Almannatryggingar. Aldursviðbót, tenging við launavísitölu og söfnun upplýsinga í tölfræðilegum tilgangi
Breytingar á lögum um almannatryggingar um aldursviðbót, tengingu fjárhæða við launavísitölu og um öflun, vistun og miðlun upplýsinga í tölfræðilegum tilgangi.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-47/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 10. mars 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 14 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (157. þing, mál 155)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (9. júlí 2026)
Drög að frumvarpinu voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda frá og með 24. febrúar 2025 umsagnir um drögin (mál nr. S-47/2025). Alls bárust 14 umsagnir um frumvarpið. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 29. mars 2025.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (14)
- #1Eiríkur V Kristvinsson
Gott og blessað,en ég stóð í þeirri trú að dregið yrði verulega úr tekjutengingum ellilífeyris undir ákveðnu hámarki.
- #2Guðjón Eyrfeld Ólafsson
Því er fólk sem veikist eða slasast og dettur útaf vinnumarkaði ekki látið halda sínum launum í einhver x ár staðgengils launum ? Í mínu tilfelli greinist ég með krabbamein í annað skipti haustið 2023 og þá komið a 4 stig og þegar greiðslum launagreiðanda og úr sjúkrasjóði míns stéttarfélags lauk fór ég á endurhæfingingarlífeyrir hja tr og hjá lífeyrisjóðum og okkar ráðstöfunum launa lækkaði um hver mánaðarlaunum um 300.000 kr Og ekki tekið tillit til skuldastöðu eins og greiðslu af húsnæðislánum og öðrum skuldum . Versta málið er ekki að greinast af lífsógnandi sjúkdómum heldur sparkar almen… Lesa alla
Því er fólk sem veikist eða slasast og dettur útaf vinnumarkaði ekki látið halda sínum launum í einhver x ár staðgengils launum ? Í mínu tilfelli greinist ég með krabbamein í annað skipti haustið 2023 og þá komið a 4 stig og þegar greiðslum launagreiðanda og úr sjúkrasjóði míns stéttarfélags lauk fór ég á endurhæfingingarlífeyrir hja tr og hjá lífeyrisjóðum og okkar ráðstöfunum launa lækkaði um hver mánaðarlaunum um 300.000 kr Og ekki tekið tillit til skuldastöðu eins og greiðslu af húsnæðislánum og öðrum skuldum . Versta málið er ekki að greinast af lífsógnandi sjúkdómum heldur sparkar almenningstrygginingar í þig liggjandi og bankanir . Vonandi nær ný ríkisstjórn og alþingi að laga þessi mál .
- #3Jack Hrafnkell Daníelsson
Árum saman hef ég bent á tekjuskerðingar lífeyrissjóðsgreiðsla sem ég vil meina að séu svik á samningum við elli og örorkulífeyrisþega. Samningur sem var gerður 1973 og var síðan svikin, fyrst 2009 þegar skerðingarákvæðin voru sett á og síðan aftur 2013 fyrir kosningarnar en Samfylkingin lofaði þá að afnema skerðingarnar sem áttu að vera tímabundnar. Leiðrétting á þessum skerðingum ætti að vera forgangsmál og eins ætti að laga hækkannir lífeyris afturvirkt um fjögur ár hið minnsta til samræmis við 62. grein, (áður 69. grein) laga um almannatryggingar til samræmis við launaþróun eins og lögin… Lesa alla
Árum saman hef ég bent á tekjuskerðingar lífeyrissjóðsgreiðsla sem ég vil meina að séu svik á samningum við elli og örorkulífeyrisþega. Samningur sem var gerður 1973 og var síðan svikin, fyrst 2009 þegar skerðingarákvæðin voru sett á og síðan aftur 2013 fyrir kosningarnar en Samfylkingin lofaði þá að afnema skerðingarnar sem áttu að vera tímabundnar. Leiðrétting á þessum skerðingum ætti að vera forgangsmál og eins ætti að laga hækkannir lífeyris afturvirkt um fjögur ár hið minnsta til samræmis við 62. grein, (áður 69. grein) laga um almannatryggingar til samræmis við launaþróun eins og lögin kveða skýrt á um.
- #4Persónuvernd
Sjá meðfylgjandi umsögn Persónuverndar.
- #5Sigurður Sigurðsson
Ég vil benda á að þó fleiri konur séu metnar með örorku og hliðsræð vandamál en karlar samkvæmt opinberum skráningum - þá virðist engin skráning vera á alvarleika örorkunnar eða bæklunar einstaklinganna - karlar hafa unnið hefðbundin karlastörf í erfiðum iðngreinum og verkamannavinnu sem konur sinntu nær aldrei - nema í sveitunum - það vantar sem sagt vægi eða alvarleika hvers karls og hverrar konu til að rétt vægi sé í fullyrðingu um hvort karlar eða konur hafi meiri eða minni örorku á hvoru kyni fyrir sig
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.