Áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús nr. 26/1994 (hunda- og kattahald)
Félags- og húsnæðismálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús nr. 26/1994 (hunda- og kattahald).
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-39/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 6. mars 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 2 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 220)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (18. febrúar 2026)
Áform um framlagningu frumvarpsins voru kynnt í Samráðsgátt frá 20.2.2025 - 6.r.2025. Alls bárust þrjár umsagnir um áformin, þar af ein sem barst að samráðsferli loknu, sem komu til skoðunar við vinnslu frumvarpsins. Ekki gafst tími fyrir til að kynna drög að frumvarpinu í samráðsgátt stjórnvalda áður en það var lagt fram á síðasta löggjafarþingi. Frumvarpið var lagt fram á Alþingi 18. september 2025 og samþykkt 12. nóvember sama ár, sbr. hlekk hér fyrir neðan.
- Áform um lagasetningu - breyting á fjöleignarhúsalögum (dýrahald) 220125.pdf
- Mat á áhrifum - breyting á fjöleignarhúsalögum (hunda- og kattahald) 220125.pdf
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (2)
- #1Þorsteinn Kristinsson
Á 117. löggjafarþingi (1993-4) var lagt fram frumvarp nr. 159 til laga um fjöleignarhús. Í A lið 41. greinar er upptalning á þeim ákvörðunum þar sem þarf samþykki allra eigenda. Í 771. breytingartillögu 117. löggjafarþings, 143. máls. við 41. gr. “Við A-lið bætist nýr töluliður sem orðist svo: Um að halda megi hunda og/eða ketti í húsinu. Þegar hús skiptist í aðgreinda hluta nægir samþykki þeirra eigenda sem hafa sameiginlegan inngang, stigagang eða annað sameiginlegt húsrými.” Í 770. nefndaráliti 117. löggjafarþings, 143. máls. segir “Breytingin við A-lið 41. gr felur í sér að til að mega… Lesa alla
Á 117. löggjafarþingi (1993-4) var lagt fram frumvarp nr. 159 til laga um fjöleignarhús. Í A lið 41. greinar er upptalning á þeim ákvörðunum þar sem þarf samþykki allra eigenda. Í 771. breytingartillögu 117. löggjafarþings, 143. máls. við 41. gr. “Við A-lið bætist nýr töluliður sem orðist svo: Um að halda megi hunda og/eða ketti í húsinu. Þegar hús skiptist í aðgreinda hluta nægir samþykki þeirra eigenda sem hafa sameiginlegan inngang, stigagang eða annað sameiginlegt húsrými.” Í 770. nefndaráliti 117. löggjafarþings, 143. máls. segir “Breytingin við A-lið 41. gr felur í sér að til að mega halda hunda eða ketti í fjöleignarhúsi verði að fá samþykki þeirra eigenda sem hafa hvers kyns sameiginlegt húsrými. Tillagan byggist fyrst og fremst á að nokkuð er um að börn og fullorðnir hafi ofnæmi fyrir þessum dýrum. Getur slíkt ofnæmi haft það alvarleg áhrif að fólk geti jafnvel þurft að flytja úr eigin íbúðarhúsnæði gangi ekki að fá skilning sameigenda á þessu vandamáli. Er breytingunum ætlað að koma í veg fyrir slíkar aðstæður. Til samræmis er einnig lögð til breyting á 5. tölul. 74. gr. þannig að reglur um hunda- og kattahald komi fram í húsreglum fjölbýlishúsa sé það á annað borð heimilað.” Í ljós kom eftir gildistöku laganna að þrátt fyrir að ákvæðið hafi verið sett inn til að tryggja hagsmuni þeirra sem hafa ofnæmi fyrir hundum þá var engan vegin vandað til verka við lagasetninguna. Hver sem er gat því neitað hundaeiganda um samþykki og borið við ofnæmi þó því hafi aldrei verið til að skipta. Því má segja að faraldur andlegs ofnæmis gegn hundum hafi ráðið för í fjöleignarhúsum frá 1994 allt þar til breytingar voru gerðar árið 2011. Staða hundaeigenda var því mjög slæm og engir varnaglar í lögunum sem gátu tekið á uppskálduðu eða upplognu ofnæmi gegn hundum. Lögin voru endurskoðuð vegna leiðsögu- og hjálparhunda en í ljós kom að upphaflegu lögin gerðu engan greinarmun á þeim og öðrum hundum. Sett var inn í lögin ákvæði varðandi ofnæmi fyrir leiðsögu- og hjálparhundum. 33.gr.d. “Sé eigandi eða einhver í hans fjölskyldu með ofnæmi fyrir hundum á svo háu stigi að lyf megna ekki að gera sambýlið við leiðsögu- eða hjálparhund bærilegt og læknisfræðileg gögn staðfesta það skal kærunefnd húsamála leita lausna að fengnu áliti ofnæmislækna, leiðsögu- eða hjálparhundaþjálfara og sérfræðinga á öðrum sviðum ef því er að skipta.” Í þingskjali 487. 