Drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu um farsæld barna
Mennta- og barnamálaráðuneyti kynnir til umsagnar drög að stefnu um farsæld barna til ársins 2035.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-50/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 12. mars 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 12 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 579)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (30. september 2026)
Alls bárust 12 umsagnir um drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu um farsæld barna til ársins 2035. Gerð var grein fyrir umsögnunum og afstöðu ráðuneytisins til þeirra í samráðskafla greinargerðar með tillögunni. Tillagan var lögð fram á 156. löggjafarþingi sem 283. mál en náði ekki fram að ganga. Málið var lagt fram að nýju á 158. löggjafarþingi, 75. mál.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (12)
- #1Leiðtogasamfélagið ehf.
Sjónarhorn og upplifun fullorðinna á veruleika barna er viðfangsefni flestra rannsókna á sviði sálfræði, uppeldis- og kennslufræði og sjónarhorn sérfræðinga sem fara með málefni barna endurspeglar í nær öllum tilfellum slíkt sjónarhorn. Þetta veldur því að sérstaða og upplifun barnsins fellur í skuggann af upplifunum þess fullorðna og þeim kenningum sem hann velur sér til að spegla veruleika barnsins í. Þetta hefur í för með sér þá hættu að breytur sem skipta miklu máli í huga barnsins og hafa áhrif á upplifun barnsins eru ýmist ekki skoðaðar eða eru metnar sem óverulegar frá sjónarhorni full… Lesa alla
Sjónarhorn og upplifun fullorðinna á veruleika barna er viðfangsefni flestra rannsókna á sviði sálfræði, uppeldis- og kennslufræði og sjónarhorn sérfræðinga sem fara með málefni barna endurspeglar í nær öllum tilfellum slíkt sjónarhorn. Þetta veldur því að sérstaða og upplifun barnsins fellur í skuggann af upplifunum þess fullorðna og þeim kenningum sem hann velur sér til að spegla veruleika barnsins í. Þetta hefur í för með sér þá hættu að breytur sem skipta miklu máli í huga barnsins og hafa áhrif á upplifun barnsins eru ýmist ekki skoðaðar eða eru metnar sem óverulegar frá sjónarhorni fullorðinna. Á undanförnum áratugum hefur athyglin beinst að hagsmunum og þörfum ólíkra hópa. Sérstaða kvenna hefur fengið rými í umræðunni, sérstaða ólíkra kynþátta hefur verið viðurkennd og sérstaða fólks með ólíkar kynhneigðir hefur fengið víða skilning og rými í samfélaginu. Sjónarhorn barnsins hefur hins vegar ekki fengið rými í íslensku samfélagi og til þess að þær umbætur sem boðaðar eru í frumvarpinu verður að skapa skipulag þar sem raunverulega er tekið mið af röddum barna og foreldra þeirra. Hugmyndin um barnvæna nálgun og kerfi sem er í þágu barna verður innantómt og óskilvirkt án þess að raunverulega sé tekið mark á börnum og fjölskyldum þeirra, í núverandi kerfi er því miður ekkert sem tryggir að svo sé málum háttað. Venjuleg stigveldis kerfi sem flestar stofnanir byggja á gera ekki ráð fyrir upplifun ólíkra einstaklinga eða 1.persónu sjónarhorni fólks sem hefur samskipti við kerfið. Til að kerfi raunverulega þjóni börnum verður að byggja það upp á annan hátt en hið dæmigerða stigveldiskerfi iðnbyltingarinnar, í slíku kerfi hafa börn og fjölskyldur þeirra enga raunverulega rödd, þrátt fyrir góð markmið og vel meinandi leiðir. Markmið stefnunnar “að skapa barnvænt samfélag þar sem réttindi og farsæld barna verða í öndvegi” næst ekki án þess að virkt og alhliða samráð verði haft við börn og fjölskyldur þeirra að sama skapi þarf fræðsla, forvarnir og fyrirbyggjandi aðgerðir að vera raunverulega í þágu það sem efst er í fræðunum hverju sinni. Til að skapa kerfi sem styður við börn og foreldra þeirra þarf kerfið fyrst og fremst að koma til móts við þennan hóp, þarfir og upplifun barna og foreldra þeirra þarf að trompa rannsóknir sérfræðinga og niðurstöðu prófa. Aðstoð við börn verður aldrei raunveruleg nema að þessu sé hugað og hugsað til þess að aðstoð þarf alltaf að vera á forsendum barnsins og fjölskyldunnar. Í kerfum sem snúa að börnum og barnæsku þarf að byggja stofnanir sem samfélög sem frá grunni taka mið af mannlegri raunverulegri upplifun og hafa viðmið um raunverulegan árangur sem raunverulega er upplifaður af börnum og fjölskyldum þeirra. Slík nálgun spyr um persónulega merkingu, tilgang og einlægni að baki því sem birtist. Mat á kerfi og ferlum þarf að eiga sér rætur í rannsóknum við raunverulegar aðstæður og persónulega upplifun og draga þá þætti fram í gögnum sem birta það sjónarhorn í stað þess að notast við staðlaða þekkingu eða tilbúnar aðstæður. Áhersla á sameiginlegt samfélag barna og fullorðinna gefur barninu nauðsynlegan stöðugleika og vernd í skólanum, ekki aðeins til að sinna námi sínu heldur ekki síður möguleika á að þroskast eðlilega í samfélagi sem byggt er upp með áhuga og athygli fullþroska einstaklinga. Það er mjög mikilvægt að “Barnvæn nálgun” verði raunverulega þannig að hlustað verði á raddir ALLRA barna og fjölskyldna þeirra en ekki aðeins þær sem falla að núverandi kerfi. Hlusta þarf að reynslu og sjónarmið foreldra og barna sem ekki telja á sig hlustað innan skólakerfisins, greina hvers vegna slík upplifun er til staðar og hvernig má bæta úr því. Án þess verður ekkert úr þeirri barnvænu nálgun sem stefnt er að. Leiðtogasamfélagið ehf
- #2Persónuvernd
Með fylgir umsögn Persónuverndar.
- #3ÖBÍ réttindasamtök
Umsögn ÖBÍ um drög að tillögu til þingsályktunar um stefnu um farsæld barna
- #4Samband íslenskra sveitarfélaga
Í viðhengi er að finna umsögn Sambands íslenskra sveitarfélaga.
- #5Landssamtökin Þroskahjálp
Meðfylgjandi er umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.