Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-53/2025 · Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Drög að frumvarpi um starfstengda eftirlaunasjóði (IORP II)

Til umsagnar eru drög að frumvarpi um starfstengda eftirlaunasjóði (IORP II).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).

Um er að ræða drög að nýjum lögum um starfsemi starfstengdra eftirlaunasjóða. Frumvarpið er byggt á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2016/2341 frá 14. desember 2016 um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri. Tilskipunin er í daglegu tali nefnd „IORP II“ (sem er skammstöfun á „institutions for occupational retirement provision“). Gildandi lög um starfstengda eftirlaunasjóði, nr. 78/2007, byggðust á forvera IORP II, þ.e. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2003/41/EB frá 3. júní 2003, um starfsemi og eftirlit með stofnunum sem sjá um starfstengdan lífeyri (hér eftir IORP I). Með frumvarpinu er lagt til að ný heildarlög um starfssemi starfstengda eftirlaunasjóði leysi af hólmi lög nr. 78/2007. IORP II er liður í frekari viðleitni Evrópusambandsins til að þróa innri markað á Evrópska efnahagssvæðinu á þann veg að fjármálastofnunum sé kleift að starfa í öðrum aðildarríkjum og tryggja víðtæka vernd fyrir neytendur fjármálaþjónustu. Líkt og forveri IORP II gerir tilskipunin stofnunum fært að bjóða skilgreinda þjónustu yfir landamæri innan Evrópska efnahagssvæðisins og skapar þannig forsendur fyrir öflugri innri markaði fyrir starfstengdan eftirlaunasparnað.

S-53/2025· Drög að frumvarpi til laga· Fjármála- og efnahagsráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 3. mar. 2025 – 10. mar. 2025· 2 umsagnir

Drög að frumvarpi um starfstengda eftirlaunasjóði (IORP II)

Til umsagnar eru drög að frumvarpi um starfstengda eftirlaunasjóði (IORP II).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-53/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 10. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 252)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (3. febrúar 2026)

Engar umsagnir bárust. Frumvarpið var lagt fram á 156. löggjafarþingi (þskj. 283, 252. mál) en ekki náðist að ljúka afgreiðslu þess fyrir þinglok sumarið 2025. Málið var endurflutt á 157. löggjafarþingi og varð að lögum í nóvember 2025.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-53/2025: Drög að frumvarpi um starfstengda eftirlaunasjóði (IORP II) · Alviti