Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-43/2025 · Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið

Stuðningur til einkarekinna fjölmiðla

Ákvæði X. kafla B fjölmiðlalaga nr. 38/2011 féllu úr gildi síðastliðin áramót. Með frumvarpinu er lagt til að ákvæði kaflans verði tekin upp í lögin á ný með gildistíma til næstuáramóta.

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).

Ákvæði X. kafla B fjölmiðlalaga nr. 38/2011 féllu úr gildi síðastliðin áramót en stuðningskerfið hefur verið við lýði frá 1. ágúst 2021 og var síðar framlengt með minniháttar breytingum 21. júní 2023. Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra leggur til í drögum að frumvarpi til breytinga á fjölmiðlalögum að stuðningur til einkarekinna fjölmiðla verði framlengdur til eins árs. Sú breyting er gerð frá fyrri lögum að hlutfall stuðnings til hvers umsækjanda getur samkvæmt frumvarpinu ekki orðið hærri en sem nemur 22% af fjárveitingu til verkefnisins en áður var miðað við 25%. Vinna við endurskoðun ákvæða kaflans er þegar hafin og mun frumvarp sem festir í sessi stuðning til einkarekinna fjölmiðla verða lagt fram á haustþingi. Af þeim sökum er gildistími kaflans einungis til næstu áramóta. Var það metið sem svo að vinna við endurskoðun væri ekki komin á það stig að unnt væri að leggja fram frumvarp með endurskoðuðum ákvæðum á vorþingi, en til þess að tryggja stuðning við fjölmiðla á árinu 2025 þykir nauðsynlegt að taka upp ákvæði um stuðning til einkarekinna fjölmiðla sem gilda meðan verið er að ljúka vinnu við endurskoðun stuðningsins. Áætlað er að til úthlutunar á árinu verði sambærileg upphæð og hefur verið.

S-43/2025· Drög að frumvarpi til laga· Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið· Niðurstöður í vinnslu· frestur 20. feb. 2025 – 6. mar. 2025· 13 umsagnir

Stuðningur til einkarekinna fjölmiðla

Ákvæði X. kafla B fjölmiðlalaga nr. 38/2011 féllu úr gildi síðastliðin áramót. Með frumvarpinu er lagt til að ákvæði kaflans verði tekin upp í lögin á ný með gildistíma til næstuáramóta.

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-43/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 13 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 256)
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (13)
  • #1Hólmgeir Baldursson
    Það væri mikið framfaraskref ef „Fjölmiðlastyrkir“ yrðu loks útfærðir fyrir ljósvakafyrirtæki sem stunda afþreyingarmiðlum og kosta til verulegum fjárhæðum í að texta og talsetja í samkeppni við erlendar streymisveitur sem ekki þurfa að lúta íslenskum fjölmiðlalögum um textaskyldu í stað þess að eingöngu einblína á „fréttamiðla“ og koma þar með almennilega til móts við „fjölmiðla“ landsins en ekki eingöngu fréttamiðla sem þessi styrkur virðist eingöngu ná yfir. Ég starfræki íslenska Sjónvarpsfélagið Skjá 1 og fullyrði að ekkert styrkjaumhverfi nær yfir opna línulega sjónvarpsmiðlun þar sem þe… Lesa alla

    Það væri mikið framfaraskref ef „Fjölmiðlastyrkir“ yrðu loks útfærðir fyrir ljósvakafyrirtæki sem stunda afþreyingarmiðlum og kosta til verulegum fjárhæðum í að texta og talsetja í samkeppni við erlendar streymisveitur sem ekki þurfa að lúta íslenskum fjölmiðlalögum um textaskyldu í stað þess að eingöngu einblína á „fréttamiðla“ og koma þar með almennilega til móts við „fjölmiðla“ landsins en ekki eingöngu fréttamiðla sem þessi styrkur virðist eingöngu ná yfir. Ég starfræki íslenska Sjónvarpsfélagið Skjá 1 og fullyrði að ekkert styrkjaumhverfi nær yfir opna línulega sjónvarpsmiðlun þar sem þess er krafist samkvæmt lögum um fjölmiðla að allt efni sem birtist skuli textað eða talsett á íslenska tungu. Nýlega auglýstur „endurgreiðslustyrkur“ Fjölmiðlanefndar varðandi texta og talsetningu fyrir börn yngri en 12 ára nær að því er virðist eingöngu fyrir miðla sem selja áskriftir að efninu. F.h. Skjás 1 Hólmgeir Baldursson www.skjar1.is

  • #2Skessuhorn ehf
    Fyrir hönd Skessuhorns ehf. – fréttaveitu Vesturlands fagna ég því sem slíku að ráðherra vilji framlengja stuðning til einkarekinna fjölmiðla um eitt ár. Styrkir úr ríkissjóði undanfarin ár hafa vissulega lengt líf einhverra miðla, þeirra á meðal okkar. Ekki síst á það við um fjölmiðla sem ekki eru baktryggðir af fjársterkum hagsmunaöflum – eða eru reknir með útvarpsgjaldi úr vasa almennings. Sem útgefandi og ábyrgðaraðili óska ég jafnframt eftir að flýtt verði sem kostur er gerð lagafrumvarps um stuðning næstu ára við einkarekna fjölmiðla. Sé það stefna stjórnvalda að þeir verði áfram til er… Lesa alla

