Beint í efni
Alviti
← Samráðsgátt
S-41/2025 · Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Áform um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (almenn skráningarskylda leigusamninga í leiguskrá)

Félags- og húsnæðismálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (almenn skráningarskylda leigusamninga í leiguskrá).

Á þingmálaskrá ríkisstjórnar: 157. þing (áætlað: september).

1. janúar 2023 tóku gildi breytingar á húsaleigulögum þar sem m.a. var kveðið á um skráningarskyldu leigusamninga í leiguskrá HMS, sbr. lög nr. 121/2022. Í meðförum þingsins var skráningarskyldan þó takmörkuð við leigusala sem hafa atvinnu af útleigu íbúðarhúsnæðis samkvæmt lögum um tekjuskatt (eru með 3 eða fleiri íbúðir/húsnæði til útleigu), en upphaflega stóð til að skráningarskyldan yrði almenn og næði þannig til allra leigusamninga um húsnæði sem væri leigt til íbúðar. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á húsaleigulögum þess efnis að skráningarskylda leigusamninga í leiguskrá Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar verði almenn í stað þess að hún taki eingöngu til þeirra sem hafa atvinnu af útleigu íbúðarhúsnæðis samkvæmt lögum um tekjuskatt. Með því fást áreiðanlegri og heildstæðari upplýsingar um leigumarkaðinn og einstaka hluta hans, lengd leigusamninga, þróun húsaleigu, búsetu í óviðunandi húsnæði o.fl., sem nauðsynlegar eru til að undirbyggja frekari stefnumótun og ákvarðanatöku stjórnvalda í málaflokknum sem og eftirlit með svartri leigustarfsemi.

S-41/2025· Áform um lagasetningu· Félags- og húsnæðismálaráðuneytið· Niðurstöður birtar· frestur 20. feb. 2025 – 6. mar. 2025· 4 umsagnir

Áform um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (almenn skráningarskylda leigusamninga í leiguskrá)

Félags- og húsnæðismálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (almenn skráningarskylda leigusamninga í leiguskrá).

Skoða í Samráðsgátt
Ferill í Samráðsgátt
  1. Birt í Samráðsgátt (S-41/2025)
  2. Umsagnarfrestur hefst · til 6. mars 2025
  3. Umsagnarfresti lýkur · 4 umsagnir bárust
  4. Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 224)
  5. Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (18. febrúar 2026)

Áform um framlagningu frumvarpsins voru kynnt í Samráðsgátt frá 20.2.2025 - 6.3.2025. Alls bárust fjórar umsagnir um áformin sem komu til skoðunar við lokavinnslu frumvarpsins. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 18. september 2025 og samþykkt 10. nóvember sama ár, sbr. hlekk hér fyrir neðan.

Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (4)

Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.

Samráðsgátt og Alþingi nota hvort sitt númerakerfi: S-númer í gáttinni er ekki málsnúmer á Alþingi. Alviti tengir samráðsmál við þingmál eftir ráðuneyti, tegund máls, tímasetningu og orðalagi.

Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda · Skoða á althingi.is (opnast í nýjum flipa)

Hjálpaðu okkur að bæta Alviti

Fannstu villu, rangar upplýsingar eða eitthvað sem mætti vera betra? Sendu okkur ábendingu.

Bæta við mynd

Þú getur sent skjáskot sem sýnir vandamálið.

Ef þú vilt að við getum haft samband við þig.

Netfangið er aðeins notað til að svara þér um þessa ábendingu. Það er ekki birt og ekki sett á neinn póstlista. Með ábendingunni fylgir slóð síðunnar sem þú ert á og stærð gluggans.

S-41/2025: Áform um frumvarp til laga um breytingu á húsaleigulögum, nr. 36/1994 (almenn skráningarskylda leigusamninga í leiguskrá) · Alviti