Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-57/2025 · Atvinnuvegaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (skilyrði fyrir skammtímaleigu, miðlun upplýsinga, tímabinding rekstrarleyfa)

Tillögur til að mæta áherslum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um jafnvægi á húsnæðismarkaði og að fleiri íbúðir nýtist sem heimili fólks, m.a. með breyttum reglum um skammtímaleigu.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).

Með frumvarpinu eru lagðar fram tillögur sem ætlað er að mæta áherslum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um jafnvægi á húsnæðismarkaði og að fleiri íbúðir nýtist sem heimili fólks. Í fyrsta lagi er með frumvarpinu lagt til að heimagisting verði afmörkuð við lögheimili einstaklings og eina aðra fasteign í eigu hans utan þéttbýlis. Í öðru lagi er lagt til að tímabinda þegar útgefin rekstrarleyfi til gististarfsemi í íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis til fimm ára í senn. Í þriðja lagi er lagt til að sýslumanni verði heimilt að óska eftir nauðsynlegum upplýsingum frá ríkisskattstjóra í tengslum við eftirlit sýslumanns með einstaka málum vegna skráningarskyldrar heimagistingar. 1. Skilyrði skammtímaleigu (heimagistingar). Samkvæmt gildandi lögum nr. 85/2007, er einstaklingi heimilt að leigja út tvær eignir undir skráningarskylda heimagistingu, þ.e. lögheimili sitt og eina aðra fasteign í sinni eigu (innan eða utan þéttbýlis). Fyrsta breytingartillagan felur í sér að afmarka skráningarskylda heimagistingu við eina eign einstaklings (lögheimili hans) innan þéttbýlis. Einstaklingi verður eftir sem áður heimilt að leigja út aðra eign utan þéttbýlis sem er í eigu hans, t.d. sumarbústað. Þá mega samanlagðar heildartekjur vegna útleigðu eignanna eftir sem áður ekki fara yfir 2 m. kr. á ári né útleigðar gistinætur yfir 90, eins og verið hefur. 2. Gildistími rekstrarleyfa fyrir gististarfsemi í íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis. Með frumvarpinu er lagt til að tímabinda þegar útgefin rekstrarleyfi til gististarfsemi í íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis, til fimm ára í senn, en samkvæmt gildandi lögum nr. 85/2007 eru umrædd rekstrarleyfi ótímabundin. Verði breytingartillagan að lögum, munu umrædd rekstrarleyfi halda gildi sínu í fimm ár frá gildistöku laganna. Að þeim tíma liðnum, þ.e. 1. janúar 2031, munu umræddir rekstraraðilar þurfa sækja um nýtt rekstrarleyfi á grundvelli laga nr. 85/2007, sé ætlunin að halda áfram rekstri. Til upplýsinga er fjöldi umræddra rekstrarleyfa til gististaða í íbúðarhúsnæði tæplega 400 af þeim 2.085 rekstrarleyfum sem eru virk á landsvísu. Að skilyrða atvinnustarfsemi, eins og rekstrarleyfisskylda gististarfsemi, sem rekin er í íbúðarhúsnæði innan þéttbýlis, við fimm ára endurskoðun, með öryggi ferðamanna að leiðarljósi, er ekki talin brjóta í bága við 72. né 75. gr. stjórnarskrárinnar, enda er löggjafanum heimilt að breyta almennum skilyrðum rekstrarleyfis fyrir gististarfsemi ef þörf þykir, svo sem vegna almannahagsmuna, á grundvelli hlutlægra og málefnalegra sjónarmiða, þ.m.t. sjónarmiðs um meðalhóf. Í þessu samhengi er athygli vakin á því, að breytingartillagan felur hvorki í sér að lögð verði til ný né breytt skilyrði fyrir endurútgáfu umræddra 400 rekstrarleyfa, heldur er lagt til að þau sæti endurskoðun á gildandi skilyrðum laganna á fimm ára fresti. 3. Miðlun upplýsinga frá ríkisskattstjóra til sýslumanns í tengslum við eftirlit. Í þeim tilgangi að efla eftirlit sýslumanns með skráningarskyldri heimagistingu er með frumvarpinu lagt til að sýslumaður fái heimild til að óska eftir nauðsynlegum upplýsingum hjá ríkisskattstjóra er lúta að tekjum og öðrum atriðum er kunna að skipta máli vegna eftirlits sýslumanns með skráningarskyldri heimagistingu í einstaka málum. Með breytingartillögunni er ekki opnað á almenna gagnamiðlun milli sýslumanns og ríkisskattstjóra, heldur munu upplýsingabeiðnir sýslumanns afmarkast við einstaka mál þar sem sýslumaður hefur uppi rökstuddan grun um að aðili, sem stundar skráningarskylda heimgistingu, hafi gerst brotlegur við ákvæði laga nr. 85/2007. Ætla má að breytingin muni flýta málsmeðferð og rannsókn sýslumanns, sem og auðvelda sönnun í einstaka málum, sem mörg hver flokkast undir auðgunarbrot. Þrátt fyrir að dregið hafi um 30% úr leyfislausri skammtímaleigu undanfarin sjö ár, áætlar sýslumaður engu að síður að um 50% af skammtímaleigu fari enn fram án skráningar eða tilskilinna leyfa. Verði breytingin að lögum má ætla að hún hafi ákveðinn fráfælingarmátt í för með sér.