    Fyrir hönd Skessuhorns ehf. – fréttaveitu Vesturlands fagna ég því sem slíku að ráðherra vilji framlengja stuðning til einkarekinna fjölmiðla um eitt ár. Styrkir úr ríkissjóði undanfarin ár hafa vissulega lengt líf einhverra miðla, þeirra á meðal okkar. Ekki síst á það við um fjölmiðla sem ekki eru baktryggðir af fjársterkum hagsmunaöflum – eða eru reknir með útvarpsgjaldi úr vasa almennings. Sem útgefandi og ábyrgðaraðili óska ég jafnframt eftir að flýtt verði sem kostur er gerð lagafrumvarps um stuðning næstu ára við einkarekna fjölmiðla. Sé það stefna stjórnvalda að þeir verði áfram til er óverjandi annað en skapaður verði meiri stöðugleiki og umfram allt fyrirsjáanleiki í slíkum rekstri. Magnús Magnússon

  • #3Gunnar Gunnarsson
    Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla nr. 38/2011 Útgáfufélag Austurlands, útgefandi netmiðilsins Austurfréttar og vikublaðsins Austurgluggans, fagnar því að ráðherra hafi ákveðið að framlengja styrki til einkarekinna fjölmiðla. Eins og fram hefur komið í fyrri umsögnum félagsins hafa þeir síðustu ár skipt miklu máli fyrir útgáfuna. Útgáfufélagið telur þær breytingar sem lagðar eru til að þessu sinni til bóta. Að hámarksstyrkur sé lækkaður í 22% af þeirri upphæð sem er til ráðstöfunar er til þess fallið að styðja við fjölbreytileika á fjölmiðlamarkaði. Eins og bent er… Lesa alla

    Umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjölmiðla nr. 38/2011 Útgáfufélag Austurlands, útgefandi netmiðilsins Austurfréttar og vikublaðsins Austurgluggans, fagnar því að ráðherra hafi ákveðið að framlengja styrki til einkarekinna fjölmiðla. Eins og fram hefur komið í fyrri umsögnum félagsins hafa þeir síðustu ár skipt miklu máli fyrir útgáfuna. Útgáfufélagið telur þær breytingar sem lagðar eru til að þessu sinni til bóta. Að hámarksstyrkur sé lækkaður í 22% af þeirri upphæð sem er til ráðstöfunar er til þess fallið að styðja við fjölbreytileika á fjölmiðlamarkaði. Eins og bent er á í greinargerð þá hefur þróunin í nágrannaríkjum verið sú að betur er stutt við minni miðla, einkum staðbundna miðla. Útgáfufélag Austurlands þakkar þann skilning sem aðstöðu staðarmiðla er sýndur í þessu frumvarpi, sem fyrrum. Útgáfufélag Austurlands vill vekja athygli á að í þeim löndum er áherslan á miðla sem framleiða fréttaefni eða fjalla um samfélagsleg málefni. Þar sem styrkjunum er ætlað að styðja við fjölmiðla, sem hluta af hornsteinum lýðræðisins, gengur ekki að þeir fari til miðla sem aðeins fjalla um tiltekinn áhugamál eða byggja mest á þýðingum á erlendu efni. Mögulega er tilefni til að skerpa þetta ákvæði enn frekar. Að þessu sögðu vísar Útgáfufélag Austurland til fyrri umsagna sinna um bæði lög um fjölmiðla og fjölmiðlastefnu. Félagið vill ítreka þörfina á að móta reglur til lengri tíma til að tryggja fyrirsjáanleika í rekstri miðlanna. Að aðeins sé hægt að ganga að styrkjunum sem vísum, eins mikilvægt og það er, frá ári til árs gerir það ekki. Að endingu lýsa stjórnendur Útgáfufélags Austurlands sig tilbúna til samræðna um stöðu fjölmiðlunar í landinu hvenær sem þess er óskað. F.h. Útgáfufélags Austurlands Gunnar Gunnarsson, ritstjóri

  • #4Leturstofan Vestmannaeyjum ehf.

    Fyrir hönd Leturstofurnnar Vestmannaeyjum ehf. – Sem gefur út bæjarfjölmiðilinn Tígul. Gleður okkur mikið að ráðherra vilji framlengja stuðning til einkarekinna fjölmiðla um eitt ár. Styrkir úr ríkissjóði undanfarin ár hafa lengt líf okkar miðils. Er það okkar von að áframhald verði. Takk fyrir okkur, Sæþór Vídó, Kata Laufey og Lind.

  • #5Fjölmiðlatorgið ehf.

    Umsögn Fjölmiðlatorgsins ehf. fylgir í viðhengi. j.

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-43/2025: Stuðningur til einkarekinna fjölmiðla · Alviti