Breytingar á sveitarstjórnarlögum - mat á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög
Lagður er grundvöllur fyrir skýrara verklagi um fjárhagslegt áhrifamat á sveitarfélög og formlegar leiðir hvernig farið verður með ágreining ríkis og sveitarfélaga um slíkt mat.
Ferill í Samráðsgátt
- Birt í Samráðsgátt (S-38/2025)
- Umsagnarfrestur hefst · til 4. mars 2025
- Umsagnarfresti lýkur · 7 umsagnir bárust
- Lagt fram á Alþingi (156. þing, mál 272)
- Niðurstöður samráðs birtar
Niðurstöður samráðs (25. júní 2025)
Frumvarpið var lagt fram á Alþingi að loknu samráði eða í mars 2025. Umfjöllun um niðurstöður samráðs er að finna í 5. kafla greinargerðar með frumvarpinu.
Innsendar umsagnir í Samráðsgátt (7)
- #1Fjarðabyggð
Bæjarráð Fjarðabyggðar tekur undir sjónarmið um mikilvægi mats á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög sé lagt til grundvallar við gerð laga og reglugerða. Gunnar Jónsson bæjarritari.
- #2Skagafjörður
Á 135. fundi byggðarráðs sveitarfélagsins Skagafjarðar þann 26. febrúar 2025 var tekið fyrir mál, 38/2025, til samráðs og þannig bókað: Byggðarráð Skagafjarðar hefur ítrekað bent á skort á kostnaðarmati eða að það sé framkvæmt á ófullnægjandi hátt og fagnar því fyrirhuguðum áformum um að mikilvægi mats á fjárhagslegum áhrifum á sveitarfélög sé lagt til grundvallar við gerð laga og reglugerða. F.h. byggðarráðs Sigfús Ingi Sigfússon sveitarstjóri
- #3Samtök atvinnulífsins
Meðfylgjandi er umsögn Samtaka atvinnulífsins vegna máls nr. S-38/2025.
- #4Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Góðan dag, Meðfylgjandi er umsögn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Virðingarfyllst, Páll Björgvin Guðmundsson framkvæmdastjóri SSH.
- #5Þingeyjarsveit
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar fagnar framkomnu frumvarpi um breytingu á sveitarstjórnarlögum. Sveitarfélögin hafa lengi bent á mikilvægi þess að við lagasetningu sé skýrt ferli varðandi kostnaðarmat, þ.e. mat á hugsanlegum áhrifum frumvarpa, tillagna að stjórnvaldsfyrirmælum eða annarra stefnumarkandi ákvarðana af hálfu ríkisins á fjárhag sveitarfélaga. Ekki verður ráðið af framlögðum drögum hvaða afleiðingar það hafi sé ekki orðið við þeirri skyldu að fram fari kostnaðarmat, þ.e. hvaða úrræði eru til að knýja fram slíkt mat. Það er jafnréttismál að kostnaður sveitarstjórnarstigsins í la… Lesa alla
Sveitarstjórn Þingeyjarsveitar fagnar framkomnu frumvarpi um breytingu á sveitarstjórnarlögum. Sveitarfélögin hafa lengi bent á mikilvægi þess að við lagasetningu sé skýrt ferli varðandi kostnaðarmat, þ.e. mat á hugsanlegum áhrifum frumvarpa, tillagna að stjórnvaldsfyrirmælum eða annarra stefnumarkandi ákvarðana af hálfu ríkisins á fjárhag sveitarfélaga. Ekki verður ráðið af framlögðum drögum hvaða afleiðingar það hafi sé ekki orðið við þeirri skyldu að fram fari kostnaðarmat, þ.e. hvaða úrræði eru til að knýja fram slíkt mat. Það er jafnréttismál að kostnaður sveitarstjórnarstigsins í landinu sé metinn á sama hátt og ríkisins við lagasetningu og aðrar stjórnvaldsákvarðanir, og leggur sveitarstjórn Þingeyjarsveitar áherslu á að í þessum breytingum verði horft til þess að jafna þessa stöðu milli stjórnsýslustiganna. F.h. sveitarstjórnar Þingeyjarsveitar. Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, sveitarstjóri.
Umsagnir eru birtar eins og Samráðsgáttin birtir þær, með nafni sendanda. Umsagnir sem sendandi óskaði að yrðu ekki birtar eru ekki hér. Heimild: Samráðsgátt stjórnvalda.