S-57/2025· Drög að frumvarpi til laga· Atvinnuvegaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 13. mar. 2025 – 24. mar. 2025· 34 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (skilyrði fyrir skammtímaleigu, miðlun upplýsinga, tímabinding rekstrarleyfa)

Tillögur til að mæta áherslum í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um jafnvægi á húsnæðismarkaði og að fleiri íbúðir nýtist sem heimili fólks, m.a. með breyttum reglum um skammtímaleigu.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-57/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 24. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 34 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 279)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (34)
  • #1Jakob Helgi Þórðarson
    Sem einstaklingur hef ég persónulega upplifað sífelt versnandi leigumarkað Íslands síðustu 20 árin, og því styð ég heilshugar sterkari reglugerð og eftirlit varðandi skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis í þéttbýli sem þetta frumvarp stígur skrefi nær. Aðgengi að húsnæði ætti að vera mannréttindi, ekki forréttindi, fyrir samfélagsþegna. Allt samfélagið situr á sterkari grunni þegar einstaklingar á leigumarkaði eru ekki nauðbeygðir að samþykkja yfirgang og frekju leigusala, þegjandi og hljóðlaust, til þess eins að fá þak yfir höfuð sitt. Ég tel þetta frumvarp stíga skrefi nær því að hjálpa framboði… Lesa alla

    Sem einstaklingur hef ég persónulega upplifað sífelt versnandi leigumarkað Íslands síðustu 20 árin, og því styð ég heilshugar sterkari reglugerð og eftirlit varðandi skammtímaleigu íbúðarhúsnæðis í þéttbýli sem þetta frumvarp stígur skrefi nær. Aðgengi að húsnæði ætti að vera mannréttindi, ekki forréttindi, fyrir samfélagsþegna. Allt samfélagið situr á sterkari grunni þegar einstaklingar á leigumarkaði eru ekki nauðbeygðir að samþykkja yfirgang og frekju leigusala, þegjandi og hljóðlaust, til þess eins að fá þak yfir höfuð sitt. Ég tel þetta frumvarp stíga skrefi nær því að hjálpa framboði eigna á leigumarkaði að standa í takt við ört vaxandi eftirspurn.

  • #2Óðinn Ásgeirsson

    Krónutala hámarksupphæðar heimagistingar hefur verið sú sama í langan tíma þrátt fyrir háa verbólgu. Þessa upphæð þarf að hækka verulega og tryggja að hún fylgi vísitölu. Það þarf að hafa í huga að heimagisting einstaklinga er mikilvægur þáttur í ferðaþjónustu landsins og gefur ferðamönnum tækifæri til að verða sér út um ódýrari gistingu en til að mynda á hótelum. Ef hámarksupphæð verður ekki hækkuð og fylgir ekki vísitölu er hætta á að það dragi verulega úr henni sem mun hafa neikvæð áhrif á framboð og verð á gistingu til ferðamanna.

