Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016 (fyrirkomulag almennra íbúða)
Félags- og húsnæðismálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp til laga breytingu á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016 (fyrirkomulag almennra íbúða).
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-40/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 6. mars 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 9 umsagnir bárust
- Niðurstöður samráðs birtar
Málið hefur ekki komið fram á Alþingi enn, eftir því sem Alviti finnur.
Niðurstöður samráðs (18. febrúar 2026)
Áform um framlagningu frumvarpsins voru kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda á vefnum Ísland.is frá og með 20. febrúar 2025 og var veittur frestur til og með 6. mars sama ár til að veita umsagnir um áformin. Alls bárust níu umsagnir um áformin sem nýttust við frekari stefnumótunarvinnu stjórnvalda í húsnæðismálum. Ákveðið var að afmarka frekar breytingar á lögum um almennar íbúð í tengingu við hækkun stofnframlaga, sem er í vinnslu hjá ráðuneytinu, en önnur atriði munu rata í aðrar breytingar sem gera þarf á lögunum.
- Áform um lagasetningu_fyrirkomulag almennra íbúða.pdf
- Frummat á áhrifum_fyrirkomulag almennra íbúða.pdf
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (9)
- #1Einar Jónsson
Grunnþarfir: Fæði, klæði og húsnæði. Setja ætti samræmda löggjöf um opinberan stuðning til kaupa á eignaríbúðum og til leigu á leiguíbúðum með breyttri hugsun þar sem stuðningur yrði einstaklingsbundinn miðað við aðstæður hvers og eins. Blessunarlega geta flest okkar keypt sér "fæði og klæði" miðað við persónulegar þarfir hvers og eins en ekki samkvæmt stjórn og skilyrða "ríkisins". Ef ekki þá reynir á framfærsluskyldu sveitarfélaga. Sama ætti að gilda um þriðju grunnþörfina um öflun húsnæðis þótt vissulega sé himinn og haf þarna á milli. En allir þurfa húsnæði jafn sem fæði og klæði… Lesa alla
Grunnþarfir: Fæði, klæði og húsnæði. Setja ætti samræmda löggjöf um opinberan stuðning til kaupa á eignaríbúðum og til leigu á leiguíbúðum með breyttri hugsun þar sem stuðningur yrði einstaklingsbundinn miðað við aðstæður hvers og eins. Blessunarlega geta flest okkar keypt sér "fæði og klæði" miðað við persónulegar þarfir hvers og eins en ekki samkvæmt stjórn og skilyrða "ríkisins". Ef ekki þá reynir á framfærsluskyldu sveitarfélaga. Sama ætti að gilda um þriðju grunnþörfina um öflun húsnæðis þótt vissulega sé himinn og haf þarna á milli. En allir þurfa húsnæði jafn sem fæði og klæði og þar ættu persónulegar aðstæður hvers og eins að ráða för eins og um hinar grunnþarfirnar. Sveitarfélögin hafa þarna einnig lögboðnar skyldur. Þess vegna ættu allir, sem almenni markaðurinn gagnast ekki til íbúðarkaupa, að eiga kost á fyrirgreiðslu til kaupa á viðunandi íbúðarhúsnæði á sínum forsendum ef þeir kjósa svo. Annars standi þeim til boða að leigja íbúð á sínum forsendum með sambærilegu húsnæðisöryggi og gildir í eignaríbúðum þ.e. að viðkomandi sem efnir skyldur sínar geti búið í íbúð sinni svo lengi sem hann kýs. Valkostur milli leigu og kaupa yrði þar með raunhæfari. Framkvæmd gæti verið þannig að gerður er samningur um samvinnu stofnunar ( HMS ) og viðskiptavinar um húsnæðisstuðning. Stuðningur felur í sér samvinnu um kaup á viðunandi húsnæði með fjármögnunarkjörum sem HMS stillir að högum hvers og eins og þá með mismunandi stuðningi. Lánveitendur geta eftir atvikum verið HMS eða lífeyrissjóðir og bankar Ekkert hámarkslán, ekkert hámarks veðhlutfall og vaxtakjör og lánstími sveigjanleg með aðlögun að högum viðskiptavinar og greiðslugetu hans. HMS gerir einnig tillögur til ríkis og sveitarfélaga um íbúðaþörf og um opinberan stuðning og styrki til markaðsaðila sem þjóna markmiðum HMS. Inngrip HMS fer eftir því hversu mikið almenni markaðurinn gagnast á hverjum tíma þar með að sveitarfélög sjálf gætu þurft að standa fyrir nýbyggingum. Markmið: Að nægilegt framboð sé af hagkvæmum fjölskylduíbúðum og að "öllum" standi til boða viðunandi húsnæði á kjörum sem miðast við persónulegar aðstæður hvers og eins. Einnig eru fyrirheit um stuðning á sömu forsendum ef óvæntar breytingar verða með hvata til aðlögunar ef aðstæður batna.
- #2Skagafjörður
Á 135. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 26. febrúar 2025 var tekið fyrir mál, 40/2025, til samráðs og þannig bókað: Byggðarráð Skagafjarðar fagnar áformum um breytingar á lögum um almennar íbúðir. Nauðsynlegt er að stuðla að lækkun fjármögnunarkostnaðar stofnframlagshafa en einnig að tryggja að stuðningur við húsnæðisuppbyggingu sé í samræmi við raunverulegan byggingarkostnað íbúða. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
- #3BSRB
Sjá umsögn BSRB meðfylgjandi.
- #4Samtök atvinnulífsins
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins í máli nr. S-40/2025.
- #5Landssamtökin Þroskahjálp
Meðfylgjandi er umsögn Landssamtakanna Þroskahjálpar um áfrom um frumvarp til laga um breytingu á lögum um almennar íbúðir, nr. 52/2016 (fyrirkomulag almennra íbúða)
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.