377. máls 139. löggjafarþings segir: “Málefni leiðsögu- og hjálparhunda fyrir fatlað fólk í fjöleignarhúsum hafa verið til umræðu síðustu mánuði vegna andstöðu við því að blind kona fái að halda sérþjálfaðan leiðsöguhund. Í lögum um fjöleignarhús er sérstakt ákvæði um ketti og hunda og segir að hald slíkra dýra sé háð samþykki alla eigenda. Þó nægir samþykki eigenda sem hafa sameiginlegan inngang, stigagang eða annað sameiginlegt húsrými. Samkvæmt því getur sérhver eigandi, án þess að færa fram rök eða ástæður, staðið í vegi fyrir hundahaldi í fjöleignarhúsi. Eru leiðsögu- og hjálparhundar í því efni undir sömu sök seldir og gæluhundar. Þetta ákvæði laganna hefur sætt harðri gagnrýni og sú úthýsing leiðsögu- og hjálparhunda sem af því getur leitt fer greinilega mjög í bága við réttarvitund almennings.” Breytingartillaga kom fram um að í stað þess að það þyrfti leyfi allra þá þyrfti einungis leyfi ⅔ eigenda með sameiginlegan inngang eða stigagang. Þessi tillaga var samþykkt án annarra breytinga á lögunum og gjörbreytti þar með réttarstöðu hundaeigenda til mikils batnaðar. En á sama tíma var réttarstaða ofnæmissjúklinga gagnvart sambýli við hunda og ketti í raun felld út að öllu leyti nema gagnvart leiðsögu- og hjálparhundum. Ákvæðið um samþykki annarra sem var sett inn í lögin til að tryggja réttarstöðu ofnæmissjúklinga er óvirkt ef ⅔ annarra eigenda í stigagangi samþykkja hundahald. Fólk með uppskáldað eða andlegt hundaofæmi þarf núna að vera a.m.k. ⅓ af eigendum í stigagangi sem hefur leitt til þess að mun fleiri hundaeigendur geta búið í fjöleignarhúsum en áður. En af hverju er þetta ákvæði ennþá þarna inni þegar það tryggir ekki lengur réttarstöðu ofnæmissjúklinga? Í raun og veru eru lögin í dag eingöngu að styrkja réttarstöðu fólks sem er andvígt hundum og hundahaldi annarra. Á síðustu 13 árum hefur ekki verið nein umræða í fjölmiðlum um fólk sem þarf að flytja vegna ofnæmis vegna hunda. Hefur þetta ákvæði kannski verið með öllu óþarft síðastliðin 30 ár? Heildarfjöldi ofnæmismála hjá Kærunefnd húsamála frá 2011 hafa verið 15 en flest þeirra tengjast myglu. Í eingöngu þremur tilfellum er um að ræða mál sem tengjast hundaofnæmi og í einu af þeim tilfellum var sérinngangur í íbúð og eingöngu deilt um hvort hundar mættu vera í sameiginlegum garði. Það eru því eingöngu tvö tilfelli um raunverulegt hundaofnæmi að ræða sem hafa farið fyrir nefndina á síðustu 14 árum eftir lagabreytinguna 2011. Síðustu þrjá áratugina hafa þessi lög valdið hundaeigendum óbærilegum skaða. Bæði einstökum hundaeigendum sem hafa þurft að láta frá sér fullorðna hunda eða hreinlega þurft að láta aflífa þá vegna fordóma og óbilgirni annarra einstaklinga. Nýleg dæmi eru um fólk sem þarf að flýja heimili sín vegna náttúruhamfara. Hundar voru aðskildir frá fjölskyldum sem þeir hafa margir hverjir tilheyrt frá því þeir voru litlir hvolpar. Þetta veldur bæði þeim og eigendum þeirra ómældum þjáningum ofan á allt annað sem fólk er að ganga í gegnum. Mín tillaga er sú að lög um fjöleignarhús nr. 26/1994 breytist á þann hátt að 33. gr. e., 33. gr. f, og 33. gr. g. falla brott. Einnig að 1., 2. og 3. málsgrein í 33. gr. h. falla brott. Að bætt verði inn í lögin tilkynningarskyldu fyrir hundaeigendur til að fólk með raunverulegt alvarlegt ofnæmi hafi tök á að bregðast við. Við 33. gr. h. bætist því “Óski eigandi eftir því að halda hund í íbúð sinni skal hann upplýsa stjórn húsfélags um það eða aðra eigendur fjöleignarhúss sé stjórn ekki fyrir hendi með a.m.k. 4 vikna fyrirvara”. 33. gr. h. fjórða málsgrein verði útvíkkuð og orðast svo: “Sé eigandi eða einhver í hans fjölskyldu með ofnæmi fyrir hundum á svo háu stigi að sambýlið við hund sé óbærilegt og læknisfræðileg gögn staðfesta það skal kærunefnd húsamála leita lausna að fengnu áliti ofnæmislækna, hundaþjálfara og sérfræðinga á öðrum sviðum ef því er að skipta.”
- #2ÖBÍ réttindasamtök
Ágæti viðtakandi, Í viðhengi er umsögn ÖBÍ réttindasamtaka um áform um frumvarp til laga um breytingu á lögum um fjöleignarhús nr. 26/1994 (hunda- og kattahald)
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.