Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).
Með frumvarpinu er ætlunin að innleiða tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/883 frá 17. apríl 2019 um móttökuaðstöðu í höfnum til afhendingar úrgangs frá skipum, um breytingu á tilskipun 2010/65/ESB og um niðurfellingu tilskipunar 2000/59/EB. Tilskipunin kemur í stað eldri tilskipunar um sama efni, þ.e. tilskipun 2000/59/EB, sem hefur verið innleidd hér á landi með lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda, hafnalögum, nr. 61/2003, reglugerð um móttöku á úrgangi og farmleifum í höfnum, nr. 1200/2014 og reglugerð um gjaldtöku í höfnun vegna losunar, móttöku, meðhöndlunar og förgunar úrgangs og farmleifa frá skipum, nr. 1201/2014.
Markmið tilskipunarinnar er ætlað að vernda hafumhverfið frá neikvæðum áhrifum úrgangs frá skipum sem nota hafnir innan bandalagsins, á sama tíma og greið skipaumferð er tryggð. Þetta er gert með því að bæta og tryggja móttökuaðstöðu í höfnum og afhendingu úrgangs í höfnum til þess að koma í veg fyrir að úrgangur sé losaður í hafið.
Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda hvað varðar skilgreiningar á hugtökum, skyldu hafnarstjórna að gera áætlun um móttöku úrgangs og farmleifa og breytingu á gildissviði laganna varðandi tiltekin skip. Samsvarandi breyting er gerð á hafnalögum
S-46/2025· Drög að frumvarpi til laga· Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 21. feb. 2025 – 7. mar. 2025· 1 umsögn
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda (móttaka úrgangs í höfnum)
Frumvarp til laga um breytingu á lögum um varnir gegn mengun hafs og stranda hvað varðar móttöku úrgangs í höfnum.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.
Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.
Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)