Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sjúkraskrár (ýmsar breytingar)
Heilbrigðisráðuneytið kynnir til samráðs drög að frumvarpi til breytingu á lögum um sjúkraskrár (ýmsar breytingar).
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-44/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 10. mars 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 8 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 258)
Niðurstöður samráðs (17. mars 2025)
Frumvarpið fór í frekari vinnslu í ráðuneytinu, stefnt er að framlagningu þess á 156. löggjafarþingi.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (8)
- #1Gunnar Ármannsson
Sjá meðfylgjandi umsögn.
- #2SVÞ-Samtök verslunar og þjónustu
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka heilbrigðisfyrirtækja um drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um sjúkraskrár (ýmsar breytingar).
- #3Steinunn Þórðardóttir
Meðfylgjandi er umsögn Læknafélags Íslands (LÍ). Með kveðju, Steinunn Þórðardóttir Formaður LÍ
- #4Engilbert Sigurðsson
Heilbrigðisráðuneytið Síðumúla 24 108 Reykjavík Undirritaður vill benda á einn þátt þessa frumvarps sem er vanreifaður og sem nauðsynlegt er að breyta (a)), og annan þátt (b)) þar sem mikilvæg og málefnaleg breyting hefur verið gerð í tengslum við verknám nema í heilbrigðisgreinum og starfsnám sérnámslækna (og fleiri heilbrigðisstétta) sem er nauðsynleg í huga undirritaðs. a) Það myndi valda aðstandendum geðsjúkra og geðlæknum sem starfa á geðdeildum við mat og meðferð einstaklinga sem glíma við geðraskanir, einkum alvarlegustu geðraskanirnar eins og geðrofssjúkdóma, verulegum vandkvæðum e… Lesa alla
Heilbrigðisráðuneytið Síðumúla 24 108 Reykjavík Undirritaður vill benda á einn þátt þessa frumvarps sem er vanreifaður og sem nauðsynlegt er að breyta (a)), og annan þátt (b)) þar sem mikilvæg og málefnaleg breyting hefur verið gerð í tengslum við verknám nema í heilbrigðisgreinum og starfsnám sérnámslækna (og fleiri heilbrigðisstétta) sem er nauðsynleg í huga undirritaðs. a) Það myndi valda aðstandendum geðsjúkra og geðlæknum sem starfa á geðdeildum við mat og meðferð einstaklinga sem glíma við geðraskanir, einkum alvarlegustu geðraskanirnar eins og geðrofssjúkdóma, verulegum vandkvæðum ef 2. mgr. 14. gr. yrði felld niður. Forsendur þessa eru annars vegar að aðstandendur myndu þá mun síður en áður treysta sér til að lýsa þróun alvarlegra veikinda heima fyrir í aðdraganda innlagnar, vitandi að það að upplýsa heilbrigðisstarfsmenn, oftast lækna, um slíkt, myndi geta leitt til varanlegrar skerðingar á trausti milli aðstandandans (oftast foreldri eða maki) og hins veika. Sömu rök leiddu til þess að við grundvallarbreytingar á lögræðislögum fyrir rúmum áratug. Þá var þeim breytt á þann veg að aðstandendur gátu ekki lengur verið beiðendur fyrir nauðungarvistun og það hlutverk var þá alfarið fært til félagsþjónustunnar. Hins vegar hefði niðurfelling þessa ákvæðis í för með sér hættu á því að þrýstingur væri settur á lækna í þessari stöðu um að slíkar upplýsingar - þótt um lykilupplýsingar til gera rétta greiningar og/eða meta rétt stöðu veikinda - væru ekki skráðar í sjúkraskrá. Þar væru geðlæknar og sérnámslæknar og eftir atvikum hjúkrunarfræðingar og sálfræðingar sem vinna við hlið þeirra settir í afar óheppilega stöðu. Eiga þeir þá að vara aðstandendur við því að allt sem aðstandendur segja sem skýrir alvarleika veikinda verði að vera skráð í sjúkraskrá (t.d. sjálfsvígshættu, ranghugmyndir, ofskynjanir, innsæisleysi í að hlutaðeigandi einstaklingur sem aðstandandinn tengist sé veikur o.s.frv.)? Því myndi fylgja veruleg hætta á að annað tveggja gerist: Upplýsingarnar séu ekki veittar og það leiði til rangs eða ófullnægjandi mats eða meðferðar eða að þær séu veittar en ekki skráðar í sjúkraskrá heldur gangi þær munnlega á milli meðferðaraðila með tilheyrandi hættu á bjögun. Einnig væri nokkur hætta á að þær yrðu skráðar á bréfsnepla eða blöð sem torvelt væri að geyma með öruggum hætti auk þess sem slík geymsla væri óheimil samkvæmt laganna hljóðan. Það er afar mikilvægt að glæða skilning á því um hvaða hagsmuni hér er að tefla með dæmum þegar frumvarpið verður tekið til frekari umfjöllunar og umræðu. b) Sá viðbótartexti sem nú er í frumvarpinu um aðgengi nema í verknámi heilbrigðisstarfsmanna eftir að bætt var við eftirfarandi viðbót í lok 1. mgr. 13. gr.: "eða vegna kennslu undir handleiðslu kennara í skipulögðu klínísku námi í tengslum við meðferð sjúklings" er málefnalegur og nauðsynlegur að mati undirritaðs. Engilbert Sigurðsson geðlæknir prófessor í geðlæknisfræði
- #5Landspítali
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.