  • #3Teitur Atlason
    Hámarskupphæð heimagistingar hefur verið sú sama í 3 ár. (kr 2.000.000) en ætti að vera ef upphæðin hefði fylgt vísitöluþróun kr 2.450.000.- Þess utan eru 90 daga reglan svolítð undarleg eftir þessa lagabreytingu. Hversvegna má ekki lengja þetta tímabil? Reglan sem varðar heimagistingu hefur hingað til vera afskaplega ósanngjörn og miðuð við hagsmuni þeirra sem eiga margar eignir. Í mínu tilfelli leigjum við út herbergi sem synir mínir nota aðra hvora viku. Við vorum sett undir sama hatt og fólk sem á tugi íbúða og standa í stór-rekstri. Ég veit fyrir víst að þegar Airbnb kom til Ísland… Lesa alla

    Hámarskupphæð heimagistingar hefur verið sú sama í 3 ár. (kr 2.000.000) en ætti að vera ef upphæðin hefði fylgt vísitöluþróun kr 2.450.000.- Þess utan eru 90 daga reglan svolítð undarleg eftir þessa lagabreytingu. Hversvegna má ekki lengja þetta tímabil? Reglan sem varðar heimagistingu hefur hingað til vera afskaplega ósanngjörn og miðuð við hagsmuni þeirra sem eiga margar eignir. Í mínu tilfelli leigjum við út herbergi sem synir mínir nota aðra hvora viku. Við vorum sett undir sama hatt og fólk sem á tugi íbúða og standa í stór-rekstri. Ég veit fyrir víst að þegar Airbnb kom til Íslands þá bjargaði þetta fjárhagi þúsunda Íslendinga og gerði þeim beinlínis kleift að þrauka árin eftir hrun og í covid. Ég hvet alþingismenn til að hafa þetta í huga þegar kemur að afgreiðslu þessa máls. Rétta af hámarksupphæðina og lengja hámarksdagafjöldan Teitur Atlason

  • #4Valdimar Tryggvi Hafstein
    Lög nr. 67 frá 10. júní 2016 skilgreindu hámarksfjölda útleigudaga í heimagistingu og hámarksfjárhæð fyrir tekjur af heimagistingu, 2.000.000,- kr.. Nú níu árum síðar er hámarksfjárhæðin óbreytt. Tvær milljónir í júní 2016 eru að núvirði rétt tæpar þrjár milljónir (2.940.114 kr.). Það er brýnt mál að breyta lögunum núna í því skyni að þrengja að atvinnustarfsemi á heimagistingarmarkaði og fjölga íbúðum í langtímaleigu. Þar hlýtur að vega þyngst að tímabinda rekstrarleyfin sem eru nú þegar í gildi og gefa ekki út ný rekstrarleyfi til atvinnureksturs með heimagistingu (fimm ára aðlögunartími e… Lesa alla

    Lög nr. 67 frá 10. júní 2016 skilgreindu hámarksfjölda útleigudaga í heimagistingu og hámarksfjárhæð fyrir tekjur af heimagistingu, 2.000.000,- kr.. Nú níu árum síðar er hámarksfjárhæðin óbreytt. Tvær milljónir í júní 2016 eru að núvirði rétt tæpar þrjár milljónir (2.940.114 kr.). Það er brýnt mál að breyta lögunum núna í því skyni að þrengja að atvinnustarfsemi á heimagistingarmarkaði og fjölga íbúðum í langtímaleigu. Þar hlýtur að vega þyngst að tímabinda rekstrarleyfin sem eru nú þegar í gildi og gefa ekki út ný rekstrarleyfi til atvinnureksturs með heimagistingu (fimm ára aðlögunartími er mjög rúmur og dregur tennurnar úr þessu mikilvægasta ákvæði). En ef fólk getur síðan aðeins leigt út sitt eigið lögheimili í heimagistingu (ekki aðra íbúð í þéttbýli í eigu þess) og getur áfram aðeins gert það í 90 daga á ári hlýtur markmiðum lagasetningarinnar að vera náð. Það hjálpar aftur á móti á engan hátt til að ná markmiðum laganna að halda hámarksfjárhæð áfram þeirri sömu þrátt fyrir að sú tala sé nú mikils minna virði en hún var 2016. Fyrir okkur löghlýðnu borgarana sem notum skráða heimagistingu á eigin lögheimili í einn eða einn og hálfan mánuð á sumrin til að stoppa upp í holurnar í heimilisbókhaldinu, fjármagna viðhald á húsnæðinu eða niðurgreiða sumarfrí fjölskyldunnar í stað þess að íbúðin standi auð á meðan við erum að heiman, þá væri mikils vert að þingið notaði ferðina núna þegar breyta á þessum lögum til þess að leiðrétta í leiðinni þessa hámarksupphæð þannig að hún verði a.m.k. jafn mikil að núvirði eins og hún var þegar lagabreytingar um heimagistingu voru upphaflega samþykktar 2016. Virðingarfyllst, Valdimar Hafstein

