður starfræksla netöryggissveitarinnar gerð að lögbundnu verkefni utanríkisráðuneytisins. Samhliða þessu þarf að gera breytingar á fjarskiptalögum og lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða til að endurspegla flutninginn frá Fjarskiptastofu til utanríkisráðuneytisins. Netöryggi og netvörnum á sviði varnarmála er jafnframt bætt við lista yfir varnartengd verkefni í 7. gr. varnarmálalaga og fyrirséð að netöryggissveitin muni sinna þeim verkefnum auk núverandi verkefna. Tilgangur þessara breytinga er ekki að breyta lögbundnum verkefnum netöryggissveitarinnar skv. lögum um Fjarskiptastofu, fjarskiptalögum og lögum um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða. Hins vegar tryggja þessar breytingar netöryggissveitinni fullnægjandi starfsaðstöðu til að sinna lögbundnum verkefnum sínum og á sama tíma verður hægt að styrkja hlutverk netöryggissveitarinnar og utanríkisráðuneytisins þegar kemur að netvörnum og netöryggi á sviði varnarmála. Með frumvarpinu er því stefnt að því að styrkja bæði borgaralegt og varnarmálatengt netöryggi og netvarnir sem er mikilvægur hlekkur í öryggis- og varnarmálum Íslands. Skjal í samráðsgátt var uppfært 26. mars 2025 (greinargerð kaflar 1 og 5).

S-61/2025· Drög að frumvarpi til laga· Utanríkisráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 19. mar. 2025 – 29. mar. 2025· 3 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingar á varnarmálalögum nr. 34/2008 (netöryggi)

Með frumvarpinu er fyrirhugað að flytja ábyrgð á starfsemi netöryggissveitarinnar CERT-IS frá Fjarskiptastofu til utanríkisráðuneytisins.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-61/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 29. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 3 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 280)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (3)
  • #1Sýn hf.

    Sjá meðfylgjandi umsögn. bkv. Páll Ásgrímsson

  • #2Jóna Björk Guðnadóttir

    Viðfest er umsögn Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF). Bestu kveðjur, Jóna Björk Guðnadóttir, yfirlögfræðingur SFF

  • #3Fjarskiptastofa
    Þann 19. mars sl. var birt í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp um breytingu á varnarmálalögum nr. 34/2008 (netöryggi) þar sem mælt er fyrir um flutning á starfsemi netöryggissveitar Fjarskiptastofu, CERT-IS, til utanríkisráðuneytisins. Frumvarpið breytir ákvæðum varnarmálalaga, lögum um Fjarskiptastofu nr. 75/2021, lögum um fjarskipti nr. 70/2022 og lögum um net- og upplýsingaöryggi mikilvægra innviða nr. 78/2019. Eftir birtingu í samráðsgátt hefur Fjarskiptastofa komið að samtali er varðar frumvarpið, þó sér í lagi ákveðnum atriðum er varðar lagatæknilega framsetningu þess. Stofnunin væntir þ… Lesa alla

    Þann 19. mars sl. var birt í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp um breytingu á varnarmálalögum nr. 34/2008 (netöryggi) þar sem mælt er fyrir um flutning á starfsemi netöryggissveitar Fjarskiptastofu, CERT-IS, til utanríkisráðuneytisins. Frumvarpið breytir ákvæðum varnarmálalaga, lögum um Fjarskiptastofu nr. 75/2021, lögum um fjarskipti nr. 70/2022 og lögum um net- og upplýsingaöryggi mikilvægra innviða nr. 78/2019. Eftir birtingu í samráðsgátt hefur Fjarskiptastofa komið að samtali er varðar frumvarpið, þó sér í lagi ákveðnum atriðum er varðar lagatæknilega framsetningu þess. Stofnunin væntir þess að uppfært frumvarp verði lagt fyrir Alþingi á allra næstu dögum svo ekki þurfi að leyta samþykki þingsins fyrir því að taka það á dagskrá, sbr. 3. mgr. 37. gr. laga nr. 55/1991, um þingsköp Alþingis. Fjarskiptastofa áskilur sér rétt að tjá sig frekar um efnisleg atriði frumvarpsins þegar til þinglegrar meðferðar kemur.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-61/2025: Drög að frumvarpi til laga um breytingar á varnarmálalögum nr. 34/2008 (netöryggi) · Alviti