Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-45/2025 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna (námsstyrkir og endurgreiðslur).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).

Lög um Menntasjóð námsmanna tóku gildi 1. júlí 2020. Þau fólu í sér grundvallarbreytingar á námslánakerfinu frá því sem áður var, einkum með samspili vaxta á námslán og síðan niðurgreiðslu þeirra í formi námsstyrkja, sem ætlað var að hvetja nemendur til að ljúka námi á tilskyldum tíma. Í frumvarpinu eru áformaðar breytingar á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020, til viðbótar þeim sem voru samþykktar á síðasta þingi. Í samræmi við bráðabirgðaákvæði í lögunum, sem fjallar um endurskoðun þeirra að þremur árum liðnum frá gildistöku þeirra, var unnið mat á áhrifum lagasetningarinnar og þeim niðurstöðum skilað til Alþingis sem skýrslu í árslok 2023. Á vorþingi 2024 voru gerðar breytingar á lögunum sem tóku gildi 22. júní 2024, þar sem lögfest var heimild námsmanna til þess að færa sig einu sinni á milli námsbrauta, án þess að missa rétt til námsstyrks, auk þess sem ábyrgðarmannakerfi námslána var fellt úr gildi. Þá voru lögfest ákvæði um að Menntasjóði væri eingöngu heimilt að fjármagna útlán sjóðsins í gegnum Endurlán ríkissjóðs, en frá gildistöku laganna hafa útlán sjóðsins meðal annars verið fjármögnuð af eigin fé eldra lánasafns sjóðsins, þ.e. Lánasjóðs íslenskra námsmanna (LÍN). Í kjölfar gildistöku framangreindra breytinga hófst vinna við heildarendurskoðun laganna á grundvelli greiningarvinnu og niðurstöðu vinnustofu sem haldin var með fulltrúum námsmanna, stjórn og starfsmönnum Menntasjóðs, auk fulltrúa frá BHM, Samtökum atvinnulífsins og Samtökum iðnaðarins. Í þeirri vinnu hafa frekari vankantar á gildandi lögum komið í ljós auk ábendinga um framkvæmd laganna, sem æskilegt væri að breyta. Frumvarpinu er ætlað að mæta því, að því marki sem hægt er miðað við þann skamma tíma sem liðinn er frá því að ný ríkisstjórn tók við völdum og vegna stöðu ríkisfjármála, sem ekki er hægt að horfa fram hjá. Helstu efnisþættir frumvarpsins eru þessir: 1. Styrkjakerfi námslána er breytt á þann veg að í stað 30% niðurfellingar höfuðstóls námslána í lok náms geta þeir sem uppfylla kröfur um námsframvindu fengið 20% niðurfellingu við lok hverrar námsannar og 10% við námslok. 2. Vaxtaviðmiðum námslána er breytt á þann veg að byggt er á þriggja ára meðaltali vaxta í stað eins mánaðar. Þetta þýðir að áhrif stýrivaxtaákvarðana Seðlabanka Íslands á vaxtabyrði námslána minnka frá því sem verið hefur. 3. Viðmið í lið tvö standa jafnframt þeim til boða sem þegar hafa tekið lán. 4. Þá er að finna heimild fyrir lánþega sem skulda H-lán eftir stofnun Menntasjóðs og önnur eldri lán í tíð LÍN til að greiða fyrst af H-láni og fresta greiðslu eldri lána þar til H-lánið hefur verið greitt upp. 5. Önnur ákvæði frumvarpsins varða framkvæmd laganna.

S-45/2025· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 21. feb. 2025 – 7. mar. 2025· 7 umsagnir

Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020

Háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna (námsstyrkir og endurgreiðslur).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-45/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 7. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 254)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (1. júlí 2026)

Frumvarpið varð að lögum á 157. löggjafarþingi Alþingis, lög nr. 70/2025

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
  • #1Samband íslenskra námsmanna erl

    Samband íslenskra námsmanna erlendis (SÍNE) umsögn um drög að frumvarpi um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna nr. 60/2020, með síðari breytingum (námsstyrkir og endurgreiðslur)

  • #2Bandalag háskólamanna

    Hjálagt er umsögn BHM um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna (námsstyrkir, endurgreiðslur), nr. 60/2020, mál nr. S-45/2025. Fyrir hönd BHM, Björg Kjartansdóttir framkvæmdastjóri BHM

  • #3Landssamtök íslenskra stúdenta

    Umsögn Landssamtaka íslenskra stúdenta (LÍS) um drög að frumvarpi til breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna (námsstyrkir og endurgreiðslur).

  • #4Samtök atvinnulífsins

    Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins í máli nr. S-45/2025.

  • #5Guðbergur Egill Eyjólfsson
    Umsögn 56. löggjafarþing 2025–2026. 7. mars 2025 Umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna nr. 60/2020, með síðari breytingum (námsstyrkir og endurgreiðslur), mál nr. S-45/2025. Ég vil benda á ákveðna ósanngirni sem fellst í lögum um Menntasjóð námmsmanna nr. 60/2020 varðandi niðurfellingu lána til einstaklinga sem orðið hafa fyrir það miklum áföllum, andlegum eða/og líkamlegum, að geta ekki nýtt menntun sína sér og sínum til framfærslu. Sjóðnum er heimilt að fella… Lesa alla

    Umsögn 56. löggjafarþing 2025–2026. 7. mars 2025 Umsögn um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna nr. 60/2020, með síðari breytingum (námsstyrkir og endurgreiðslur), mál nr. S-45/2025. Ég vil benda á ákveðna ósanngirni sem fellst í lögum um Menntasjóð námmsmanna nr. 60/2020 varðandi niðurfellingu lána til einstaklinga sem orðið hafa fyrir það miklum áföllum, andlegum eða/og líkamlegum, að geta ekki nýtt menntun sína sér og sínum til framfærslu. Sjóðnum er heimilt að fella niður námslán skv 20. Gr. Laga um Menntasjóðinn nr. 60/2020 en það á aðeins við um námslán sem tekin hafa verið eftir gildistöku þeirra laga en ekki námslána sem tekin voru í tíð eldri laga nr. 21/1992 og eiga ákvæði þeirra laga enn við um þau lán þótt lögin hafi verið felld úr gildi. Vil ég þá benda á þá ósanngirni að þeir sem á engann hátt geta nýtt sér þá menntun sem þeir hafa aflað sér, vegna áfalla sem þeir hafa orðið fyrir, og þar af leiðandi ekki greitt námslán sem fengin voru til að afla menntunarinnar hafi þeir tekið námslánin fyrir gildingu núverandi laga, nr 60/2020. Eigi ekki kost á niðurfellingu eins og þeir sem tóku lán eftir breytinguna. Bið ég því um að sett verði inn í lögin við endurskoðunina að það sama gildi um þá sem tóku námslán fyrir breytingu lagana til jafns við þá sem tóku námslán eftir breytinguna. Virðingarfyllst Guðbergur Egill Eyjólfsson

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-45/2025: Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020 · Alviti