  • #5Eva Jörgensen
    Þetta er fín byrjun að mínu mati en ég myndi jafnvel vilja sjá hana ganga lengra til að tryggja að húsnæði verði aftur fyrst og fremst heimili en ekki fjárfestingartækifæri. Ég hef þónokkrar áhyggjur af því hvernig þessi aðgreining milli þéttbýlis og dreifbýlis gæti haft neikvæð áhrif á landsbyggðina: 1. Með því að heimila einstaklingum að eiga eina eignir utan þéttbýlis til skammtímaleigu er í raun verið að hvetja til þess að fjárfestar beini sjónum sínum að minni byggðarlögum. Þetta gæti valdið verðhækkunum á fasteignamarkaði á landsbyggðinni, sem kemur sérstaklega illa við heimafólk með l… Lesa alla

    Þetta er fín byrjun að mínu mati en ég myndi jafnvel vilja sjá hana ganga lengra til að tryggja að húsnæði verði aftur fyrst og fremst heimili en ekki fjárfestingartækifæri. Ég hef þónokkrar áhyggjur af því hvernig þessi aðgreining milli þéttbýlis og dreifbýlis gæti haft neikvæð áhrif á landsbyggðina: 1. Með því að heimila einstaklingum að eiga eina eignir utan þéttbýlis til skammtímaleigu er í raun verið að hvetja til þess að fjárfestar beini sjónum sínum að minni byggðarlögum. Þetta gæti valdið verðhækkunum á fasteignamarkaði á landsbyggðinni, sem kemur sérstaklega illa við heimafólk með lægri tekjur. 2. Ég bý á svæði sem telst til brothættra byggða og hér eru margar eignir annaðhvort tómar eða eingöngu nýttar í Airbnb útleigu. Þetta dregur verulega úr lífsgæðum íbúa, rýrir samfélögin og dregur úr framboði á húsnæði til langtímaleigu eða kaups fyrir staðbundna íbúa. Hér þyrftu sömu reglur að gilda því hér eiga líka fjárfestar margar eignir sem standa tómar eða eru nýttar sem sumarhúsnæði og hefur verulega neikvæð áhrif á byggðaþróun. 3. Er hægt að koma í veg fyrir að leigusamningar verði aðeins gerðir yfir vetrartímann svo hægt sé að setja eignir á Airbnb yfir sumartímann? Þetta mynstur hefur verið að aukast undanfarin ár og skapar mikið óöryggi fyrir leigjendur. Ég óttast að núverandi útfærsla frumvarpsins muni skapa hvata fyrir fólk með fjárfestingaráform að beina sjónum sínum að landsbyggðinni - þar sem verið er að leysa vanda höfuðborgarsvæðisins en á kostnað dreifbýlla svæða. Byggðastefna ætti að stuðla að jöfnum tækifærum óháð búsetu, en þessi aðgreining á milli svæða virðist vinna gegn slíkum markmiðum. Til að frumvarpið nái raunverulega markmiðum sínum um að „fleiri íbúðir nýtist sem heimili fólks," þyrfti að gæta þess að sömu reglur gildi um allt land, eða að minnsta kosti að sérstakar verndarráðstafanir verði gerðar fyrir brothætt byggðarlög þar sem húsnæðisframboð er nú þegar takmarkað.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-57/2025: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald (skilyrði fyrir skammtímaleigu, miðlun upplýsinga, tímabinding rekstrarleyfa) · Alviti